Vikan - 02.05.1985, Blaðsíða 42
Published by arrangement with Lennart Sane Agency, Karlshamn, Sweden. Originally published by Simon £t Schuster.
Árið 1963 gengst þrettán ára stúlkubarn undir ólöglega fóstureyðingu á
subbulegri lækningastofu í París. . . Fimmtán árum síðar er fjórum glæsi-
legum heimskonum stefnt á fund kvikmyndastjörnunnar Lilíar.
Þær Heiðna, Kata, Maxín og Júdý vita ekki að þeim er stefnt saman og vita
ekki hver tilgangur heimsóknarinnar er. , Jæja, tæfurnar ykkar. Hver ykkar er
móðir mín?” spyr Lilí. . . Árið 1948 eru Heiðna, Kata og Maxín á fínum
heimavistarskóla í Sviss. Tvær þær fyrrnefndu fara í skemmtigöngu upp í hlíð
og verða til þess að bjarga lífi ungrar stúlku sem hafði hrapað niður klettana.
Það er Júdý, 15 ára stúlka frá Bandaríkjunum sem vinnur sem framreiðslu-
stúlka á kaffiteríu glæsihótels. Júdý verður brátt vinkona stúlknanna og einnig
kemur ungur þjónn á hótelinu, Nick, við sögu. Hann verður góður vinur allra
stúlknanna en er bara hrifin af einni þeirra. Smám saman eru fleiri ungir
menn nefndir til sögunnar og ástin blómstrar í snjónum í svissneska fjallabænum.
42 Vikan 18. tbl.