Vikan - 18.04.1985, Síða 30
BILAPROFUN VIKUNNAR:
inn- og útgangur er auðveldur
hvaða stirðbusa sem er.
ökumaðurinn þyrfti ekki
heldur að kvarta. Þama myndi
hann sitja í fína stólnum sínum
sem gefur ágætan hliðarstuðning
og horfa yfir mælaborðið sitt (sem
er alls ekki erfitt), halda um vel
formað og gripgott (nýyrði?)
stýrið og lesa hraða bílsins,
snúningshraða vélar og vatnshita
um leið og hann vissi vel hversu
mikið bensín væri eftir. Auk þess
gæti hann sagt félögum sínum
hvað klukkan væri ef hann vildi.
Traktor?
Svo er sett í gang. Vélin er
(vitanlega) gangþýð og hljóðlát en
í átaki vill hún líkjast dísilvél hvað
hljóðið varðar. Gírstöngin fellur
vel í lófa en vonbrigðum veldur
hversu skiptirinn sjálfur er
gúmmílegur. Ekki nóg með það,
heldur er hann beinlínis óöruggur
þegar leikar fara aö æsast og er þá
vart hægt að koma bílnum í annan
nema með átökum. Hitt er svo
annað mál að það á ekkert að vera
aö spyma á svona bíl, hann skal
keyra af virðuleik og öryggi, eins
og stóð á verðmiða á gömlu
Benzhræi á bílasölu hér í (Reykja-
víkur) borg.
Kúplingarfetillinn er nokkuð
stífur að stíga á, sem og
bremsumar. Þetta tvennt eru þó
atriöi sem venjast fljótt og þegar
það tímabil í samskiptum bílsins
og undirritaðs hófst var auðvelt að
beita hvom tveggja af miklu
öryggi. Bremsumar voru reyndar
geysiskemmtilegar og á þar
sennilega stærstan þátt tilvera
diskahemla að aftan, hlutur sem
halar inn mörg stig úr einkunna-
bók hvers sem hefur eitthvert vit á
bflum.
Og þá er það stýrið. Bfllinn er
búinn vökvastýri sem hjálpar
heflmikið tfl í snöggum
snúningum. Til allrar hamingju er
það þó ekki það létt aðhraðakstur
sé ómögulegur, nákvæmni þess er
það mikil að vel er hægt að beita
bflnum á hvaða ferð sem er (innan
skynsemismarka) án þess að
fyllast öryggisleysi. Að sjálfsögðu
kemur hjálparátakið niður á veg-
tilfinningunni en við því er ekkert
að gera, svona eru bara öll vökva-
stýri.
Akstur dráttarvéla
Áður en aksturseiginleikar
bflsins verða krufnir til mergjar
er best að skýra frá því hvemig
fjöðrunarbúnaðurinn er úr garði
gerður. Að framan er hinn
klassíski Mcpherson útbúnaður en
að aftan er hefl hásing með gorm-
um. Sumum þætti það ef til vill
svolítið sveitó, jafnvel traktors-
legt, en styrkur þessa búnaðar er
mikill og það er sjálfsagt það sem
vakir fyrir Volvomönnum.
Bæjarakstur er leikur einn á
bílnum. Hjálpar þar mikið til
vökvastýrið en margt annað
kemur einnig tfl. Otsýn öll er eins
og best verður á kosið, glugga-
póstar hvergi til trafala en oft
vfldi fara um mann ef verið var að
gauka framenda bflsins í stæði,
því hann er nokkuð langt frá
ökumanni. Auðvitað keyrist þetta
af, annaðhvort framendinn eða
öryggisleysi ökumannsins, og ef
varlega er farið ætti allt að fara
vel. Auðvelt er að ná tfl allra
stjómtækja, stefnuljósa- og
þurrkurofa, en háljósablikkara
var erfitt að finna. Hann fannst
reyndar aldrei.
Það fer ekki fram hjá neinum
að búið er að planta niður
hraðahindrunum hér og þar um
Reykjavfldna. Þessir malbiks-
hraukar geta sagt manni margt
um fjöðrunarbúnað bfla og ástand
þeirra. Við hraðan akstur yfir þá
er oft hægt að finna alls kyns bak-
föll og ólæti en á Volvonum finnst
lítt fyrir svoleiðis smábfla-
syndrómum. Á sextíu kflómetra
hraða finnst bara smádúmp og
síðan ekki söguna meir. En ef
hraðinn er svo lækkaður niður í
fjömtíu kemur ýmislegt skrýtið í
ljós. Þá hoppa allir bílar eins og
beljur að vori, með rassinn upp í
loftið og svo hræðflegum skellum.
Volvoinn gerir þetta líka en hefur
sinn virðulega stíl á því, lyftir
afturendanum lítillega og kemur
sv mjúklega niður.
Ekki var farið í svæsinn
malbiksakstur á götum borg-
arinnar. Laganna verðir
(smekkmenn, þessir lagaverðir,
keyra um á Volvo) nutu
góöviðrisins með vegfarendum og
virtu lífiö fyrir sér, skoðuðu þá
meira að segja með radartækni og
gripu stundum inn í þessa annars
indælu umferðarmenningu okkar,
fljótt, örugglega, en þó virðulega,
ef eitthvað var sem þeim líkaði
ekki í akstursmátanum. Einn af
þeirra verstu augnþymum er
hraðakstur og friðelskandi vegfar-
andi eins og undirritaður vildi alls
ekki fá þá upp á móti sér, svo að
þolrifjareynsla bílsins fékk að
bíða þar til komið var út fyrir um-
feröarsiðmenninguna, á leiðina
bak við Úlfarsfellið sem er
hlykkjóttur og hvarfgjam malar-
vegur.
I stuttu máli er hægt að segja
að bfllinn sé rásfastur, tekur
hvörfum, hólum og alls kyns
holum með hinu mesta jafnaðar-
geði. Á miklum hraða léttist þó
afturendinn nokkuð og vildi
dingla. Samt er auðvelt að hafa
fullkomna stjórn á bflnum, og víst
er að enn fpyndi það léttast ef ein-
hver þyngsli lægju aftur í honum
eins og til dæmis farangur fyrir
fimm manns.
Á leiðinni til baka stóðst
prófarinn ekki freistinguna og
braut umferðarreglur smávegis.
Þá fann hann vel að Volvoinn
liggur mjög vel á malbiki, rás-
fastur með eindæmum og öruggur
í alla staði, hvort sem um var að
ræða framúrakstur og þess háttar
sving eða nauðneglingar (þrótt-
miklar hemlanir).
Afl vélarinnar var bara þokka-
legt. Ekki er þó hægt að segja að
bfllinn sé snöggur en vinnslusvið
vélarinnar er mjög þétt, frá 2000
snúningum og upp í
skynsamlegan hámarkssnúning
sem er nálægt 5000. Þetta er í dag-
legu máli kallað gott tork, snún-
ingsseigla, nokkuð sem gerir
það að verkum að auðvelt er að
halda stöðugri ferð þó að brekkur
séu á veginum. Það er einmitt
málið meö Volvoinn. Hann vinnur
sig örugglega upp gírana og svo
þegar þeim fimmta er náð þarf
mikið til að vélin koðni eitthvað
niður. Reyndar (ef vélin er látin
vinna létt) er maður þá í kringum
120 kflómetra hraða og finnur vart
fyrir, en auðveldlega er hægt að
láta hann malla áfram á 80—90.
Þetta, ásamt hinni ágætu fjöðrun,
gerir það að verkum að Volvoinn
er fyrirmyndar ferðabfll sem
erfitt er að þreytast á að keyra.
Loks:
Er upp er staðið og allt saman
talið hefur þessi bfll fáa galla.
Helst er hægt aö finna að hinum
óvissa skipti og flautunni sem var
hreinlega hlægilega hjáróma og
hæfði alls ekki hinu virðulega yfir-
bragði bflsins. Helst ætti að setja
hana á litla skellinööru. Þar á hún
kar heima.
Það er vitað mál að Volvobif-
reiðar hafa ætíð verið taldar með
þeim traustari og endingarbetri á
þessu vegsnauða landi. (Við erum
með færri hundraðshluta vega-
kerfis okkar malbikaöa en
Eþíópíumenn og erum næst
síðastir í röðinni á eftir Kamerún-
búum. I Úganda, hinu hrjáða
landi, er helmingi meira af
vegunum malbikað en hjá okkur.)
Endursöluverð á Volvo er ætíð
mjög hátt og hann er, eins og
umboðið bendir stundum á, fast-
eign á hjólum. Sambærilegt verð
hafa þessir bflar: Citroen CX 20
Pallas, Toyota Cressida 2800 GLX,
Peugeot 505 GTI og BMW 520 i, en
Volvo 740 GL kostar 785 þúsund
krónur. Víst er að samkeppnin er
hörð og þegar svo miklir peningar
eru komnir í spilið er eins gott að
vanda valið vel. Sértu að leita að
traustum bfl fyrir fimm manns,
sem þú getur hoppað upp í hvenær
sem er og farið til Egilsstaða,
mæli ég með Volvo 740.
30 Vikan 16. tbl.