Vikan - 22.08.1985, Side 43
Umsjón: Hilmar Karlsson.
Jacqueline Bisset i þremur hlutverkum. Frá vinstri: Under the Volcano, The Deep og Class.
greinilega brjóstin á henni
gegnum sundbolinn. Það fauk
heldur betur í Bisset þegar hún
frétti af þessu og hafði hún það í
gegn að auglýsingaspjaldinu var
breytt.
Þótt Jacqueline Bisset sé orðin
fertug er hún enn ein af þokka-
fyllstu konum í Hollywood. „I
mörg ár var ég talin vera
kyntákn. I dag vil ég frekar vera
talin þokkafull leikkona.”
Bisset er ein af mörgum leik-
konum sem finnst vera of lítið um
góð kvenhlutverk. Þetta var til
þess að árið 1981 fór hún sjálf út í
að framleiða kvikmynd eftir að
hafa lesið handritið að Rich and
Famous. Fetaði hún þar í fótspor
Börbru Streisand og Goldie Hawn.
Þótt Jacqueline Bisset hafi oft
verið á milli tannanna á blaða-
mönnum hefur hún samt getað
haldið einkalífinu nokkuð sér. Á
tuttugu ára leikferli hafa verið
þrír menn í lífi hennar þótt hún
hafi ekki gifst neinum þeirra.
Fyrst var það leikarinn Michael
Sarrazin, síðan kvikmynda-
framleiðandinn Victor Drai og nú
býr hún meö rússneska ballett-
dansaranum Alexander Gudonov.
I dag er Jacqueline ánægð með
þá stefnu sem leikferill hennar
hefur tekið. Getur hún að
einhverju leyti þakkað John
Huston það. Hann valdi hana í
hlutverk eiginkonunnar í Under
the Voicano, öllum til undrunar.
En hún reis undir ábyrgðinni og
sýnir þar sinn besta leik síöan hún
lék í Day for Night. „Það var
dásamlegt aö vinna með John
Huston. Hann er meöal bestu leik-
stjóra. Og að leika á móti Albert
Finney er stórkostlegt. Þegar
unnið er meö svo góðum lista-
mönnum er eins gott aö standa
sig,” segir Bisset.
Nýjasta kvikmynd Jacqueline
Bisset er sjónvarpsmynd,
Forbidden, þar sem hún leikur
þýska konu sem felur elskhuga
sinn, sem er gyðingur. Gerist
myndin í seinni heimsstyrjöldinni.
Saxófónleikarinn sem flúði ★ ★
Moscow on the River Hudson.
Leikstjóri: Paul Mazursky.
Aðalhlutverk: Robin Williams og Maria Conchita Alonso.
Sýningartími 112 mín.
Er lífiö betra þar sem frelsi ríkir í
borg, eins og New York, eöa í
Moskvu þar sem tjáningarfrelsi er
heft og nauðsynjavara fæst ekki
nema staðið sé í biðröðum? Um það
f jallar Moscow on the River Hudson
á gamansaman hátt.
Vladimir Ivanoff (Robin Williams)
er saxófónleikari í rússneskum
sirkus. Hann býr meö mannmargri
fjölskyldu í lítilli íbúð. Sirkusinn fer í
heimsókn til New York og skemmtir
þar. Vinur Vladimirs, Anatoly, er
ákveðinn í að gerast pólitískur flótta-
maður. Þegar Anatoly mistekst að
flýja ákveður Vladimir að flýja.
Vladimir er frelsinu feginn og er
fljótur aö aðlagast amerískum
siöum. Hann veröur hrifinn af Luciu
(Maria Conchita Alonso). Draumur
hans er að verða saxófónleikari í
stórborginni.
Þegar Lucia vill ekki fara aö búa
með honum, og hann stendur sig ekki
sem skyldi þegar hann fær tækifæri
til aö reyna sig á saxófóninn, finnur
hann einsemdina umvefja sig og
saknar hann þá hinna aumu daga í
Moskvu, þrátt fyrir allt. Hann endur-
heimtir trúna á lífið þegar Lucia til-
kynnir honum að hún sé til í aö fara
að búa meö innflytjanda.
Hinn reyndi leikstjóri, Paul
I__|| 11X0 1 ’MCf
C OU :mi*IA PKrit.’KES Hoaa
Al’M'I.MA/URSKYI ll.M ' /c~g\
ROBIN VILUAMS r, i
"MOSCOtt'ON niE HIIJSON . :
Mazursky, hefur kannað viðfangs-
efni sitt vel. Kemur það nokkuð niður
á gamanseminni sem mætti vera
meiri. Samskipti fólksins eru mjög
eðlileg og Rússamir eru ekki allir
málaðir með svörtu. Leikur í mynd-
inni er til fyrirmyndar. Mest reynir
að sjálfsögöu á Robin Williams.
Hann leggur mikla alúð við þaö sem
hann er aö gera og er saxófónleikur
hans eðlilegur og rússneskan trú-
verðug.
Ævintýramynd fyrir fuílorðna***
Company of Wolves.
Leikstjóri: Neil Jordan.
Aðalhlutverk: Sarah Patterson, Angela Lansbury og David Warner.
Sýningartimi 95 mín.
Company of Wolves er draumur
ungrar stúlku. 1 byrjun kynnumst
við litillega fjölskyldu hennar og
kemur í ljós að hún á eldri systur og
kemur þeim systrum illa saman.
Draumurinn er látinn gerast á
miðöldum, að því er virðist, þó með
einu fráviki: Rolls Royce birtist allt í
einu á tjaldinu. Draumur er
draumur og því litið við það aö
athuga. Draumurinn fjallar um úlfa,
úlfa eins og við þekkjum þá, og er
unga stúlkan fljót aö losa sig viö
systur sína í gin úlfanna.
Það eru aftur á móti mannúlfar
sem eru aðalþema myndarinnar;
myndarlegir menn aö utan en úlfar
að innan, eins og amman í draumn-
um útskýrir það. Það eru þeir úlfar
sem fallegar stúlkur eiga aö vara sig
á. Til að leggja áherslu á þetta sjáum
við dæmisögu sem amman segir um
mann er breytist í úlf á brúökaups-
nótt sinni. Unga stúlkan heillast af og
vill forvitnast meira um mannúlfa.
Þegar kemur fram í miðja mynd
rennur upp fyrir áhorfandanum að
hann er að horfa á útfærslu á sígilda
ævintýrinu um Rauðhettu og úlfinn
en að vísu er þessi útfærsla ekki
ætluð bömum.
Leikstjórinn Neil Jordan hefur hér
skapað eftirminnilega kvikmynd
sem gleymist ekki svo auöveldlega.
Það eru nokkur hryllingsatriöi í
myndinni. En í lokin er samúö áhorf-
andans með hinum óhamingjusömu
mannúlfum. Þaö er ung leikkona,
Sarah Patterson, sem leikur ungu
stúlkuna af mikilli innlifun og er
eftirminnileg. Company of Wolves er
mynd sem gleymist ekki auðveld-
lega.
34. tbl. ViKan 43