Vikan - 22.08.1985, Qupperneq 35
□
Draumar
var nefnilega prinsipp, a.m.k. hjá
Pétri, aö spila; frekar að fara í túr
sem vitaö var að yrði taptúr, bara
til þess að það sæist um þaö
auglýsing og heyrðist auglýsing
um að við værum að spila, því ef
hljómsveit fékk ekki helgi að spila
þá var hún lásí.”
Hver er þessi S. Kaldalóns?
Allir textar á plötum hljóm-
sveitanna voru á ensku því þær
áttu að slá í gegn í útlöndunum.
En þetta varð til þess að margar
plötur heyröust ekkert í útvarpinu
því þaö var stefna í útvarpinu að
spila ekki íslenska músík með
enskum texta. Björgvin rifjar upp
viðskipti við útvarpið: „Ég man
að við fórum allir niður í útvarp
með nýja plötu að hitta Jón. Hann
sagðist ekki mundu spila íslensk
lög með enskum texta, en hann og
Pétur höfðu tekið þessa stefnu.
Hann fór síðan að finna að plötu-
umslaginu þar sem stóð: Ö.
Oskarsson og B. Gíslason. „Hvaða
menn eru þetta?” spyr hann. Eg
man að við stóðum inni á hljóm-
plötudeild og ég fór í næsta plötu-
bunka, fletti honum dálítið, dró
síðan út eina plötu og sagði svo:
„Hver er hann, þessi S. Kalda-
lóns?” Það kom nú dálítill svipur
áhann.”
Kyrjaðu og þú færð
allt sem þú vilt
í þessu kemur ljósmyndarinn og
vill að þeir drífi sig í einhver dress
en þeir malda í móinn og segjast
ekki komast í þau, ennfremur
segir Björgvin að samkvæmt
kenningum voodoomanna eigi
maður ekki að láta taka mynd af
sér þar sem myndin steli sálinni.
„Múhameðstrúarmenn láta
ekki heldur taka mynd af sér,”
segir Ragnar ljósmyndari.
Gunnar fer þá að spekúlera í því
hvort kollegi þeirra, Herbert
Guðmundsson, láti taka af sér
myndir þar sem hann sé orðinn
búddatrúar. Þá man Björgvin
nýja sögu um Herbert:
„Hann er að kyrja núna alveg á
fullu. Þetta á að virka þannig að
það á allt að ganga upp sem hann
óskar sér. Þaö var til dæmis ekk-
ert mál aö komast í sjónvarpið um
daginn. Hann fór bara heim til
Bryndísar og þégar hún sagðist
vera alveg tilbúin með efni í
þáttinn og að þar ættu nú eiginlega
bara að vera sjómenn í tilefni af
sjómannadeginum þá sagði Hebbi
bara: „Ég er líka sjómaður.” Og
hann komstinn.”
Björgvin sagðist vera búinn að
læra að kyrja hjá Hebba og hann
gæti hæglega kennt Gunnari og
síðan eiga þeim að vera allir vegir
færir.
Spil
Kæri draumráðandi.
Fyrir stuttu dreymdi
mig draum sem mig langar
að fá ráðningu á.
Mig dreymdi að ég væri
með spilastokk og ætlaði að
leggja kapal. Eg lagði niður
spilin eftir settum reglum
og þá sá ég að það vantaði
nokkur spil. Eg fór að leita
og fann tvo eða þrjá gosa,
tígultiu, rauða niu og eitt-
hvað af hjarta og laufi lika.
Ég ætlaði að fara að athuga
hvort nokkur fleiri spil
vantaði en þá vaknaði ég
svo að lengri varð þessi
draumur ekki.
Eg vona að þú getir
hjálpað mér með þvi að
ráða þennan draum.
Með fyrirfram kæru
þakklæti.
Rósa.
Spilin benda eindregið
til þess að tíðinda sé að
vænta í peninga- og at-
vinnumálum þínum í
framtíðinni og þar verði
talsverðar sviptingar. Þú
þarft að vera á varðbergi
gagnvart svikulum mann-
gerðum og fara varlega í
aila áhættu sem þú tekur.
Tveir eða þrír menn koma
þar við sögu og eru mis-
jafnir. Ef þú manst hvort
gosarnir voru rauðir eða
svartir geturðu fengið að
vita að þeir rauðu þykja að
jafnaði betri félagsskapur
en þeir svörtu. Aðrir litir í
spilunum benda til þess að
fremur farsælt sé yfir þessu
brölti þínum þrátt fyrir að
það sé viðburðaríkt og
meiri líkur á að dæmið
gangi upp hjá þér en ekki,
sérstaklega ef þú gætir þess
vel að taka enga óþarfa
áhættu og lítur á þennan
draum sem leiðsögn og
kannski smáviðvörun.
Sprenging
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi draum fyrir
nokkru og langar að fá að
vita hvað hann táknar. Mér
fannst ég vera á vinnu-
staðnum mínum og einn
vinnufélaganna var að hella
upp á kaffi á miðjum
staðnum (ekki á venjuleg-
um kaffistað). Allt i einu
komu eins og smáblossar úr
kaffivélinni (sem hann stóð
hjá) og síðan sprenging, ég
held tvær, mjög öflugar, og
ég prisaði mig sæla og þótt-
ist heppin að ekki kom gat
á gólfið því að á hæðinni
fyrir neðan er mjög eldfim
starfsemi.
Mér brá svo að ég vakn-
aði upp með andfælum og
var með hjartslátt.
Hvað merkir svona lag-
að? Með bestu kveðju,
Draumsóley.
Kæra draumsóley!
Það er ekki góðs viti að
verða fyrir sprengingu í
draumi. Á hinn bóginn
gegnir öðru máli þegar fólk
er vitni að sprengingu en
sleppur sjálft skaðlaust. Á
sama veg er það að dreyma
að maður helli niður kaffi.
Að dreyma að maður sjái
eld er fremur góðs viti ef
maður brennir sig ekki. Ef
allt er dregið saman gæti
þessi draumur bent til þess
að yfirvofandi séu miklar
breytingar og afdrifaríkar á
vinnustað þínum. Líkast til
mun sá sem þú sást hella
upp á kaffíð þurfa að skipta
um starf eða á annan hátt
missa þá aðstöðu sem hann
eða hún hefur haft á
staðnum. Þessar breytingar
munu ekki raska þinni
stöðu til hins verra en
líklegt er að þær muni samt
valda þér nokkru hugar-
angri meðan á stendur.
Gættu samt að því að
þessar breytingar skaði þig
ekki fjárhagslega. I
draumnum eru vísbend-
ingar um að svo geti orðið.
34- tbl. Vikan 35
© King Features Syndicate, Inc., 1978. Wörld rights reserved.