Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 7
Lengst til vinstri og lengst til
hægri eru burknar. (Nephrolepis).
Burkninn hefur verið mikil tisku-
planta um nokkurt árabil. Grósku-
mikill burkni er augnayndi og
mikil stofuprýði. Burkninn þarf
góða birtu en þolir ekki sólskin.
Moldin þarf alltaf að vera rök en
gæta þarf þess þó vel að ofvökva
ekki. Mjög gott er að dýfa pottin-
um á kaf í stofuheitt vatn og láta
pottinn vera þar uns allar loftbólur
eru hættar að stíga upp, eða um
10 mínútur. Burknann þarf að úða
með vatni tvisvar til þrisvar i viku
eftir hita- og rakastiginu i herberg-
inu. Klippið dauð blöð jafnóðum í
burtu til að flýta fyrir nýjum vexti.
Fleygið burknanum ekki þótt
hann virðist dauður. Klippið hann
alveg niður. Dýfið pottinum á kaf i
vatn eins og áður var lýst og setjið
pottinn þvi næst á bjartan stað.
Eftir nokkurn tima ættu ný blöð
að fara að gægjast upp úr mold-
inni.
Burkninn er tilvalin planta í
baðherbergi.
Næst til vinstri er dvergpálmi
(Chamaedorea). Hann þarf að
standa á sæmilega björtum stað
en ekki í sólskini. Vökvið vel að
sumri en lítið að vetri. Úðið
pálmann oft og strjúkið yfir blöðin
með rökum klút, jafnt að sumri
sem vetri. Dvergpálminn verður
sjaldnast hærri en 75 cm til 1 m.
Hangandi vinstra megin er
veðhlauparinn (Chlorophyt-
um), skemmtileg planta og
auðveld viðfangs. Hún þolir góða
birtu en ekki sólskin. Moldin þarf
ávallt að vera rök. Blöðin eru
viðkvæm fyrir hnjaski. Fjölgun er
auðveld. Klippið „börnin'' sem
myndast og setjið þau i vatn þar
til þau hafa fengið rætur.
Hangandi vinstra megin er
mánagull (Scindapsus). Blöðin
eru græn með gulleitum yrjum
eða dröfnum. Plantan þarf
sæmilega birtu, ekki sólskin, en of
lítil birta gerir hana alveg græna.
Það þarf að vökva hana hóflega á
sumrin en minna á veturna. Hún
hefur gott af vatnsúðun öðru
hverju, einkum ef þurrt og heitt er
i herberginu.