Vikan - 22.08.1985, Blaðsíða 6
Horft til Atlantshafs við suðurströnd Long Island með þjóðfánana I baksýn.
Óskar Magnússon skrifarfrá Washington:
Þyrlur, nautog berfætti
Svona eru brúðkaup í Bandaríkjunum
Þjóðvegur númer 495, hraðbraut
Long Island, liggur eftir endilöngum
Long Island-skaganum í átt að amerísku
brúðkaupi í friðsælu sveitaþorpi. Und-
anfarna daga hafa ættingjar víðs vegar
að úr Bandaríkjum Norður-Ameríku og
frá lýðveldinu Islandi safnast saman í
þorpinu Belport þar sem bara eru ein
umferðarljós. Taka má hægri beygju, í
átt að kirkjunni, þótt rautt Ijós logi.
Nú skal fara fram amerískt brúðkaup
með öllu því sem viðeigandi þykir að til-
heyri í New York og annars staðar í
Bandaríkjunum. Brúðguminn er
Magnús Gylfi Þorsteinsson og brúðurin
Susan Eposito, bæði lögfræðingar:
Magnús Gylfi að íslenskum rétti, Susan
að bandarískum. Austurrískt réttarkerfi
og skíðalönd leiddu þau saman þegar
þau stunduðu framhaldsnám þar.
Magnús Gylfi er sonur Þorsteins
Baldurssonar stórkaupmanns og
Katrínar Magnúsdóttur.
Berfættur milli
Brúðkaupið fer fram í lítilli og
vinalegri kirkju í Belport, heima-
bæ brúðarinnar. Kirkjuna má
helst þekkja á því að á hana hefur
nýlega verið sett nýtt þak. Að
öðru leyti sker hún sig ekki mikið
frá glæsilegum og veraldlegum
einbýlishúsum í sömu götu.
Gestir tínast í kirkjuna hægt og
rólega, allir snyrtilega til fara, þó
hver sé á sína vísu. Reffilegur
maður á miðjum aldri er til dæmis
í ljósbleikum jakka og köflóttum
buxum og við frekari rannsókn
kemur í ljós að hann er berfættur í
skónum. Hann er sterkefnaður og
auk þess einkavinur fjölskyld-
unnar. Honum leyfist því sitthvað
sem öðrum leyfist ekki. Hinir
verða að vera í sokkunum enn um
sinn. Annan karlmann má sjá í
bláum bleiserjakka, hvítri skyrtu
með bindi og í eldrauðum buxum.
Ekki eru vituð nánari deili á
honum. Aðrir eru klæddir á hefð-
bundinn hátt, konur jafnt sem
karlar.
6 VíKan 34- tbl.