Vikan - 02.05.1985, Blaðsíða 31
4. Eyðimerkurprinsinn
Þær sem falla fyrir þessum eru að
leita að kjassi, faðmlögum og
vilja gjarnan koma sér þægilega
fyrir í faðmi hans. Þarna er
móðurtilfinningin í fullri reisn!
Þessi maður, sem hefur sveipað
sig í mjúk og hlý klæði, er hreint
út sagt ómótstæðilegur. Þú
elskar rómantik — kraumandi
elda, ævintýranætur i faðmi
elskhugans. Mundu — gjöf úr
kasmírhári er tákn þess að þú
viljir taka manninn að þér.
Og rétt er að geta þess að þá
færðu ein að vita hvað undir
þessum mjúku ullarvoðum býr.
5.1 bláum gallabuxum
Innst inni ertu uppreisnargjörn —
og þú leitar hins sama hjá þessum
manni sem klæddur er í gallabux-
ur og er með rök augu. Hann
gefur skit í hefðir og rifnar og
bættar gallabuxurnar sýna að
hann hirðir ekki hót um stöðu-
tákn samfélagsins.
En hann er mjög aðlaðandi
likamlega og þú leggur mikið upp
úr þvi lika — vilt helst einhverja
spennu.
6. Samviskulaus
og duttlungafullur
Þetta er sá upprunalegi, Karlmað-
ur með stórum staf. Leður, stál,
órakaður, brennandi augnaráð og
vottar fyrir ofbeldiskennd. Þú
litur svo á að karlmaður eigi að
vera karlmaður ef þú fellur fyrir
þessum — þeir verði að eiga
frumkvæðið og þú fellur gersam-
lega fyrir dýrslegu aðdráttarafl-
inu. En þú verður samt að vera
sterkur persónuleiki ef þú átt að
geta haft roð við þessum. Hver
litur við kvendi sem hefur ekki
bein i nefinu?
Þú verður að vera nógu töff til
að geta tekið upp töffarahætti
hans, annars verður lif þitt með
honum dans á rósum — og það
ert þú sem dansað verður ál
18. tbl. Vikan 31