Vikan - 22.08.1985, Blaðsíða 30
Hvernig ertu
í ástum
?
Ekki er hægt að leggja mælistiku á ást. En þó ekki sé
hægt að mæla ást er oft hægt að meta hana. Hún getur
verið veitt af örlæti, eigingirni, vanþroska . . . Í rauninni
eru litir spilanna dæmi um mismunandi eiginleika í ástum. í
þessu persónuleikaprófi geturðu athugað hvaða lit þú færð.
Hægt er aö skipta ást í tvo
meginflokka. Fyrst er það ást full-
þroska fólks sem fátt bítur á. Hún
gerir ekki kröfur og er ekki eigin-
gjörn. Hún er uppbyggjandi og'
reynir ekki á taugarnar og hana er
oft hægt aö skilgreina í orðum.
Hins vegar er svo ást hins van-
þroska sem er eigingjörn og
bamaleg. Afbrýðisemi, tilætlunar-
semi og ósjálfstæði eru einkenni
hennar. Þeir sem elska á þann
hátt eru venjulega hræddir við að
verða einmana, eru óöruggir með
sig og tortryggnir og þeim gengur
illa að gera nokkuð upp á eigin
spýtur. Hvort tveggja getur búið í
sömu manneskjunni og þá er um
að gera að þroska jákvæöu eigin-
leikana og reyna að losa sig við
hina. Með því að svara eftirfar-
andi spurningum ætti að verða
auðveldara að sjá hvernig hver og
einn elskar í raun og veru.
Yfirleitt flokkast fólk í annan
hvorn þessara hópa en stundum
verður að lesa báðar lýsingarnar
til að fá niðurstöðu.
1. Ástinerþér:
a. Að þurfa aldrei að segja
„fyrirgefðu".
b. Að gefa meira en þú ætlast til að
fá til baka.
c. Tilfinning sem þú getur ekki
skilgreint.
2. Ef þú ert ein(n) heima með
bilað sjónvarp á sunnudags-
kvöldi:
a. Hringirðu í einhvern.
b. Finnur þér bók að lesa.
c. Nýtur tímans og reynir að finna
þér jafnvægi í tilverunni.
3. Ef ástvinur þinn kemur til þín
og kyssir þig annars hugar, hvaö
dettur þéríhug?
a. Hvað hef ég gert af mór?
b. Æi, var hann (hún) nú að rifast
við einhvern?
© AMEUR0PRES8
c. Best að ég reyni þetta við
hann (hana).
4. Ef þið hafið ólíkar skoðanir á
einhverju, hvað þá?
a. Þykistu vera sammála en ert
það ekki?
b. Samþykkirðu sjónarmið hans
(hennar) til að sleppa við deilur?
c. Heldurðu fast við þína skoðun?
5. Hvað er tryggð í þínum aug-
um?
a. Skip sem kemur og fer.
b. Tvö á sama báti.
c. Jafnnauðsynleg ástinni og
hafið er skipinu.
6. Ef þið fariö í frí hvort í sínu
lagi, finnst þérþá:
a. Að þú brennir af þrá til hans
(hennar)?
b. Að þú takir því með þögn og
þolinmæði?
c. Að þú hugsir alltaf til hans
(hennar) en án þess að gera læti út
af því?
7. Ef þú ættir að koma ást þinni í
orð, hvað af þessu kæmi næst því ?
a. Ég elska þig en þarfnast þin
ekki.
b. Ég þarfnast þin af þvi ég elska
þig-
c. Ég elska þig af þvi ég þarfnast
þin.
8. Ef þú ættir töfrasprota myndir
þú breyta ástvini þínum í:
a. Tæra lind til að drekka úr.
b. Litið, spegilslétt vatn til að
spegla þig i.
c. Hvitfyssandi öldur sem þú gætir
baðað þig i.
9. Hvað er þér mest virði?
a. Að elska.
b. Að vera elskaður (elskuð).
c. Að vera ekki svikin(n).
10. Ef þér væri boðinn ástar-
drykkur í draumi, hvernig liti
hann út?
a. Eins og freyðandi nýmjólk.
b. Eins og hunang.
c. Eins og dumbrautt vín.
11. Þegar þú ert að hugsa um
ástarsamband, hvað gerir þú þá?
a. Vegur og metur kosti og galla.
b. Gætir þess að spyrja sjálfa(n) þig
ekki ágengra spurninga.
c. Gælir við tilhugsunina um traust
og bjart andrúmsloft ykkar á milli.
12. Hvað finnst þér skipta mestu
máli í góðu ástarsambandi?
a. Hreinskilni í umræðum um
sambandið svo það verði ekki mis-
skilningi að bráð.
b. Næmi og skilningur, ekki orð.
c. Skynsemi; ef maður er skyn-
samur og niðri á jörðinni er öruggt
að ekkert kemur á óvart.
13. Ef ástarsambandi lýkur finnst
þér að:
a. Þið séuð tveir aðskildir hringir.
b. Brostinn hringur og þið hvort
um sig stakur hálfhringur.
c. Einn hringur standi eftir.
14. Ef þið breytist í dýr í draum-
um þínum, hvað er ástvinur þinn
þá?
a. Kötturinn sem fer sinar eigin
leiðir.
b. Fallegur svanur.
c. Sætur, litill apaköttur.
15. Hvernig geturðu ímyndað þér
hamingusamt tré?
a. Ekki höggvið niður.
b. ískógi.
c. í frjóum jarðvegi.
30 Vikan 34. tbl.
x