Vikan - 02.05.1985, Qupperneq 33
AGGER
lítið
farinn að
róast
Mick Jagger er 41 árs, þriggja barna
faðir og hefur í sjö ár verið með fyrir-
sætunni Jerry Hail. Hann er langt frá
því að vera sestur í helgan stein,
hefur nýverið sent frá sér sólóplötu og
hefur enn gaman af að láta sitthvað
flakka í blaðaviðtölum.
Hér á eftir fer útdráttur úr viðtali sem Jagger átti við
bandarískan blaðamann í vetur því jafnvel frægustu stjörn-
ur þurfa líka stundum að vekja athygli á sér. . .
Mick the Mouth — Mikki kjaftur
— er hann kallaður í bresku
blööunum. Vissulega er hann með
stóran munn, hann Mick Jagger,
og sexí, segja sumir eöa sumar, en
það er ekki þess vegna sem hann
hefur fengið þetta viðurnefni.
Hann hefur alltaf haft gaman af
því að ganga fram af fólki og
hneyksla með stóryrðum og yfir-
lýsingum.
Mick Jagger er nú 41 árs og á að
baki yfir tuttugu ára litríkan feril
sem söngvari Rolling Stones, ótal
styttri ástarsambönd, nokkur
lengri og eitt hjónaband. Hann er
faðir þriggja stúlkna, þá yngstu á
hann með sambýliskonu sinni,
Jerry Hall. Fyrir skömmu kom út
fyrsta sólóplatan hans, She’s the
Boss, en þeir sem þykjast til
þekkja eru sannfærðir um að
þessu sé á annan veg farið því Mick
hefur ævinlega ráöið því sem hann
hefur viljaö og haft sitt fram. Þaö
er kannski eins gott að Jerry Hall
er til í að leika hlutverk hinnar
auömjúku og undirgefnu konu:
„Ég hef alltaf álitiö aö karlmaður-
inn eigi að vera konungurinn í húsi
sínu að það eigi aö gleðja hann og
annast vel.” Hún segir ennfremur
að Mick sé allajafna elskulegur
og kurteis en þegar hann sé á
hljómleikaferðum breytist hann í
sjúklega eigingjarnt karlrembu-
skrímsli. Hann þarf að manna sig
upp í að koma fram, syngja, öskra
og hoppa fyrir framan 85 þúsund
áhorfendur, og þá getur Jerry
ekki þolað að vera nálægt honum.
Bandarískur blaðamaður átti
viðtal viö Mick Jagger í vetur í til-
efni af nýju plötunni en taliö barst
víða og Mick var býsna opinskár
um sjálfan sig og sín einkamál. . .
Um sólóplötuna segir Jagger aö
hún hafi lengi staðið til, aö hann
hafi lengi langað til að breyta
dálítið til og leika með öðrum
mönnum þar sem hann sjálfur
væri í forsvari, óstuddur af félög-
um sínum úr hljómsveitinni. Plat-
an er ekki merki um það að Mick
Jagger sé á leiðinni að hætta í
Rolling Stones. Hann segist inni-
lega ánægður í hljómsveitinni,
andinn sé góður þar og notalegt að
vera einn fimmti af hópnum.
Ástæðan fyrir því að hann hefur
ekki gert sólóplötu fyrr? „Ef til
vill hafði ég ekki nóg sjálfstraust
eöa ef til vill var ég of latur. ’ ’
Mick Jagger og Jerry Hall hafa
veriö saman í sjö ár og litla dóttir
þeirra, Elizabeth Scarlett, er nú
orðin ársgömul og ósköp lík pabba
sínum. Jagger vill ekki giftast
Jerry Hall og segist reyndar
18. tbl. Vikan 33