Vikan - 22.08.1985, Page 42
Vinsælir leikarar
Klassapían
Jacqueline Bisset
í fyrra varö Jacqueline 40 ára.
Hún á að baki næstum jafnmargar
kvikmyndir og hefur eytt helmingi
ævi sinnar sem kvikmynda-
leikkona. Þaö var áriö 1965 sem
Bisset hóf feril sinn fyrir framan
kvikmyndavélina. Það var í smá-
hlutverki í The Knack sem
Richard Lester stjórnaði. Þetta og
annað jafnlítið leiddi til þess að
hún fékk fyrsta „hlutverkið” sitt.
Var það í Casino Royale. í þeirri
mynd reyndi hún að tæla og drepa
sjálfan James Bond sem David
Nokkrar kvikmyndir með Jacqueline Bisset sem hægt er aö fá á myndbandaleigum: Day for Night,
The Detective, Rich and Famous,
Bullitt, Class,
Murdor on the Orient Express, Undor the Volcano.
Ævintýri á gúmmíbátum ★ ★
Up the Creek.
Leikstjóri: Robert Butler.
Aðalhlutverk: Tim Matheson, Stephen Furst og James B. Sikking.
Sýningartími 95 mín.
Aðstandendur Up the Creek hafa
greinilega stúderaö hina vinsælu
kvikmynd National Lampoon, Ani-
mal House, áður en þeir lögðu út í
gerð þessarar myndar. Það má
segja að hugmyndin að Up the Creek
sé sú sama, aðeins útfærö á annan
hátt. Og aö sjálfsögöu er enginn John
Belushi til aö kitla hláturtaugar
áhorfenda.
Söguþráðurinn er í stuttu máli aö
Lepetomane-háskólinn má muna
betri daga. Skólastjórinn ætlar sér
að breyta þessu og neyðir fjóra
nemendur, sem eru þekktari að öðru
en námsafrekum, til að taka þátt í
keppni sem er í því fólgin að fara á
gúmmíbátum niður straumþunga á.
Fljótlega verður ljóst að ekki
veröur barist heiðarlega um fyrsta
sætið. Sigurstranglegasta sveitrn fær
til liös við sig keppnisstjórann og
fyllir hann bát hennar af alls konar
tækjum sem eiga að koma í veg fyrir
að aðrir fari fram úr henni. Önnur
sveit frá herskóla er með heilan
farm af sprengiefni. Ekki má
gleyma stelpunum sem mættar eru á
staðinn og gera sitt til aö vinskapur-
inn veröi ekki mikill meðal kepp-
enda. Það á mikið eftir að ske áður
en keppninni lýkur: bátar sprengdir
í loft upp, mönnum rænt, alls konar
skemmdarverk á bátunum, svo
eitthvaö sé talið upp, en að sjálf-
sögðu standa okkar menn uppi sem
sigurvegarar í lokin þótt aldrei hafi
þeir róið báti fyrr.
Það er lítið um dauf atriði í Up the
Creek. Það er mikill hraöi í myndinni
og mörg atriöi nokkuö skemmtileg.
Aðalgallinn er aftur á móti sá aö leik-
ararnir upp til hópa eru ekki nógu
fyndnir. Það má hlæja að ýmsum
uppátækjum og brellum en aldrei að
leikurunum sjálfum. Til þess vantar
þá hæfileika gamanleikarans.
Niven lék í þetta skiptiö.
Næsta hlutverk hennar var með
Albert Finney og Audrey Hepburn
í Two for the Road. Sautján árum
síðar lék hún aftur með Albert
Finney, nú í Under the Volcano.
Leikur hún þar eiginkonu bresks
konsúls sem er drykkfelldur í
meira lagi. Myndin er gerð eftir
margverðlaunaðri bók Malcolms
Lowry.
Milli Two for the Road Og Under
the Volcano er langur listi af per-
sónum sem Bisset hefur leikið og
getið sér gott orð fyrir.
Frami Jacqueline Bisset í Holly-
wood var skjótur. Eftir að Mia
Farrow hætti við að leika í The
Detective fékk hún hlutverkið og á
móti henni lék Frank Sinatra. Og
strax þar á eftir lék hún með Steve
McQueen í klassískri kvikmynd,
Bullitt. Það má segja að eftir þessi
tvö hlutverk hafi hún fest sig í
sessi í Hollywood.
Fljótlega var farið að tala um
Bisset sem kyntákn og voru blaða-
menn og Ijósmyndarar á hælunum
á henni hvert sem hún fór.
Öll þessi athygli og slúðrið sem
fylgdi fór í taugarnar á henni. Hún
fór til Evrópu og gerði Day for
Night með Francois Truffaut sem
leikstjóra. Þar lék hún leikkonu
sem er aö ná sér eftir taugaáfall.
Eftir þá mynd fór hún að verða
vandlátari á hlutverk og hefur
neitað svo til öllum hlutverkum
þar sem lagt er meira upp úr kyn-
þokka en leikhæfileikum.
Það hefur oft farið í taugarnar á
framleiðendum að Jacqueline
Bisset hefur aldrei viljað klæða
sig úr fötunum að nokkru ráði.
Hafa þeir gengið svo langt að
reyna að falsa myndir á
auglýsingaspjöldum oftar en einu
sinni. Má nefna auglýsinga-
spjaldið fyrir The Deep. Spjaldið
sýndi hana neðansjávar og sáust
Æfingin skapar meistarann ★ ★★
The Karate Kid.
Leikstjóri: John G. Avildsen.
Aðalhlutverk. Ralph Macchio, Noriyuki „Pat" Morita og Elisabeth Shue.
Sýningartími 122 mín.
The Karate Kid er hin besta
skemmtun. John G. Avildsen, sem
leikstýrir myndinni, hefur greinilega
tekið viömiðun af annarri vinsælli
mynd sem hann stjórnaði, nefnilega
Rocky. Öll uppbygging myndarinnar
er í líkingu við hana.
Daniel (Ralph Macchio) ernýflutt-
ur til Kalifomíu frá austurströnd-
inni. Hann er fljótur að kynnast
nýjum vinum. Hann lítur hýru auga
Ali (Elisabeth Shue). Þessi aðdáun
hans á stúlkunni hefur vandræði í för
með sér. Fyrrverandi unnusti Ali er
ekki á því aö sleppa henni. Hann er
karatemeistari og fær Daniel að
kenna á því oftar en einu sinni.
Japanskur húsvörður, þar sem
Daniel býr, kann ýmislegt fyrir sér í
karate og eftir að hafa bjargað
honum úr klóm karatestrákanna
tekur hann að sér að kenna honum
sjálfsvarnarlistina. Veröur Daniel
að leggja hart að sér við æfingarnar
sem eru ekki eins og hann hafði
hugsað sér. Meö tímanum kemst
Daniel í góða æfingu og er tilbúinn aö
mæta unnustanum fyrrverandi á
miklu karatemóti...
Því verður ekki neitað að The
Karate Kid er nokkuð spennandi og
húmorinn er aldrei langt undan.
Söguþræðinum fylgir aö sjálfsögðu
popptónlist sem hefur notið nokkurra
vinsælda. Ralph Macchio er stráks-
legur og lítur út fyrir að vera yngri
en hann er. Hann fer virkilega vel
með hlutverk sitt. Hann fellur þó í
skuggann fyrir „Pat” Morita,
þjálfaranum, sem er mjög góöur í
hlutverki hins sjálfmenntaða heim-
spekings. Þrátt fyrir aö The Karate
Kid höfði fyrst og fremst til yngri
áhorfenda ættu samt allir aö geta
skemmt sér yfir þessari ágætu
afþreyingarmynd.
'
!
42 Vikan 34- tbl.