Vikan - 18.04.1985, Blaðsíða 41
Þýðandi: Anna
snúninga plötunum í útsölukassan-
um í leit að góðum upptökum með
Mills-bræðrum, Mahaliu Jackson,
Nat King Cole og Veru Lynn.
— Ég ætla að fá plötu sem heitir
„Klukkurnar í Tíról”, sagði ég við
unga afgreiðslustúlku með króm-
gult hár sem var greitt hálfan
metra upp í loftið eins og of-
þroskað kornax.
— Einhverja sérstaka útgáfu?
Ég tók regnhlífina niöur og
hristi af henni bleytuna.
— Já, það er útsetning þar sem
maður heyrir í kúabjöUum og
kátum Tírólbúum sem jóöla í
fjarska. Það er lína í textanum
sem er eitthvað í þessa átt: „Kátu
klukkurnar í Tíról. . .don-ding-
eldang, dingeldong. .. þær
hringja faUega í kvöldsólinni! ” Og
það er líka önnur lína sem er eitt-
hvað eins og svona: „Nú fara
skjöldóttu kýrnar heim. .. dong-
dingeldang, dingeldong. .. og
klöngrast inn um fjósdymar!”
Eða eitthvað svoleiðis. Þetta er nú
frjálslega með textann farið eftir
minni. En það er nú ekki endUega
textinn sem ég hef áhuga á. Það er
frekar lagið sjálft, skUurðu. Og svo
endar þetta aUt með: „Tírólar jóðla
glaðir... það er gleðinnar söngur! ”
— Dong-dingeldang, dingel-
dong? endurtók afgreiðslustúlkan
og strauk komgult hárið.
— Já, einmitt.
— Því miður er íslenska útgáf-
an með Fróða frækna og Jóðl-
Jonna uppseld en við erum með
alveg ágæta upptöku: Swiss
Cheese Rhapsody með Woody
Woodstock and his backing group,
Screaming Sharks.
— Ekki Swiss Cheese
Rhapsody, takk, heldur
„Klukkumar í Tíról”.
— Það er sama lagið, herra
minn. Við erum líka með hina
hefðbundnu Dixie-útgáfu með
Dave „Fingers” Pee Wee Wakely
and his Fat Guys and Dolls og
New Orleans. Og hér eru nokkrar
skemmtilegar upptökur með Dor-
othy „Hair” Doodle Dopey and the
Monkey MoonUghters. Og svo er
það gamla kántríútgáfan með
Dave „Backwood” Hunt and his
HooUgan Hunters.
Krómgula stúlkubamið náði í
fimm, sex plötur í viðbót.
— Og svo erum við auðvitað
meö þetta í venjulegum poppút-
gáfum. Hér með Rocking
GoriUas. . . eins meö Noise-
makers. . . og hér með Crazy
Insanes. .. en það er reyndar
soul-grúppa. .. en ágæt samt...
nú, já, svo er það héma með Mad
Madman. .. og svo er fuUt af þjóð-
lagaútgáfum. . . þessi er sungin
á hebresku. . . og þessi er með
Potato Five frá Dublin. . .
kartöflusöngvaramir, þú kannast
örugglega við þá úr sjónvarpinu.
Stúlkukindin lét mig fá allan
plötubunkann.
— Þú vilt kannski heldur fá
alveg nýja útsetningu meö
Jamaica Buddy Brass Band og
svo hefur sjálfur Ted Black Power
Shadow spilað með honum á þess-
ari, á trommur. Og hér er
kántríútgáfa með Big Nose Baxter
og sléttuúlfunum flautandi og hér
er önnur kántríútgáfa með Sheriff
„Shotgun” MilUgan and his Slow-
poke Dead Valley KiUers, og hér
er...
— Ég ætla bara einfaldlega að
fá plötu, greip ég fram í, leyfðu
mér að líta á þessa með kartöflu-
söngvurunum.. .
Stúlkubamiö leit undrandi,
næstum forviða, á mig.
— Já, en þú hefur ekki einu sinni
hlustað á þá ennþá, sagði hún. Þú
veröur fyrst að heyra nokkrar út-
gáfur. . . og svo að velja þá sem
þér finnst æði.
— Er nokkuö athugavert við
kartöflusöngvarana frá Dublin?
Er platan rispuð? Er hún ónýt? Er
plötuumslagið eitthvað lélegt?
— Auðvitað ekki, ég var bara að
hugsa. . . en svo er hér ein
upptaka sem ég er viss um að þú
verður hrifinn af. Það er soft-soft
útgáfa með Felix Fiffelstein and
his Seventy Silver Violins. . .
— Leyfðuméraðheyrahana.
— Komdu þá með mér inn í box
7. Þaðer aðlosna.
Ég náöi í plöturnar og fór inn í
box 7 og lokaði á eftir mér. I friði
og ró gat ég nú spilað plöturnar
mínar.
Ég var búinn að spila eitthvað á
annan tug platna og var í miðri
kántrí-flautandi útgáfu Big Nose
Baxters og sléttuúlfanna flautandi
þegar krómgula stúlkubamið kom
inn og setti nýjan bunka á hilluna
hjá mér. Hún hefði getað sparaö
sér það. Ég hafði þegar tekið
ákvörðun. Ég var ekki í nokkrum
vafa. Klukkumar í Tíról voru
hreinasta plága. Ég skildi ekki
hvað ég hafði séð við þær. Ég vildi
hvorki sjá þær né heyra.
— Ég held að því miður líki mér
engin þessara platna, sagði ég og
reyndi að líta undan augnaráði
krómgula stúlkubamsins.
— Það er allt í lagi, sagði hún
fúl. Viö erum vön að fá fólk hingað
inn að drepa tímann þangað til
styttir upp!
ea Stjömuspá
Hrúturinn 21. mars-20. april
Fram undan er róleg-
ur tími hjá þér og þú
ættir aö njóta hans
vel og ekki hafa
áhyggjur af því sem
aðrir eiga aö leysa.
Þér hættir til aö taka
of mikið aö þér og þá
endist tíminn ekki
nógu vel.
Krabbinn 22. júni - 23. júli
Þú heillast mjög af
ákveönu fólki sem
hefur mótaöar
skoðanir. Það er
vegna þess aö þú ert
frekar óöruggur
sjálfur og vilt fá
aöstoö annarra til aö
gera upp hug þinn og
taka ákvarðanir.
Vogin 24. sept. 23. okt.
Þú bindur miklar
vonir við nýtt starf
og ekki annað aö sjá
en allt gangi þér í
haginn um þessar
mundir. Vertu tilbú-
inn aö taka mjög
skjótar ákvarðanir.
Vertu ekki of raun-
sær.
Nautið 21. april - 21. mai
Einhver segir
eitthvaö við þig sem
þú tekur frekar nærri
þér. Reyndu aö horfa
á máhö í víöara sam-
hengi og þá uppgötv-
ar þú að sumir hlutir
eru alls ekki þess
viröi aö hafa
áhyggjur af þeim.
Ljónið 24. júli 24. ágúst
Ástarlífið stendur
yfirleitt í blóma um
þessar mundir. Þú
munt líklega standa
frammi fyrir vah og
þér finnst ákaflega
erfitt að ákveða þig.
Báöir kostimir eru þó
mjög góöir.
Sporðdrekinn 24. okt. - 23. nóv.
Þú ert glaölynd
persóna og þér gengur
yfirleitt vel aö um-
gangast fólk. Gættu
þess aö fólk misskilji
ekki jákvætt viðmót
þitt, þaö gæti orsakaö
leiðindi sem er mjög
auðvelt aö komast
hjá.
Tvíburarnir 22. maí-21. júni
Þú ert aö ganga í
gegnum frekar erfitt
tímabil þessa dagana
og þaö hjálpar þér
akkúrat ekki neitt aö
stinga höföinu í sand-
inn. Horfstu í augu
viö erfiðleikana og þá
eru þeir horfnir um
leið.
Meyian 24. ágúst - 23. sept.
Þú ert ákaflega
traustvekjandi pers-
ónuleiki og fólki
finnst gott að leita til
þín eftir ráölegging-
um. Þaö fer stundum
í taugamar á þér en
þú ættir aö þakka
fyrir traustið.
Bogmaðurinn 24. nóv. 21. des.
Þú hefur bundiö
miklar vonir viö
ákveðinn atburö en
nú sérð þú fram á aö
sá atburöur muni
ekki gerast. örvæntu
ekki því þetta er aö-
eins undirbúningur
að miklu skemmti-
legra atviki.
S'temgeitin 22. des. 20. jan.
Þó fólki finnist þú
ákaflega léttlyndur
og frjálslyndur þá ert
þú í rauninni mjög
gamaldags undir
niöri. Þess vegna leit-
ar þú aö traustum
eiginleikum hjá þeim
sem þér þykir vænt
um.
Vatnsberinn 21. jan. 19. fetr.
Þú hittir ákveðna
persónu og kemst
fljótt aö því að þiö
eigið ákaflega margt
sameiginlegt. Þú
munt upplifa mjög
skemmtdega tíma og
líklegast ferð þú til
útlanda mjög bráö-
lega.
Fiskarnir 20. febr. 20. mars
Einhver úr fjölskyld-
unni veldur þér
áhyggjum. Þú ættir
aö reyna aö fá þann
aðila til aö tala hrein-
skilnislega viö þig.
Þú munt fá tilboö
sem þér þykir erfitt
að hafna, en þú ættir
aö hugsa þig vel um.
16. tbl. Víkan 41