Vikan - 02.05.1985, Síða 22
Vísindi fyrir almenning
Á
eftir
Harry Bökstedt
Tóbakskirtill í heilanum?
Eftir nýjustu rannsóknum aö
dæma á tóbakshungrið, þessi
áleitna fíkn í reykinn, upptök sín í
afskekktum skika heilans. Þar er
dálítil þyrping heilafrumna sem,
eftir öllum sólarmerkjum að
dæma, eiga þátt í að gera menn
háða reykingum og reyndar
einnig áfengi og öðrum
fíkniefnum. Þá kann einnig að
vera að unnt sé aö berjast gegn
þessum innbyggða tóbaksdraug
með efni sem heitir klónídín.
Áður hafa menn tekið eftir að
klónídín dregur úr fráhvarfsein-
kennum en fráhvarfseinkenni er
það kallað þegar morfínistar og
aðrir þeir sem haldnir eru fíkn í
ópíata þjást eftir að þeir hætta aö
neyta lyfjanna. Hið sama kom á
daginn þegar áfengissjúklingar
tóku inn lyf blandað klónídíni við
of háum blóðþrýstingi.
Nokkrir vísindamenn viö
Columbiaháskólann í New York
undir forystu Alexanders Glass-
man hafa nú kannað hvort lyfið
kunni einnig að draga úr tóbaks-
hungri og þannig gera mönnum
auöveldara að hætta að reykja.
Fimmtán stórreykingamenn,
sem allir reyktu meira en 30 sígar-
ettur á dag, tóku þátt í tilrauninni.
Þeir reyktu ekki í þrjá daga. Þó
ekki samfleytt. Fyrsta daginn
fengu þeir klónídín, annan daginn
róandi lyf og þriðja daginn tóku
þeir inn sykurtöflur (gervilyf).
Eins og vænta mátti höföu
sykurtöflurnar engin áhrif. Bæöi
klónídínið og róandi töflurnar
drógu úr óeirö og spennu, en það
eru algeng en væg fráhvarfsein-
kenni sem fólk verður vart viö
sem hættir aö reykja. En auk þess
voru þátttakendur í tilrauninni á
því að klónídínið — og aöeins það
— hefði dregiö úr tóbakshungrinu,
hinni nagandi löngun í sígarettu.
Vísindamenn telja aö þessi fíkn
eigi sér upptök á sama stað og fíkn
í sterkari efni hjá fíkniefnaneyt-
endum.
Allt snýst þetta um ákveðiö
taugaboðefni — noradrenalín.
Mest verður til af þessu efni í ofur-
lítilli frumuþyrpingu sem kallast
„locus coeruleus”. Þaðan liggja
leiðir til mismunandi staða í
heilanum sem þarfnast efnisins.
Það er mikilvægt að nóg sé af
þessu efni í heilanum ekki síst
vegna skapsins. Of lítið er af því
hjá þunglyndu fólki. Nokkur
áhrifamestu lyf gegn þunglyndi
auka einmitt magn noradrenalíns
í heilanum.
En einmitt í sama mund og
menn hafa gert þá uppgötvun að
fíkn í hin ýmsu ávanaefni sé tengd
noradrenalínmagninu í heilanum
komast þeir að öðru sem er álíka
áhugavert. Frumurnar í þessari
tilteknu þyrpingu hafa óvenjulega
marga móttakara eða móttöku-
lykla fyrir efni af ópíumættinni,
einnig hið svokallaöa „eigin
morfín líkamans” (enkefalín).
Þegar efni af þeim hópi bindast
frumunum dregur strax úr fram-
leiðslu á noradrenalíni.
Og klónídín dregur úr nor-
adrenalínvirkni í heilanum. Því
halda menn að komin sé skýring á
því hvers vegna efnið dragi úr
og lini þjáningar þeirra sem
kveljast af fráhvarfseinkennum.
Þegar fíkniefnaneytandi eða
áfengissjúklingur hættir skyndi-
lega neyslunni eykst noradrena-
línmagnið óskaplega vegna fram-
leiðslu í frumum sem áður voru
bundnar fíkniefninu. I verstu
tilvikum kemur þetta gífurlega
noradrenalínmagn af stað ýmsu
því sem kallaö hefur verið frá-
hvarfseinkenni — til dæmis dele-
ríum tremens eða drykkjuæði,
krampa og uppköstum.
Glassinan giskar á að hið aukna
magn noradrenalíns virki eins og
merki og efnið sjálft komi raunar
alls ekki af stað líkamlegum
óþægindum. Þetta merki fær
fíkniefnaneytandann venjulega til
þess að fá sér einn enn eða sprauta
sig aftur. Þetta er hin ósjálfráöa
fíkn sem heldur ofneyslunni gang-
andi.
Stórreykingamaöurinn hefur
vanið sig á að draga úr innri
spennu með því aö fá sér sígar-
ettu. Og þegar hann getur það ekki
verður offramleiðsla á nor-
adrenalíni í heila hans. Því geta
efni eins og klónídín komið
rykingamönnum að haldi til þess
að draga úr skyndilegri og ill-
viðráðanlegri tóbakslöngun.
Streita eykur líka noradrenalín-
magniö í heilanum. Þaö er
kannski þess vegna sem fólk
reykir meira undir andlegu álagi
— til þess að róa frumurnar í
„locus coeruleus”?
22 Vikan 18. tbl.