Vikan - 18.04.1985, Page 47
ata reyndi aftur að
setjast upp en hann þröngvaði
henni niður á rúmið og togaði
síðan brjóstin á henni til sín á
ruddalegan hátt, lagði liminn á
milli þeirra og tók að aka sér
fram og aftur. Kata lá klesst
undir honum, rugluð, auð-
mýkt og trúði varla að þetta
væri raunveruleiki. Hún náði
ekki andanum vegna þess hve
hann hvíldi þungt á henni.
Francois stífnaði og titraði og
rumdi, hann greip svo fast um
brjóstin á henni að hana verkj-
aði. Síðan hlunkaðist hann nið-
ur á hana og Kata fann
klístraða vætu renna yfir við-
beinið og niður hálsinn. Hún
vissi hvað það var og þorði ekki
að hreyfa sig til þess að ekkert
af því færi nú á vitlausan stað.
Hún var lömuð af ótta.
,,Þarna sérðu, ég sagði þér
að ég myndi fara varlega, elsk-
an mín,” sagði Francois.
Kötu fannst hann ekki hafa
farið varlega. Hvernig dirfðist
hann að kalla hana elskuna
sina. En var það ekki einmitt
það sem hún hafði viljað fyrir
hálfri stundu? Að vera elskan
hans? Hann hlýtur að hafa þráð
hana óstjórnlega mikið.
Já, það hlaut að vera þannig,
taldi hún sjálfri sér trú um.
Hann elskaði hana, þess vegna
hafði þetta gerst. Þetta var ekki
eins og hún hafði vænst, það
hafði ekki verið rómantískt og
dásamlegt heldur sóðalegt og
óþægilegt. En kannski var kyn-
lífið eins og að renna sér á skíð-
um, óþægilegt og erfitt í fyrstu
skiptin. . .
Hvað sem því leið var hún
nú búin að leyfa honum að fara
inn undir nærfötin, annað stig-
ið, svo augljóslega hlaut hann
að vera stóra ástin í lífi hennar.
En það var undarlegt að
henni lá við gráti.
<JT
f/v
veimur dögum síðar
uppgötvaði Kata að skólinn tal-
aði ekki við hana. Þær frystu
hana úti.
Framhaid ítiæsta blaðL ^5
Regular—
venjulegar sokkabuxur
Fyrsta val milljóna kvenna um allan heim.
Regular sokkabuxurnar eru mjög teygjanlegar
og halda upprunalegum eiginleikum lengi.
Hvernig sem fætur þinir llta út, getur þú verið
viss um að Regular sokkabuxurnar passa
fullkomlega.
Sheer Energy—
hvfldarsokkabuxur
Shee'r Energy sokkabuxurnar eru þunnar,
fallegar á fæti og endingargóðar.
Leyndardómurinn er sá að við höfum ofiö
þær auka þræði sem nuddar, frlskar og
viðheidur þrótti fótleggjanna daglangt.
Control Top—
stífar að ofan___________
Control Toþ sokkabuxurnar hafa alla sömu
eiginleika og Regular sokkabuxurnar, en eru
stlfar að ofan og falla þétt að maga og
mjöömum. Control Top halda öllu á slnum
stað, fegra útlit og auka velllöan.
|?Sl l§9^*Knee Highs—
hnésokkar___________
Mjúk teygjan er hvorki of þröng né of vlð.
Stroffiö á hnésokkunum er breitt og hindrar
ekki blóðrásina.
Heildsöiubirgðir:
cÁvneriólzcif
sími 82700
Auglýsingastofa Gunnars