Vikan


Vikan - 02.05.1985, Page 38

Vikan - 02.05.1985, Page 38
Mikill ermátturvanans Ölafía hafði verið gift einu sinni áður. Nú, maður á svo sem ekkert aö vera að baktala fólk sem ekki getur varið sig og það gat Þorvaldur reyndar ekki því hann lá í kirkjugarðinum, tvær álnir í mold niður, en. . . hann hafði nú samt verið hálfgerður slúbbert. Það hafði til dæmis lýst sér í því að hann eyddi löng- um stundum á veitingahúsum þegar hann fékk útborgað. Þá hafði Ólafía mátt sitja aftur og aftur í hálfkaldri forstofunni, á næfurþunnum bómullarnátt- kjólnum með vekjaraklukkuna í fanginu, og bíða eftir honum. Hversu oft hafði hún ekki mátt bíöa til tvö og bíða til þrjú um morguninn áður en delinn lædd- ist á sokkaleistunum inn um dyrnar í von um að geta laumast óséður inn í svefnherbergi til aö sofa úr sér. Nei, hann hafði ekki verið neitt sérstaklega góður og elskulegur eiginmaður, hann Þorvaldur. Hún hafði líka fengiö að kenna á krumlunum á honum þegar honum mislíkaði að hún sat þarna frammi í forstofu og beið hans í stað þess að verma bóliö hans þegar hann kom full- ur heim. En hann mátti eiga það að hann hafði alltaf verið góður viö börnin. Og skaffað vel. Og það varö maður að virða honum til vorkunnar. Og það er rétt að geta þess í svona eftirmælum eftir hann að hann hafði aldrei ráðist á minni máttar og aldrei látið sig vanta til vinnu. Og það er þó alltaf allnokkuð. Og síðan er líka mál til komið að leyfa honum að hvíla í friði og spekt, tvær álnir í moldu. Nýi eiginmaöurinn hennar Ólafíu var skömminni skárri enda af allt öðru sauöahúsi. Það var ekkert rand eða ráp á vín- stúkur, aldrei neinn svolaháttur, engin syndandi augu eða bjór- þrútnar kinnar, aldrei klipið í kinn eða eyra og aldrei leit hann á aðrar konur. Nei, hann Friðrik gætti vel sinnar vinnu, hann var eftirlitsmaður hjá stóru skipafé- lagi, mjög samviskusamur starfsmaður. Hann fór alltaf á mínútunni að heiman og var alltaf kominn heim á mínútunni líka. I launaumslaginu var líka alltaf hver eyrir sem hann fékk í kaup. Hann var alltaf glaður og ánægður með tilveruna. I stuttu máli sagt, Friðrik prýddi allt sem einn eiginmann mátti prýða. 38 Víkan 18. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.