Vikan


Vikan - 18.04.1985, Síða 47

Vikan - 18.04.1985, Síða 47
 ata reyndi aftur að setjast upp en hann þröngvaði henni niður á rúmið og togaði síðan brjóstin á henni til sín á ruddalegan hátt, lagði liminn á milli þeirra og tók að aka sér fram og aftur. Kata lá klesst undir honum, rugluð, auð- mýkt og trúði varla að þetta væri raunveruleiki. Hún náði ekki andanum vegna þess hve hann hvíldi þungt á henni. Francois stífnaði og titraði og rumdi, hann greip svo fast um brjóstin á henni að hana verkj- aði. Síðan hlunkaðist hann nið- ur á hana og Kata fann klístraða vætu renna yfir við- beinið og niður hálsinn. Hún vissi hvað það var og þorði ekki að hreyfa sig til þess að ekkert af því færi nú á vitlausan stað. Hún var lömuð af ótta. ,,Þarna sérðu, ég sagði þér að ég myndi fara varlega, elsk- an mín,” sagði Francois. Kötu fannst hann ekki hafa farið varlega. Hvernig dirfðist hann að kalla hana elskuna sina. En var það ekki einmitt það sem hún hafði viljað fyrir hálfri stundu? Að vera elskan hans? Hann hlýtur að hafa þráð hana óstjórnlega mikið. Já, það hlaut að vera þannig, taldi hún sjálfri sér trú um. Hann elskaði hana, þess vegna hafði þetta gerst. Þetta var ekki eins og hún hafði vænst, það hafði ekki verið rómantískt og dásamlegt heldur sóðalegt og óþægilegt. En kannski var kyn- lífið eins og að renna sér á skíð- um, óþægilegt og erfitt í fyrstu skiptin. . . Hvað sem því leið var hún nú búin að leyfa honum að fara inn undir nærfötin, annað stig- ið, svo augljóslega hlaut hann að vera stóra ástin í lífi hennar. En það var undarlegt að henni lá við gráti. <JT f/v veimur dögum síðar uppgötvaði Kata að skólinn tal- aði ekki við hana. Þær frystu hana úti. Framhaid ítiæsta blaðL ^5 Regular— venjulegar sokkabuxur Fyrsta val milljóna kvenna um allan heim. Regular sokkabuxurnar eru mjög teygjanlegar og halda upprunalegum eiginleikum lengi. Hvernig sem fætur þinir llta út, getur þú verið viss um að Regular sokkabuxurnar passa fullkomlega. Sheer Energy— hvfldarsokkabuxur Shee'r Energy sokkabuxurnar eru þunnar, fallegar á fæti og endingargóðar. Leyndardómurinn er sá að við höfum ofiö þær auka þræði sem nuddar, frlskar og viðheidur þrótti fótleggjanna daglangt. Control Top— stífar að ofan___________ Control Toþ sokkabuxurnar hafa alla sömu eiginleika og Regular sokkabuxurnar, en eru stlfar að ofan og falla þétt að maga og mjöömum. Control Top halda öllu á slnum stað, fegra útlit og auka velllöan. |?Sl l§9^*Knee Highs— hnésokkar___________ Mjúk teygjan er hvorki of þröng né of vlð. Stroffiö á hnésokkunum er breitt og hindrar ekki blóðrásina. Heildsöiubirgðir: cÁvneriólzcif sími 82700 Auglýsingastofa Gunnars

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.