Vikan - 18.04.1985, Side 34
Draumar
Blóð og peningar
Kæri draumráðandi.
Viltu ráða þennan
draum fyrir mig? Hann er
svona: Eg var að fara með
pabba og mömmu á bæ
sem ég þekki mjög vel.
Þetta skeði seint um kvöld
og það var svartamyrkur.
Mér fannst að við værum að
fara í veislu sem haldin
væri á þessum bæ og ég var
með fataböggul t
hendinni. Þegar við
komum inn í húsið var það
allt öðruvísi en i alvörunni
og enga þekkti ég í fljótu
bragði nema húsráðendur.
Eg sá pabba og mömmu
ekki eftir þetta. Stðan fór
ég inn í stofu og settist við
hliðina á Þ vini mínum. Þá
fór ég að líta í kringum mig
og sá þá H systur mína
sitjandi á gólfinu. Þegar ég
leit við aftur horfði Þ á mig
eins og hann ætlaði að éta
mig með augunum. Eg
hvtslaðiþá að honum að ég
væri með fötin hans. Hann
var í skítugum gallabuxum
og peysu. Stuttu seinna fór
ég út því að mér fannst að
Þ ætlaði að fara eitthvað og
ætlaði að gá hvort hann
væri farinn. Sá ég þá að
hann sat inni í bílnum og
. einhver stóð og miðaði á
hann byssu. Eg hljóp inn
og sótti S og bað hann að
hjálpa honum. En þegar
við komun aftur var verið
að bera Þ alblóðugan og að
mér sýndist meðvitundar-
lausan í burtu. Mennirnir,
sem báru hann, hentu hon-
um inn t bíl og fóru sjálfir á
eftir og óku í loftköstum í
burt.
Eg og S stukkum upp í
bílinn hans S og ókum á
eftirþeim. Þegar við vorum
búin að aka lengi komum
við í stórborg. Þar labbaði
ég beint að húsi einu og fór
inn. Þar sá ég litla buddu,
hún var opin og ég leit inn
í hana og sá þar tvo þykka
göndla af fimmhundruð-
köllum. Mér datt í hug að
þetta væru stolnir peningar
en hugsaði ekki meira um
það og fór út. Þá var ég allt
í einu komin upp á heiði
þar sem mér sýndist vera
ruslahaugur fyrir btla. Eg
var þarna eitthvað að
sniglast þegar ég sá hjóla-
stól við girðingu þarna rétt
hjá og var Þ í stólnum. Eg
hljóp af stað í áttina til
hans en þegar ég kom að
girðingunni var Þ farinn úr
stólnum og kominn í bíl
sem var þar rétt hjá. Eg fór
inn til hans og ætlaði að
bera hann út úr btlnum en
gat það ekki, hann var svo
þungur. Þá kom S á sínum
btl og löggan með honum.
Löggan spurði Þ hvort við
værum skyld eða gift. Þ
neitaði þvt en sagði að við
ættum eftir að verða það.
Um leið og hann sagði
þetta stóð hann upp og
brosti til mtn. Þá vorum við
allt í einu komin á ein-
hverja götu í miðri
borginni. (Eg labbaði alltaf
aftur á bak.) Þ var við
hliðina á mér og gekk
áfram og eins var með alla
vegfarendur. Tók ég þá
eftir því að Ijóshærð kona
var alltaf að blikka ein-
hvern. Þá fór ég að blikka
líka en hún brosti bara og
benti ég þá á mig en hún
kinkaði bara kolli og fór.
Sneri ég mérþá við og gekk
eins og manneskja.
Var þá A kominn og ýtti
barnavagni á undan sér.
Allt í einu vorum við
komin út á flugvöll,
þangað kom kona og vildi
fá að skoða börnin, hvort
þau væru heilbrigð. Eg
leyfði henni það þó mér
þætti þetta skrýtið. Þá tók
konan börnin og skipti á
þeim, annað var þurrt og
mátti það fara, hitt var
búið að kúka á sig. Þegar
við ætluðum að henda
bleiunni tókum við eftir
hvítri rák sem var um það
bil 1 cm á lengd. Konan
sagðist ætla að taka sýni
með orminum en þegar
hún tók orminn kom í Ijós
peningagöndull, svipaður
þeim sem ég fann í húsinu.
Konan spurði hvernig
stæði á þessu. Eg sagðist
ekki vita það, ég ætti ekki
börnin (þau voru tvíburar),
T vinkona mín ætti þau.
Eftir stutta stund vorum
við Þ komin heim á bæinn
þar sem veislan var haldin.
Börnin og A komu ekki
með okkur en er við
komum í hlaðið vaknaði
ég-
Með fyrifram þökk fyrir
birtinguna,
bæ, bæ,
Þ.H.R.G.
Þessi draumur boðar þér
eða einhverjum þér mjög
nákomnum mikil veikindi
og sigur í þeim veikindum.
Eftir erfið og/eða langvinn
veikindi má búast við að
heldur betur batni ástandið
og í kjölfarið kemur tíma-
bil sem er mjög gott, sér-
staklega í peningamálum.
Það væri kannski oftúlkun
að ætla að hér sé um slys að
ræða og síðan slysabætur en
mögulegt er að svo sé. Það
virðast á einhvern hátt vera
tengsl milli veikindanna og
þess láns sem þú mátt gera
ráð fyrir (eða fjölskylda
þín) ífjármálum.
Annað getur gerst og
það er að veikindin leiði til
breytinga á þínum högum
eða allrar fjölskyldunnar,
og það sé sú breyting sem
valdi þessum fjárhagslega
ávinningi. Viss teikn í
draumnum benda nefni-
lega til þess að samhliða
þessari velgengni í fjármál-
um sé ákveðin velgengni í
starfi, námi eða þjóðfélags-
stöðu.
Þú sagðir ekki„en garde". Helvítið þitti!
34 Vikan J6. tbl.