Vikan - 22.08.1985, Síða 45
Það hnussaði í konunni hans
Larsens.
— Mér þætti gaman að sjá þaö
svínakjöt. Ef frú Jensen heldur
því fram að hún fái það á fjörutíu
og átta krónur hálft kíló þá...
— Við vitum ekki hvað hún
borgar á kílóið, frú Larsen. Það er
einmitt kílóverðiö sem við erum
að reyna að finna út, skilurðu?
— Jæja, ég veit allavega að það
var tvö hundruö og áttatíu krónur
í fyrradag. Það var líka til eitt-
hvað á 256 krónur kílóið en það leit
nú ekkert sérlega kræsilega út.
Ætlar frú Jensen að vera meö
gesti í mat?
— Jensen hvað? spuröi ég
skilningsvana.
— Nú, ertu ekki að tala um frú
Jensen á númer tólf? Ef svo er
þarftu ekkert að reikna út kíló-
verðiö því Jensen kaupir sitt kjöt í
Kjötbæ þar sem hann...
Ég gafst upp og dró mig í hlé.
Ég hafði hins vegar áhuga á að
vita í hvaða skóla Larsen hafði
eiginlega gengiö. Hann hlýtur að
hafa fleygt mörgum pappírs-
kúium í reikningstímunum, ef
hann hafði þá verið með reikning
á stundaskránni. Ég gekk niöur-
lútur til baka meö reikningsdæmið
og hélt áfram að glíma við þaö. Ég
er enn ekki, þegar þetta er
skrifað, búinn að finna neitt út úr
því. En ég skal! Þaö er bara þetta
með að byrja á réttum enda.
Það skal verða leyst, jafnvel þó
það kosti mig fjögurra ára kjöt-
iðnaðarnám hjá Sörra kjöt-
vinnslumanni til að komast aö því
hvaö kíló af nautakjöti og kíló af
svínakjöti kostar.
En kannski notar Sörri kjöt-
kaupmaður ekki reikningsbók
alþýðuskólans frá 1964 þegar hann
reiknar út verðið á nautakjöti og
svínakjöti.
Stjörnuspá
Hruturinn 21. mars-20. april
Þú verður eiröarlaus
og fremur skapstygg-
ur á næstunni. Þaö er
því skynsamlegt aö
reyna að létta sér að-
eins upp og slappa af.
Fjármálin eru í
óreiðu.
Nautið 21. april - 21. mai
Þú verst ekki söfnun
um þessar mundir.
Það er margt sem
kemur óvænt í því
sambandi. Notfærðu
þér aðstöðuna eins
vel og þú getur. Þessi
óvenjulega heppni
gæti orðið þér til
gæfu.
Tviburarnir 22. mai-21. júni
Hvernig væri nú að
reyna eitthvað nýtt?
Framkvæmdu eitt-
hvað af þessum
gömlu, spennandi
ævintýradraumum.
Næstu dagar bjóða
upp á mörg eftir-
sóknarverð tækifæri.
Krabbinn 22. júni - 23. júli
Gríptu gæsina þegar
hún gefst. Allt viröist
leika í lyndi. Þú munt
koma auga á
dásemdir lífsins ef þú
ert ekki of kröfuharð-
ur. Laugardagurinn
veröur skemmtileg-
Ljónið 24. júli - 23. ágúst
Vikan verður illu
heilli fremur erfið.
Sérstaklega á vinnan
eftir aö veröa mikil
og erfiö. Taktu þessu
með góða skapinu.
Etir rigninguna
kemur sól.
Meyjan 24. ágúst - 23. sept.
Þaö er margt til að
auka ánægjuna.
Láttu allar áhyggjur
lönd og leiö. Þú hefur
fulla ástæðu til að líta
björtum augum á
framtíðina. Helgin er
ástföngnu fólki hag-
stæð.
Vogin 24. sept. - 23. okt.
Reyndu að meta rétt
þær aðstæður sem þú
býrð við. Þú ættir að
kappkosta að skilja
þær. Aðeins með því
móti geturðu brugðist
rétt við verkefni sem
þú hefur nýlega
fengið í hendur.
Sporðdrekinn 24. okt. 23. nóv.
Vikan verður mjög
venjuleg, það dregur
ekki til tíðinda fyrr
en í fyrsta lagi á
miðvikudagskvöld.
Þú færð sennilega
fréttir af gömlum
félögum.
Bogmaðurinn 24. nóv. - 21. des.
Það er enginn vafi á
því aö þú ert heldur
nískur. Þaö gerir þér
erfitt fyrir. Léttu þér
upp ærlega og þeim
sem eru þér næstir
og hafa mest þurft að
hafa af samhalds-
semi þinni að segja.
Steingeitin 22. des. - 20. jan.
Leggðu ekki of hart
að þér í vinnunni. Ef
þér verður boðið í
ferðalag á laugardag
skaltu ekki flana að
neinu. Ef þér finnst
ekki allt í fullkomnu
lagi skaltu ekkert
vera að fara.
Vatnsberinn 21. jan. - 19. febr.
Lausn ýmissa mála
berst þér í hendur
fyrirhafnarlaust. Það
er einkum í peninga-
málum sem þetta
gerist. Vertu ekki að
sýna neina linkind í
þeim málum.
Fiskarnir 20. febr. 20. mars
Þú keppist við alla
vinnu sem þú tekur
að þér. Þér verður
því oftast eitthvað úr
hlutunum og hefur
alltaf nóg að gera.
Ýmislegt færðu að
gera í vikunni. Var-
astu að vera meö of
margt á prjónunum.
34> tbl. Vikan 45