Vikan - 18.04.1985, Síða 11
r
DIPÐVIUIMNh
Félagsmálaráðherra
Sniðgekk (onu
Jæja, karlanginn, ekki vissum við að hann væri orðinn
svona gamall. . .
Símon sjómaður
Simon Le Bon er dýrkaður af
hundruðum þúsunda stúlkna
víða um lönd. Hann er söngvari í
einni vinsælustu hljómsveit sem
komið hefur fram á sjónarsviðið
síðan á dögum Bítlanna. Hann
er hreystin uppmáluð, laglegur,
vinsæll, nýtur velgengni og er
forríkur. Eiga slíkir menn sér
dagdrauma?
Simon Le Bon á sér draum og
það sem meira er, hann hefur
vel efni á að láta hann rætast.
Hann hefur nýverið keypt sér
kappsiglingaskútu sem kostaði
hvorki meira né minna en
milljón sterlingspund, nálægt 46
milljónum íslenskra króna.
Draumurinn er að taka þátt í
hinni heimsfrægu Whitbread
kappsiglingu umhverfis hnött-
inn. Sigling þessi er á köflum
mjög erfið og stórhættuleg á
stundum. Þessi kappsigling
hefur verið haldin árlega síðast-
liðin fjögur ár. Tíu bátar hafa
farist og þrír menn týnt lífi.
„Auðvitað er ég hræddur, ég er
skelfingu lostinn,” segir hann.
„en það er víst hluti af gamn-
inu.”
Simon segist alltaf hafa verið
heillaður af hafinu. Þegar hann
dvaldi í leyfi í Cannes nýverið
hélt hann til um borð í bát. Og í
sumarfríinu í fyrra á Sardiníu
sigldi hann keppnisskútu meðan
aðrir sóluðu sig á ströndinni.
I Whitbread kappsiglingunni
verður Simon þó aðeins liölétt-
ingur þrautreyndrar áhafnar.
Siglingin hefst i september og
lýkur vorið eftir. Vegna anna 1
hljómsveitinni getur Simon ekki
siglt með fyrstu tvo áfangana en
hann verður með tvo þá síðari.
Þá verður meðal annars siglt
fyrir Homhöfða, einn alhættu-
legasta hluta leiðarinnar. En
Simon er ekki bara ákveðinn í að
vera með, hann er staðráðinn í
að sigra.
Það er ekki laust við að félög-
um hans lítist heldur illa á þetta
uppátæki Simons, satt að segja
álíta þeir hann snælduvitlausan.
En þaö hefur samt ekki skapað
neina óeiningu í sveitinni og þeir
hinir ætla að kveðja sjóarann
Simon með pomp og prakt á
bryggjunni þegar að því kemur.
Afi Simons strauk til sjós
þegar hann var 14 ára, svo
ástríðan er greinilega í blóðinu.
En það er ýmislegt fleira sem
rekur Simon á sjóinn. Hvar sem
hann fer í landi er hann um-
kringdur aðdáendum sínum.
Þeir hafa slitið upp hvert einasta
strá á grasflötinni fyrir framan
húsiö þar sem hann býr og
hanga fyrir utan nótt sem nýtan
dag. Þótt Simon hljóti eins og
aðrir frægir popparar að bera
þennan kross, þar sem
aðdáendumir em nú einu sinni
gullgæsin sjálf og þá má ekki
styggja, þá getur frægðin verið
þreytandi. Á sjónum, þar sem
fuglamir einir em og fara ekki í
manngreinarálit, öðlast Simon
ró og frið. Siglingar em heilbrigt
mótvægi við hættur ljúfa lífsins.
Strákamir í Duran Duran voru
bendlaðir við fíknilyf jamál á sín-
um tíma og þaö setti ljótan blett
á annars snyrtilega ímynd
þeirra. Aðdáendumir stóðu með
Duran Duran í fíknilyfjamálinu
en Simon segist ekki mega til
þess hugsa að það verði til þess
að krakkamir fari að halda aö
það sé eitthvað töff að vera í dópi
þegar það sé i rauninni mesti
hryllingur. Þá vill hann heldur
biðja um að krakkamir fylgi for-
dæmi hans og fari að sigla.
LIZA
MINELLI
byriar nýtt líf!
Þaö hefur gengiö á ýmsu í lífi Lizu Minelli.
Hún hélt þó aö lífið væri byrjaö aö brosa viö
henni þegar hún giftist Mark Gero áriö 1979.
Þau töluðu um aö eignast barn saman og það leit
út fyrir aö Liza fengi næg tækifæri til aö stunda
leiklistina. En þaö fór á annan veg. Hún missti
fóstur hvaö eftir annað og á endanum varö hún
aö sætta sig viö aö geta líklegast aldrei átt barn.
Þetta fékk mikið á hana og Mark eiginmann
hennar. Síöan fékk hún ekkert aö gera og þegar
henni bauðst eftir langan tíma ómerkilegt auka-
hlutverk í leikriti á Broadway var henni allri
lokið. Hún hallaðist æ meira að róandi töflum og
viskíi og á endanum gafst Mark upp á henni og
flutti aö heiman.
Áöur en eiginmaöurinn yfirgaf Lizu lét hann
þaö veröa sitt síðasta verk aö koma henni í með-
höndlun á hina frægu afvötnunarstofnun Betty
Ford. Systir Lizu, Loma Luft, og leikkonan
Elizabeth Taylor, sem báöar höföu fariö í
meðferö á þessari sömu stofnun, hjálpuöu Lizu
mikiö á meðan á meöferöinni stóö. Þegar Liza
útskrifaöist beiö eiginmaðurinn eftir henni og
saman fóru þau í frí til Antigua þar sem þau
geröu leikfimiæfingar og stunduðu heilbrigt líf-
emi í nokkrar vikur.
Nú hefur allt falliö í ljúfa löö milli þeirra
tveggja og vinir þeirra segjast aldrei hafa séð
þau jafnhamingjusöm. Liza er ákveðin í því aö
líta bjartsýnum augum á framtíöina og segist
nú vera aö hef ja nýtt og betra líf.
Teiknaðu kall:
Lausn
;B0|SiQjejuA>) ja uu;jnBu;ujAi|;j(j
u>)e; )uæj)s;| jo uuunBumjAqjej
u>)e; ;B0|njeB ja uuunBupH
:j3 BJJiatj §u]HJ9ui So jb;ou ncj uias
nSinuia b[joai[ jijXj %oi QJæj ncj ‘uuinB5[
§o suia jnjjasuiBS ja uubjj 'umuicj Bspaj
-nuosjad 8o jacj b undnfqjB joÍjb luuiunBJ
I J9 Bjjacj QB J9Cj Bͧ9S QB JS9q J9 BcJ
^uurqBij BU1JI9J qb (u) umqnjjg ‘Bfæf
16. tbl. Vikan 11