Vikan - 22.08.1985, Page 34
Last Call
for Alcohol
fleiri staðir til að spila á. En þetta
sé nú ekkert líkt því sem það var
áður þegar hljómsveit var að æfa í
hverjum bílskúr og allir höföu nóg
aðgera.
„Ég man að við höfðum alltaf
það mikið að gera að við spiluðum
alltaf að minnsta kosti tvö kvöld í
viku og oftast þrjú kvöld. Það var
fastur rúntur sem við vorum alltaf
bókaðir á, kannski ár fram í
tímann: Hvoll, Festi og Tónabæ.
Síðan spiluðum við oft í Klúbbn-
um, Stapa og Ungó.”
Stöðug mannaskipti
og uppstokkun
Þeir Gunnar og Björgvin spil-
uöu í mörgum hljómsveitum í
gegnum tíðina; stundum spiluðu
þeir í sömu hljómsveitinni en oftar
sinn í hvorri. Það var alltaf ein-
hver að hætta í einni hljómsveit og
byrja í annarri en í blaðaviðtölum
harðneituðu viðkomandi menn því
að þeir væru að hætta. Daginn eft-
ir mátti svo lesa í blöðunum að
þeir væru hættir. Gunnar spilaði
með hljómsveit sem hét Stofnþel.
(Nafnið var skýrt þannig: „Þel”
er íslenska merking orðsins „feel-
ing” og stofn annaðhvort „upp-
haf” eða „undirstaöa”.) Úr þeirri
hljómsveit fór hann, ásamt söngv-
ara hennar, Herbert Guðmunds-
syni, yfir í Tilveru. Síðan hætti Til-
vera — í fullu bróðerni, eins og
það hét — og þaðan lá leið Gunn-
ars í Svanfríði árið 1972. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
var hljómsveitin nefnd í höfuðið á
undirfagurri þjónustupíu í Glaum-
bæ. Söngvari Svanfríðar var Pét-
ur Kristjánsson. Hljómsveitin,
varð óhemjuvinsæl og talað var
um að þarna væri kominn keppi-
nautur vinsælustu hljómsveitar-
innar, Trúbrots.
Svanfríður var líka kosin vin-
sælasta hljómsveitin í vinsælda-
kosningum Tónabæjar og talaö var
um aö Náttúra væri ekki eins vin-
sæl þar, en í henni var Björg-
vin, og að hún væri hljómsveit
sem nyti sín betur á öðrum og
rólegri stöðum. Svanfríðarmenn
gáfu sjálfir út plötu þar sem útgef-
endur voru ekki tilkippilegir. í
Kanaútvarpinu voru vinsælda-
kosningar milli þriggja íslenskra
hljómsveita: Trúbrots, Náttúru og
Svanfríðar. Sú síðastnefnda vann.
Um Svanfríði og Náttúru segir í
blaðadómi Jens R. Ingólfssonar:
„Náttúra er blóm sem sprakk
fallega út, Svanfríður raketta sem
laumaðist hljóölega aftan að fólk-
inu og sprakk svo með hávaða og
eldglæringum.”
Á sama tíma er komin upplausn
í Náttúru. 1973 hættu þrjár vinsæl-
ar hljómsveitir, Svanfríður, Nátt-
úra og Ástarkveöja, og í þeirra
stað kom Pelican. Úr Svanfríöi
komu þeir Gunnar og Pétur en
Björgvin úr Náttúru. Pelican var
hljómsveit sem strax sló í gegn.
Nafniö var haft alþjóðlegt þar sem
nöfn eins og Svanfríður vöfðust
fyrir Könunum uppi á velli en þar
spiluðu íslenskar hljómsveitir oft.
Svanfríður varð að „Scanfridur”
eða „SwanFreak”.
„Last Call for Alcohol"
„Eg man eftir skemmtilegu at-
viki sem gerðist þegar við vorum
að spila uppi á Velli einu sinni,”
segir Björgvin. „Alveg undir lokin
á ballinu kom framkvæmdastjór-
inn upp á svið og stoppaði hljóm-
sveitina í miðju lagi og sagöi
„Last Call for Alcohol.” Eyðilagöi
hann þarna lagið til að segja aö
verið væri að loka barnum. Næstu
helgi á eftir erum við svo aö spila
þarna aftur og kemur þá ekki gæ-
inn æðandi upp á svið aftur. Geiri
var í miðju trommusólói og segir:
„Ég stoppa sko ekki neitt.” Gæinn
fór þá bara og tók af honum
kjuðuna og tilkynnti síðan að það
væri sprengja í húsinu og allir
yrðuaðfara út.”
Ekki halda þeir strákarnir að
íslenskar hljómsveitir í dag fari
mikið upp á Völl að spila, kannski
einna helst Rúnar Júl. og þeir, því
enginn peningur sé í því.
„Það var nú ekki merkilegt sem
við fengum,” segir Gunnar.
En Björgvin segir að þaö hafi
verið þess virði að fara þarna upp
eftir því þó þeir hafi ekki haft mik-
inn pening upp úr krafsinu þá
fengu þeir alltaf bjór og steik. Og
báðir voru sammála um að það
hefði verið spennandi aö spila
þarna því það hefði verið eins og
að vera kominn til útlanda.
Stuttbuxur í Ameríku
Gunnar hætti síöan í Pelican en
Björgvin hélt áfram. Pelican fór
í ævintýraferð til Ameríku að
spila.
„Ég man eftir einni góðri sögu
af Pétri í Ameríkuferð. Reyndar
held ég hann hafi verið að spila í
Póker þá. Þeir voru í Mississippi
og það var hryllilega heitt. Pétur
ætlaði að kaupa sér stuttbuxur og
fann þrennar í pakka á góðu veröi
í einni búðinni. Hann er svo að
spóka sig í nýju stuttbuxunum
um allt en skilur ekkert í því hvað
allir glápa á hann né að honum
skuli vera vísað út úr verslunum
og veitingahúsum. Það er svo ekki
fyrr en farið er að skoða myndir,
sem teknar voru af honum í stutt-
buxunum, að sannleikurinn kem-
ur í ljós: Hann haföi keypt nær-
buxur en ekki stuttbuxur.”
„Já, þaö skeði alltaf allt í kring-
um Pétur,” segir Gunnar, „ég
man til dæmis eftir einu frá
Englandsferð. Á þessum tíma
hafði Pétur mjög gaman af því að
taka niður um sig við hin ýmsu
tækifæri. Við erum þarna að labba
í úthverfi þar sem ekki nokkur
sála var á ferli og Pétur er að
sprella og rífur niður um sig. En í
því kemur fyrir hornið tveggja
hæða strætisvagn, fullur af fólki.”
Pelicanar i Paradís
Eftir Ameríkuferð Pelicana
kom upp misklíð í hljómsveitinni.
Pétur vildi skipta um tempó og
æfa upp nýtt prógramm meö
meiri ballmúsík en hinir meðlim-
irnir voru ekki á sama máli og
lyktaði þeirri misklíö með því að
Pétur var rekinn úr hljóm-
sveitinni eftir tveggja ára sam-
starf. En Pétur var ekki lengi að
smala saman í nýja hljómsveit.
Meðal annarra fékk hann Gunnar
til samstarfs og ný hljómsveit leit
dagsins ljós; Paradís. Síðan leið
ekki á löngu áður en Pelicanar
voru komnir í Paradís því Pelican
leystist upp og Pétur krækti í
Björgvin og Ásgeir trommuleik-
ara.
„Paradís var stórfyrirtæki. Ég
held það hafi engin hljómsveit
verið með eins mikið af græjum og
við,” segir Gunnar. Björgvin sam-
þykkir það og bætir viö:
„Við vorum nú alveg brjálaðir í,
græjur. Pétur var alltaf með það
nýjasta og besta. Hann fór
reglulega út til að fylgjast með því
sem var nýtt hjá erlendum hljóm-
sveitum. Ég held við höfum verið
fyrstir meö „synthesizer”. Hann
var kallaður Grímur og hann er
víst ennígangi.”
„Þegar við vorum að spila ein-
hvers staðar fóru aðstoðarmenn-
irnir á staöinn um hádegið til að
stilla upp og gera klárt og viö
komum svo um sexleytið í öðrum
bíl,” segir Gunnar. „Við vorum
með rótara, ljósamann, bílstjóra,
tvo, því við þurftum tvo bíla undir
allar græjurnar, mixermann og
diskótekara, Gísla Svein Loftsson.
Það var sko stíll á þessu hjá
okkur.”
Paradís spilaöi síðan á Lista-
hátíð 1976 og fékk hljómsveitin
yfirleitt jákvæða dóma.
„Viss blöð gáfu okkur krítík eft-
ir því hvernig maður stóð í brans-
anum hverju sinni,” segir
Gunnar. Blööin skrifuðu eftir því
hvort hljómsveitin var hægri eða
vinstri sinnuð. Þjóöviljinn var til
dæmis stundum jákvæður og
stundum neikvæður. Þegar Para-
dís spilaöi á listahátíð fengum við
ágætisdóma nema hjá Þjóðviljan-
um.
„Við vorum nú óttalegir poppar-
ar, spiluðum svona „Duran”fíl-
ingu. Við vorum þarna með reyk-
vél sem var algjörlega mislukk-
uð; virkaði álíka vel og við hefð-
um verið með ketil.” Björgvin
hlær mikið að þessari minningu.
Ánægðir með sitt
Hvað eru þeir svo að gera í dag?
Gunnar hætti þegar þeir voru í
Paradís, haustið 1976. Hann ákvað
að halda áfram námi og lauk raf-
fræðiprófi frá Iðnskólanum og fór
síðan í framhaldsnám í
Tækniskólann. Að námi loknu
starfaöi hann við fagið um tíma en
byrjaði að vinna sem hljóðupp-
tökumaður hjá sjónvarpinu núna í
vor. Hann er mjög ánægður í því
starfi og segist ekki vilja skipta
við Björgvin og vera að spila enn.
„Hann er kominn hinum megin
við gleriö,” segir Björgvin. „Ég
hef nú tekiö mér pásur og hef
ekkert verið að spila með fastri
hljómsveit lengi. Ég hef mest
verið að spila undir á plötum og í
fyrravetur var ég að vinna við
leikhús, spilaði undir í Litlu
hryllingsbúðinni sem var virki-
lega gaman. En núna er ég
kominn á það stig að ég vil helst
vinna að einhverju skapandi og
svo er nú alltaf þessi draumur að
gefa út plötu. Ég er búinn að eiga
tilbúið efni á plötu í meira en ár en
það er erfitt aö fá útgefendur. Ég
hef nú reyndar ekki verið að reyna
að pína þessu inn á þá. Þá er ég
núna í fyrsta sinn að semja músík
fyrir kvikmynd. Þetta er barna-
og unglingamynd sem verið er að
taka upp núna í sumar norður við
Mývatn og verður myndin sýnd í
haust. Þaö hefur verið draumur
hjá mér í mörg ár að gera músík
við mynd.”
Þeir tengjast því aftur í gegnum
kvikmyndina sem þeir segja að
hafi opnað nýjan markað fyrir
tónlistarmenn. Á tímum
popphljómsveitanna hafi sköpun
verið í algjöru lágmarki.
„Það var alltaf svo mikil
keyrsla á böndunum að það gafst
aldrei neinn tími til að vinna að
nýjum útsetningum, sem var
mikill galli,” segir Gunnar. „Það
34 Vikan 34- tbl.