Vikan - 22.08.1985, Side 8
margir þjónar. Rölta svo þessi tíu
skref niöur á ströndina þar sem
íslenski og ameríski fáninn blakta
hlið viö hlið.
150 manns
í mat
í garði Eposito-hjónanna hafði
verið komið fyrir geysistóru
tjaldi. Þar var lagt á borð fyrir 150
manns í mat. Dansgólf var í
öðrum væng tjaldsins og auövitað
hljómsveit. Allt var yfirbragð
veislunnar nú orðið slíkt að sögu-
manni þótti sem hann væri
kominn á Southfork Ranch i
Dallas.
Svaramaður brúðgumans stóð
nú upp, hélt stutta ræðu og bað
menn gera sér veitingar að góðu.
Allir gestir klingdu glösum og
íslendingar óttuðust að nú vildu
allir endilega fá að taka til máls.
Sú var þó ekki raunin heldur mun
það alsiða hér í þessu landi að
klingja glösum þegar gestir vilja
aö brúðhjónin kyssist. Almennt er
látið undan slíkum þrýstingi.
Matreiðslumeistarar sneiddu nú
niður heilt naut á diska veislu-
gesta, dans var stiginn eftir
matinn og til að kóróna veislu-
höldin flugu þyrlur yfir svæðið
síðar um kvöldið til að taka loft-
myndir.
Þegar líða tók á veisluna létu
brúðhjónin sig hverfa í einnar
nætur brúðkaupsferð til nærliggj-
andi þorps. Þau þurftu nefnilega
að mæta í morgunverð hjá foreldr-
um brúðarinnar morguninn eftir,
klukkan 10. Er sá dagur í raun
þriðji dagur brúðkaupsins því
kvöldið fyrir brúðkaup þykir við
hæfi að faðir brúðgumans bjóði
fjölskyldu brúðarinnar til kvöld-
verðar. Síðan kemur brúökaups-
dagurinn og svo morgunverðar-
boðið, samtals þrír dagar.
Bara lítið vatn
í sparslið
Síðan kom þjóðvegur 495 aftur
til sögunnar; í þetta skipti til suð-
vesturs, í átt til Brooklyn. í aftur-
sætinu í bíl brúðhjónanna voru
sparslspaði, málningarrúlla,
'lnálningarbakki, pensill og lítið
notaöur sandpappír. Höfuö
tengdasonarins fullt af leið-
beiningum frá lífsreyndum
tengdaföður. Bara lítið vatn í
sparslið, láta harðna vel. Muna
svo eftir að þvo græjurnar og setja
þær á sinn stað í bílskúrnum. Það
tók ekki nema klukkustund að
keyra frá Long Island til
Brooklyn. Brúðkaupsferðin var
búin. Skyldi nokkurn tímann
verða íbúð úr þessu?
Svaramaður brúðgumans, Baldur Þorsteinsson, ávarpar gesti i upphafi veislunnar.
Þyrlur flugu yfir og tóku loftmyndir. Brúðhjónin fylgjast með af bryggjunni.
Dansað i tjaldinu við undirleik hljómsveitar.
8 Vikan 34* tbl.