Vikan - 22.08.1985, Side 22
Hjartalaga endi pedalasveifarinnar rennur eftir öxulfletinum sem sést á miðri myndinni. Árangurinn af samspili
þessara skringilega löguðu hluta er mishraður gangur pedalans þannig að hjólreiðamaðurinn spyrnir og getur
svo slakað á.
Nýjasta tækni fyrir hjólreiðamenn
— betri nýting fótorkunnar
Áhugamenn um orkusparnað
þeysa gjarnan um á reiðhjólum.
En þau farartæki nýta orkuna
ekki eins vel og skyldi, eða svo
segir Bandaríkjamaðurinn Larry
Brown, fyrrverandi verkfræðiráð-
gjafi, útskrifaður frá MIT-háskól-
anum. Honum fannst tími til kom-
inn að bæta hönnunina.
Larry lét ekki sitja við orðin
tóm. Hann greip pennann og
hannaði nýtt drif fyrir reiðhjól og
gaf því nafnið Powercam. Drifið
gerir það að verkum að maður
þarf færri snúninga með
pedölunum til að ná sama afli og á
venjulegu hjóli. Miðaö við sömu
líkamsorku kemst hjólreiða-
maðurinn með Powercam lengra
á sínu hjóli en sá sem er á venju-
/
legu, keðjudrifnu hjóli. Lífeðlis-
fræðingar hafa sýnt fram á aö
með sama kalóríubruna kemst sá
sem er á Powercam-hjóli lengra.
Jafnvel þótt hreintrúarmenn
hristi hausinn fer þeim fjölgandi
sem sigra í hjólreiðakeppnum á
Powercam-hjólum.
Flestir kannast við venjuleg
reiðhjól sem maður knýr áfram
með því að stíga tvo pedala á
sveifum sem snúa keðjuhjólinu.
Þetta keðjuhjól snýst í hringi og
snýr þar með afturhjólinu af því
að þau eru samtengd með keðju.
Kannski vita ekki eins margir að
hjólreiðamaðurinn nær bestri
orkunýtingu með því að hjóla 60
snúninga á mínútu.
Hægt er aö komast hraðar með
því að breyta hlutfalli keðjuhjóls
og afturhjóls þannig að afturhjóhð
snúist fleiri snúninga og hjólið
komist á meiri hraða. En þá
þyngist stigið fyrir hjólareiða-
manninn, hann þarf að stíga fast-
ar og í keppni getur hann ofreynt
hnjáliði og skemmt þá.
Keppnismenn á reiðhjólum hafa
því horfið frá bestu orkunýtingu á
60 snúningum og fara hraðar með
því að hjóla hraðar; þeir snúa
keðjuhjólinu 90 til 120 snúninga á
mínútu. Þeir reyna líka að jafna
átakið og dreifa því yfir allan 360
gráða snúning pedalans með því
að stíga niður OG toga upp með tá-
klemmum sem festa fæturna við
pedalana.
Ef við hugsum okkur keðju-
hjólið sem klukkuskífu þá skila
fæturnir mestri orku á þeim hluta
hringferilsins sem jafngildir
bihnu milli klukkan eitt (litli
vísir) og klukkan fimm. Afgangur
snúningsins er nokkurs konar
dauður hluti; þar tekur fóturinn
mun minna á.
Larry Brown vissi þetta að sjálf-
sögðu og hannaði drif sem er sér-
hæft til að taka við aflinu á þeim
hluta hringsins sem fæturnir skila
mestri orku. Tilfinningin fyrir því
að hjóla verður talsvert öðruvísi
en maöur á að venjast, Ukist
fremur því að ganga upp stiga —
maöur stígur, hvílir og stígur. Og
kapparnir eru þegar teknir aö
sigra á Powercam-hjólum.
Á venjulegu reiðhjóU eru
pedalasveifar og keðjutannhjól
föst saman en laus í sundur í
Powercam-drifi (sjá mynd). Á
biUnu milli klukkan eitt og fimm
fer sveifin hraðar en keðju-
hringurinn. Á afgangi snúningsins
fer sveifin hægar»Maður spyrnir
fótunum niður þar sem átakið er
mest en síðan slakar hjólreiða-
maðurinn á og lætur snúnings-
tregðuna bera sveifarnar þar til
þarf að taka á aftur. „Maður nær
talsverðri hvUd þann hluta af
hringnum sem ekki þarf að
spyrna,” segir Larry Brown.
Þar sem átakið er mest á
réttum stað finnst hjólreiðamann-
inum fyrirstaðan UtU og hann
getur haft gírahlutfaUið hærra án
þess að meiða hnén. Ef gírahlut-
faUið er hærra þarf ekki að stíga
eins oft. Bandaríkjamaðurinn
Scott Dickson, sem fyrstur landa
sinna lauk 12.000 kUómetra hjól-
reiðakeppni mUli Parísar og
Brest, segist hafa sparað sér
150.000 pedalastig á leiðinni með
því að nota Powercam. Og Jim
Cerrato, sem setti nýtt met á 3000
kílómetra leið mUli Texas og
Kanada, notaði Powercam til að
hUfa fótunum.
Rannsókn á súrefnismettun
blóðsins á æfingahjóU með og án
Powercam leiddi í ljós að súrefnis-
magnið var minna hjá þeim sem
voru á Powercam-hjólum. Þar eð
súrefnisnotkun gefur vel til kynna
hve mikU orka er notuð nýttist
orkan betur þegar Powercam var
notað.
Því miður geta ekki alUr notað
þetta nýja drif. Bygging þess
veldur því að ekki er hægt að taka
á því létta spretti. Það nýtist hins
vegar vel á löngum leiðum þar
sem úthaldið skiptir höfuðmáU.
Þetta er tilvaUö tæki fyrir venju-
lega hjólreiðamenn sem setjast í
hnakkinn sér til heilsubótar, án
þess að ætla að láta gæðinginn
geysast áfram.
22 Vikan 34. tbl.