Vikan - 02.05.1985, Síða 24
Einkaspá fyrir hvern dag vikunnar:
Hvað segja stjörnurnar
um afmælisbarnið?
Hvernig er persónuleiki þeirra sem afmœli eiga í þessari viku?
Hvar œttu þeir helst að hasla sér völl i atvinnulífinu?
Hvernig Irtur út i ástamálum þeirra?
Hvernig er heilsufari þeirra háttað?
Við l'rtum á það helsta sem stjörnurnar hafa að segja
um þá sem eiga afmaeli vikuna 25. apríl — 1. maí.
* * * *
2. maf:
Afmælisbarn dagsins er ekki
mikiö gefið fyrir aö láta á sér
bera en getur þó verið fast fyrir
og lætur ekki auðveldlega af
skoðunum sínum. Á hinn bóginn
kýs það gjarnan fyrirhafnarlaus-
ustu leiðina út úr hverjum vanda
og er lítið fyrir að standa í
erfiðleikum og þrasi, vill heldur
lifa fyrirhafnarlitlu lífi og er gefiö
fyrir þægindi. Þrátt fyrir allt þetta
er því sýnt um að stjórna því sem
það á annað borð tekur aö sér af
skynsemi og fyrirhyggju og líður
þá hvað best þegar það veit sig
geta orðið öðrum að liði.
Best unir fólk dagsins sér í
hefðbundnum störfum þar sem
nýjungar og framfarir eru ekki
stórstígar heldur hægt að ganga
sem mest að því sama frá degi til
dags, ári til árs.
Vel farnast þessu fólki við
landbúnað, hvort heldur er bú-
skapur með skepnur eða
garöyrkjustörf, þó ekki sem frum-
býlingum. Því lætur einnig vel að
vinna hvers konar hefðbundin
verksmiðjustörf og getur einnig
komist vel áfram sem stjórnendur
á þessum sviðum, einkum ef sú
stjórn er fyrir fámennum hópi.
Sá sem á afmæli í dag er tals-
vert gefinn fyrir samskipti við hitt
kynið og verður þar vel ágengt.
Hins vegar er tilfinningalíf af-
mælisbarnsins talsvert viðkvæmt
og þess vegna hætt við að ástar-
brautin verði þónokkrum þyrnum
stráð. Líkur benda til að þegar
loks til hjónabands kemur geti það
orðið ágætlega farsælt, en af-
mælisbarnið skyldi gæta þess að
velja sér ekki maka sem er harður
ílund.
Gera má ráð fyrir að heilsufar
afmælisbarnsins verði að öðru
jöfnu gott, einkum ef það nær að
festa sér sess á þeim starfsvett-
vangi sem því hentar, en þó má
búast við einhverjum streitu-
tengdum kvillum.
Heillatölur eru 2 og 6.
¥ * * * * 3. maí: ¥ * * *
Þverlyndi og einstrengings-
háttur einkennir afmælisbörn
dagsins. Engu að síður búa þau
yfir miklum kærleika og fórnfýsi
og framúrskarandi þolgæði og
þrautseigju. Mannblendin eru þau
ekki að ráði en hafa þó gaman af
að kynnast nýju fólki og umhverfi
í hófi. Listhneigö eru þau oft,
einkum á sviði tónlistar, og geta
mörg hver náð alllangt á þeirri
braut. Svipað er að segja um rit-
störf sem þessu fólki geta hentaö
einkar vel þar sem það hefur
gjarnan afburðagóða frásagnar-
gáfu.
Á starfssviðinu ætti þetta fólk
helst að finna sér verkefni sem
það getur unnið við án afskipta
annarra. Þar er til dæmis um að
ræða hvers konar handiðnað eða
listiðnað, svo sem gull- eða silfur-
smíöi, vefnað, eða þvíumlíkt. Á
hinn bóginn er afmælisbörnunum
heldur ósýnt um að hafa arð af
vinnu sinni og farnast því betur
efnalega ef þaö getur látið aðra
um að koma afurðum sínum í
verð.
Fólk fætt í dag hefur mikinn
áhuga á hinu kyninu og ber vissa
lotningu fyrir því en er þó ekki að
sama skapi ásthneigt. Venjulega
gengur það þó snemma í hjóna-
band en þverlyndið kemur í veg
fyrir að það geti aðlagað sig
venjulegum sambúðarháttum.
Því má búast viö að hjónaböndin
verði fleiri en eitt, en varla er
hægt að tala um að þau verði
hamingjusöm nema viðkomandi
beri gæfu til að velja sér maka
með alveg einstaka sambúðar-
hæfileika. Oft uppgötvar þetta fólk
um miðjan aldur að hæfilegt
einlífi er það sem hentar því best.
Heilsu hefur fólk dagsins
yfirleitt afburðagóða, allt fram á
efri ár þegar hrörnunarsjúk-
dómar taka að gera vart við sig,
oft á mörgum stöðum því nær
samtímis.
Heillatölur eru 3 og 6.
* ¥ * * * 4. maí: * * * *
Sá sem fæddur er í dag er oft
leiftrandi gáfaður og frumlegur í
hugsun en jafnframt frekur og
íhaldssamur á það sem hann
þykist hafa góða reynslu af. Hann
er ekki gefinn fyrir að vera mikið í
sviðsljósinu sjálfur en nýtur þess
gjarnan að standa á bak við og
vita sig eiga þátt í ýmsu sem
vekur athygli. Afmælisbamið er
djarft í hugsun og athöfnum og fer
gjaman ótroönar slóðir og þrátt
fyrir að það býr yfir talsverðum
mannkærleika sést það stundum
lítt fyrir á því sviði til að koma
fram markmiðum sínum.
Hvað störf snertir getur fólk
fætt í dag víða haslað sér völl með
góðum árangri. Oft er þetta fólk
gætt góðum listrænum gáfum,
ekki síst á sviði myndlistar eða rit-
listar, og getur komið sér vel fyrir
í störfum tengdum þessum listum.
Það hefur ennfremur gott fjár-
málavit og getur því komist vel á-
fram á hinum ýmsu sviðum
verslunar. Almennt ætti það þó
ekki að hafa á hendi bein manna-
forráð þar sem óbilgimi þess
kemur í veg fyrir að það verði far-
sælt á því sviði.
Fólk dagsins hefur mikið
aðdráttarafl á hitt kynið en sinnir
því yfirleitt ekki mikið. Þó elskar
það af miklum ákafa þegar það
elskar og er mjög trygglynt.
Hamingja hjónabandsins er að
verulegu leyti undir því komin að
makinn sætti sig að fullu við skap-
lyndi afmælisbamsins og láti sér
vel líka að spila aðra fiðlu í þeirri
hljómsveit.
Heilsufar er gott að því leyti til
aö alvarlegir eða langvinnir sjúk-
dómar gera yfirleitt ekki vart við
sig fyrr en á efri árum, en yfirleitt
eru afmælisböm dagsins viðkvæm
fyrir flestum umgangspestum.
Heillatölur eru 4 og 6.
24 Vikan 18. tbl.