Vikan - 22.08.1985, Síða 29
Þetta er leikur A-liðsins á móti Breiðabliki þar sem A-liðið tapaði því miður
1—4 en við áttum nú samt leikinn (ekki vera fúlir, Breiðablik).
maturinn var klukkan átta. Viö
boröuöum morgunmat alla
dagana á veitingastað sem heitir
Skútinn. Viö áttum svo aö keppa
við Reyni, Sandgerði, kl. 20
mínútur í 10. Þá keppti A-liöið hjá
okkur en B-liðið keppti svo
klukkan 20 mínútur yfir 10. A-liöiö
vann 4—0 en B-liðið vann 2—0.
Viö borðuðum hádegismat og
kvöldmat á Bjössabar. Það var
góður matur þar. Við fengum
tvisvar djúpsteiktan fisk, tvisvar
hamborgara, einu sinni kjúkling
og einu sinni steik og einu sinni
þurftum við að borga matinn
sjálfir og fengum okkur pylsur.
Klukkan 1 kepptum við á móti
Breiðabliki. A-liðið tapaði 1—4 en
það var jafntefli hjá B-liðinu, 1—1.
Klukkan hálffjögur fórum við í
sund. Laugin var bara upphituð og
vatnið salt. Síðan fórum viö að sjá
menn spranga í klettunum. Sumir
fóru í skólann. Um kvöldið var
keppni í knattþrautum og viö
stóðum okkur bara vel. Þar sem
þessi keppni var voru grillaðar
pylsur. Halldór í okkar liði átti af-
mæli þennan dag og fékk senda
sælgætisköku að heiman. Við
borðuðum hana um kvöldið áður
en við fórum að sofa.
3. DAGUR
Næsta dag fórum við eftir
morgunmat á innanhússmótið. Já,
við fengum kókópuffs, komfleks,
brauð og mjólk í morgunmat á
Skútanum. Við máttum velja. Við
urðum í 2. sæti í okkar riðli í A-
liðinu og komumst ekki áfram og í
B-liðinu var þetta eins. Síðan
fórum við heim í skólann og svo að
borða kjúkling í hádeginu. Síðan
fórum viö að keppa við Fylki. A-
liöið vann 4—0 en B-liðið vann 2—
0. Mamma hans Benna, sem var
meö í ferðinni, gaf okkur Öpal út á
það að við unnum. Við borðuðum
kvöldmat á Skútanum en fórum
síðan á kvöldvöku í íþróttahúsinu.
Það var mjög gaman. Jón Páll
kom í heimsókn og skemmti okkur
og lét fyrirliöa liðanna reyna að
halda á steinum. Það var líka
breikað. Þegar við komum aftur í
stofuna okkar í skólanum sagði
mamma Benna okkur söguna um
Ronju ræningjadóttur. Það var
mjög skemmtilegt og síðan fórum
viðaðsofa.
4. DAGUR
Morguninn eftir vöknuðum við
og burstuðum í okkur tennurnar.
Síðan klæddum við okkur og
fórum að borða morgunmat á
Skútanum. Eftir morgunmat
fórum við aftur í skólann og
klæddum okkur fyrir leikinn viö
Akranes. Og svona fór staðan við
ÍA. Það var jafntefli hjá B-liðinu,
1—1. ÍA komst áfram en ekki
Valur. 1 A-liðinu var staðan svona
0—0 og Valur komst heldur ekki á-
fram þar. Eftir þetta fórum við
heim í skólann en síðan að keppa
við Tý. A-liðið vann 7—6 eftir víta-
keppni. B-Iiðið tapaði á móti KA,
4—2. A-liðiö keppti svo við Þór í
Vestmannaeyjum um 5.-6. sætið
og við urðum í 6. sæti. B-liðið
keppti við ÍBK og tapaði 2—0 og
varð í 8. sæti hjá B-liðunum.
Nú fórum við í skólann og skipt-
um um föt og fórum á bíó. Þetta
var mynd með Bud Spencer og
hún var sko frábær. Eftir bíó
fórum við í skoðunarferð. Við
fórum á Náttúrugripasafniö og
svo sýndi maöurinn í rútunni
okkur húsið sem Ásgeir Sigurvins-
son er að láta byggja fyrir sig í
Vestmannaeyjum. Það er rosa-
lega stórt, fleiri hundruö fer-
metrar og Ásgeir ætlar aö flytja
þangað þegar hann er hættur í at-
vinnuknattspymu í útlöndum. Við
fengum líka að sjá mynd í kletti en
hún var alveg eins og fíll. Svo
sáum við stað þar sem ekki hafði
verið land áður en það gaus í Vest-
mannaeyjum. Við fengum aö
grafa hendurnar ofan í sandinn,
það rauk úr sandinum og hann var
mjög heitur. Það er víst hægt að
spæla egg þarna. Svo fengum við
að heyra um Guðlaug sem synti í
land og bjargaðist. Síðan fórum
við í skólann að sofa.
Hjá Skútanum í Eyjum. Allir áttu að fara i röð . . .
. . . og þarna erum við komnir inn i Skútann eftir langa bið. Við þurftum
að bíða mjög lengi hverju sinni.
Það var oft fjör á kvöldin i skólastofunni. Hér eru Sigfús, Helgi, Einar,
Arnar og Thor að spila.
5. DAGUR
Þennan dag vöknuöum við og
fórum auðvitað að borða morgun-
mat á Skútanum. Síðan fórum við
í skólann og A-liðiö þurfti aö fara í
sund en B-liðið keppti viö ÍBK.
IBK vann, 2—0. Við borðuðum
pylsur í hádeginu og þetta var
eina máltíðin sem við þurftum að
borga af vasapeningunum, hitt
var innifalið. A-lið keppti við Þór
og B-liðið horfði á. A-liðið tapaði í
vítakeppni eftir jafntefli. Síðan
fórum við í skólann og pökkuðum
dótinu okkar, aftur að borða á
Skútanum og síöan fórum við á
lokaathöfnina um kvöldið. Það
var ofsalega gaman. Þar var
kosinn markmaður mótsins, leik-
maður mótsins, hann var ofsalega
líkur Maradonna, svo var kosinn
markakóngur og prúðasta lið
mótsins. I matsal var prúöasta
liöið Víðir, Garði, en í skólanum,
þar sem við sváfum, var líka
Víðir, Garði, og Breiðablik. A-liðiö
hjá Val varð í sjötta sæti af 20 en
B-liðið í áttunda sæti af 20. Svo
fórum við í skólann að sofa.
6. DAGUR
Við vöknuðum klukkan eitthvað
um sex um morguninn og fengum
morgunmat í skólastofunum, öll
liðin; snúða, rúnnstykki og svala.
Síðan fórum viö meö Herjólfi
klukkan hálfátta og allir fengu
snúða úr bakaríi, svala og mynd
af Ásgeiri Sigurvinssyni áður en
þeir fóru í skipið. Veðrið á leiöinni
var frábært því það var blanka-
logn og skipið vaggaði ekkert. Svo
fórum við með rútu til Reykja-
víkur og þá var ferðin búin.
34. tbl. Vikan 29