Vikan - 02.05.1985, Side 6
nema viö tvær tjarnir sem
þarna eru. Hraungrýti er
komið fyrir í garðinum eft-
ir litum. Hraungrjótið er
ýmist með eða án mosa,
mest grámosa, og inni á
milli er plantað lágvöxnum
íslenskum jurtum og stein-
brjótum. Á sumrin eru þar
einnig fjölær blóm eins og
baldursbrá og kornblóm og
á vorin litskrúðugir vor-
laukar. Öllum blómum er
raðað niður í garðinn eftir
litum og þess vandlega
gætt að þar ríki fyllsta
samræmi. Þarna eru einn-
ig tré og runnar, svo sem
lerki, greni og birki, birki-
kvistur, mispill og víðir.
Garðurinn leit ekki svona
út þegar þau Uffe og Guð-
björg tóku við honum. Hon-
um var gjörsamlega um-
bylt í höndum þeirra. Byrj-
að var á að skipta alveg um
mold og síðan voru þau tré
sem fyrir voru flutt á aðra
staði sem betur hentaði í
nýja garðinum. Mosa og
hraungrýti fá þau á ný-
byggingarsvæöum, þar
sem hvort eð er er verið aö
raska öllu, og benda þeim á
sem hyggja á mosatöku að
gera slíkt hið sama en
ganga ekki út í óspillta
náttúruna og rífa þar upp
grjót og gróður til þess að
hafa með sér heim.
Það er ekki mikil vinna
að halda þessum garði við.
Þaö þarf aðeins að reyta
smávegis af arfa og ill-
gresi, þarna þarf ekki að
eyða deginum við slátt og
rakstur og rétt er að benda
á að þarna er aldrei borinn
á áburður.
Þar sem svo mikið er af
mosa í garðinum er hann
fallegastur í sól eftir rign-
ingu þegar litirnir eru hvað
skærastir. Mosinn heldur
fegurð sinni allan ársins
hring og reyndar er garður-
inn einnig fallegur á vet-
urna, ekki síst í snjó. Grjót-
ið, tjarnirnar og trén
mynda eins og fallegt
snævi þakið landslag.
Þannig þjónar garðurinn
því ætlunarverki að vera til
augnayndis eigendum sín-
um og vegfarendum hvort
sem ríkir vetur, sumar, vor
eöa haust og hvernig sem
veöriö er, en það er einmitt
það sem stefnt var aö.