Vikan - 22.08.1985, Page 9
13 ÍNÆSTUVIKU:
Gísli Rúnar
situr fyrir svörum í forsíðuviðtalinu að þessu sinni. Gísli
hefur alltaf svo mikið fyrir stafni að það mun vera langt
síðan hann sá til sólar síðast.
Lífsreynsla: Kallaður upp í bíó
Haraldur Guðjónsson vann við það á sínum tíma að gera
tundurdufl óvirk. Hann rif jar upp þessa iðju sína.
Úr sjónvarpi í sviðsljósið
Fjórir menn, sem hafa allir haft afskipti af pólitík og fjöl-
miðlum, eru spurðir út í það hvort sjónvarpið hafi orðið
þeim stökkpallur.
Vatnaskógur
Einn af strákunum, sem voru í Vatnaskógi í sumar, segir
frá dvölinni þar.
Maðurinn og landið hans
Ásgeir Hannes tók hús á Kristleifi á Húsafelli í sumar.
Viðtalið er skemmtilegt og auk þess koma fram margs
konar skemmtilegar upplýsingar um Húsafellssvæðið.
Konur og getnaðarvarnir 1880 — 1920
Viðtal við Kristínu Ástgeirsdóttur sem hefur kynnt sér
takmarkanir barneigna á þessu tímabili. I viðtalinu
kemur meðal annars fram að textinn við „Göngum við í
kringum einiberjarunn” er kannski ekki allur þar sem
hann er séður.
TALBOT SAMBA
Peugeot 205 GL og GR.
Mjög sparneytinn.
Vélarstærðir 1124 cc og 1360 cc.
Framhjóladrifinn.
4eða 5gíra.
5dyra.
Talbot Samba GL.
Mjög sparneytinn.
Vélarstærðir 1124 cc og 1360 cc.
Framhjóladrifinn.
4gírar.
6ára ryðvarnarábyrgð.
Hafrafell hf.
Vagnhöfða 7 Símar: 685211 og 685537
AXltVlKVONOS
a%os
. 34, Í*>1. Vikmn ^ J