Vikan


Vikan - 02.05.1985, Síða 25

Vikan - 02.05.1985, Síða 25
* * * * * 5. maí: + + + + + Eins og hjá svo mörgum ööriun togast á nokkrar andstæður í fari afmælisbarns dagsins í dag. Það býr yfir mikilli festu og þolinmæði en samt hefur það ekki úthald til að ljúka þeim verkefnum sem það byrjar á og lætur aðra hafa áhrif á gerðir sínar og hugsanir. Þaö er mjög hugmyndaríkt og hefur auð- ugt ímyndunarafl en verður að sama skapi lítið úr þessum eigin- leikum nema svo vel vilji til aö það sé í samfélagi við annan eða aðra sem geta gripið hug- myndirnar á lofti og látið þær blómstra. í starfi reynir afmælisbarnið í lengstu lög að hliðra sér hjá öllu því sem útheimtir erfiði eða eljusemi. Heppilegasti starfs- grundvöllurinn er á sviðum þar sem hægt er aö ljúka hverju verki fljótt og örugglega og snúa sér að einhverju nýju, eða þá hreinlega vanabundin störf sem gera litla sem enga kröfu til þess að afmælisbarnið hagnýti frumleik sinn og hugmyndaauðgi. Hvað ástafarið snertir getur lífið orðiö ansi fjölskrúðugt hjá af- mælisbarni dagsins. Þar verða andstæðurnar ekki hvað síst áber- andi og afmælisbarnið hefur tilhneigingu til að sveiflast á milli þeirra meira en góðu hófi gegnir. Flestum fer þó svo að lokum að þeir stöðvast í þessari hamingjuleit sinni og yfirleitt bera afmælisbörnin gæfu til að vera farsæl í makavali og eiga eftir það hamingjuríkt hjónaband. Fólk fætt í dag sleppur oftast blessunarlega við öll meiri háttar veikindi en er næmt fyrir umgangskvillum og má gæta þess sérstaklega að leggja ekki um of á taugarnar. Heillatölur eru 5 og 6. *f -¥* *¥■ 6. maí: *f *f Jyi ^f jf Sá sem afmæli á í dag hefur haga hönd og hug, þó ekkert síður til úrvinnslu og uppfærslu en frumvinnslu og sköpunar. Hann er ekki fallinn til mikilla átaka eða er brautryðjandi á einhvern hátt og sumum hættir meira aö segja til þess um of að flýja undan átökum lífsins og leita til þeirra meðala sem mannskemmandi mega teljast. Þetta fólk leitar öðru fremur eftir samskiptum við fólk sem hugsar eins og það og hefur að öllu leyti sömu lífsviðhorf og það og þetta getur orðið mönnum alvarlegur fjötur um fót. Til þess að komast áfram í lífinu og geta notið þess verður að takast á við það, ekki flýja það. Líkamlegt erfiði á ekki við afmælisbarn dagsins en það nýtur sín vel í hvers konar léttum hag- leiksverkefnum sem ekki eru sífelld endurtekning heldur bjóða stöðugt upp á nýja spretti og til- breytingu. Þau afmælisbarna dagsins sem á annað borð ná fót- festu í lífsbaráttunni hafa líka góöa hæfileika til mannaforráða og eru líkleg til aö verða vinsælir stjórnendur sem fremur stjórna með lempni og útsjónarsemi heldur en hörku og óbilgirni. Ekki er það til að létta afmælis- börnunum lífið að mótlæti í ásta- málum er eitt af sérkennum þeirra. Þar er líklegt að hvert skipbrotið reki annað og hjarta- sorgin setji mark sitt á flest yngri árin. En þegar árunum fjölgar rætist oftast úr þessu og þegar til hjónabands kemur verður það yfirleitt hamingjusamt fyrir þann hóp afmælisbarnanna sem ekki guggnar á því að takast á við lífiö. Heilsufariö fer mjög eftir afmælisbarninu sjálfu. Þau þeirra sem gefast upp fyrir erfiðleikun- um munu einnig súpa seyðið af því hvað heilsuna snertir en hin sleppa bærilega við öll meiri háttarveikindi. Heillatala er6. * If if + Jf 7. maí: >f >f Jf if Jf Dulur í skapi er sá kallaður sem á afmæli í dag. Það þýðir að hann flíkar lítt tilfinningum sínum og hugsunum og aðrir vita ekki svo glöggt hvað honum líður. En undir niðri er hann einbeittur og tilfinn- ingaheitur, oftast nær góðum gáfum gæddur og með gott ímynd- unarafl. Stundum hættir honum til aö eiga bágt með að stöðvast við athafnir eða hugsanir og þá er honum tamara að byggja skýja- borgir og loftkastala heldur en stöðvast við að leysa þau verkefni sem fyrir liggja. Afmælisbarn dagsins getur komist allvel áfram í næstum hvaða starfsgrein sem er, að því tilskildu að það sé undir stjóm annarra. Albest láta því þó störf sem á einhvern handa máta skír- skota til listfengis. Mikið er undir því komið að vera heppinn með samstarfsmenn því fólk með þetta skaplyndi á ekki gott með að> lynda við hvem sem er og ef því mislíkar getur það leitt til alvar- legrar misklíðar. Á ástarsviðinu gera afmælis- börn dagsins miklar kröfur en erfið lund þeirra verður til þess að þar verða margir árekstrar. Þó eru hjónabönd afmælisbarnanna oftast nær heldur farsæl og allt upp í hamingjusöm, enda bera þau oft gæfu til þess að velja sér maka sem geta sætt sig við þá skapgerð sem einmitt einkennir afmælisbörnin. Heilsufar afmælisbarnanna er í flestum tilvikum nokkuð gott en þó er þeim nokkuð hætt við sjúk- dómum í innri líffærum. Einnig er þeim nauösynlegt að gæta sín mjög vel á öllum vímugjöfum ef ekki á illa að fara. Heillatölur eru 7 og 6. *f >f lf *f >f 8. maí: *f If )f *f If Sá sem fæddur er í dag hefur járnvilja og kjark til að koma því fram sem honum er virkilega hug- leikið. Samtímis er hann ein- staklega samviskusamur og frið- samur og seinþreyttur til vand- ræða. En þegar hann reiðist þá reiðist hann illa og það verður öllum viðstöddum minnisstætt, ekki síst afmælisbarninu sjálfu sem reiðist fáu meir heldur en missa stjórn á skapi sínu. Ekki hafa öll afmælisböm dagsins leiftrandi námsgáfur en góðar hagnýtar gáfur og getur orðið ágætt úr þeim ef þeim tekst jafnframt að ala með sér nægilegt sjálfstraust. Eins og svo mörg naut eiga afmælisbörn dagsins mjög auðvelt með að koma sér vel fyrir á mörgum sviðum atvinnulífsins. Fólk dagsins lætur mjög vel að starfa að hvers konar ræktunar- störfum, bæöi búskap með skepnum og jarðrækt. Þau geta einnig verið prýðilegir skipuleggjendur, svo sem arkitektar eða verkstjórar, og ekki síður geta þau komist vel áfram í hvers konar viðskiptum. Að öðru jöfnu eru afmælisbörn dagsins líkleg til að afla bærilega mikils fjár en eiga að sama skapi auðvelt með að koma því í lóg svo sjaldan verður mikið afgangs, þó ekki sé hægt að segja að þau séu eyðslusöm. Á ástarsviðinu er fólk dagsins ekki sérlega tilþrifamikið. Það þreifar lítið fyrir sér á yngri árum á þessu sviði en kemur til með að elska af miklum þunga þegar þar að kemur. Makaval er yfirvegað eins og flest annað hjá fólki dags- ins og má búast við að hjónaband- ið verði báðum til mikillar ánægju. Heilsufarslega séð er fólki dagsins nauðsynlegt að vera vel á verði því það hefur ekki mikið mótstöðuafl gegn líkamlegum veikindum. Almennt er þar þó ekki um alvarleg veikindi að ræða en gigt getur valdið verulegum óþægindum ef ekki er frá upphafi reynt að sporna við henni. Heillatölur eru 8 og 6. 18. tbl. Vikan 25

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.