Vikan - 22.08.1985, Blaðsíða 46
Published by arrangement with Lennart Sane Agency, Karlshamn, Sweden. Originally published by Simon & Schuster.
Shirley Conran
y'%/?
^/eiðna gerði sér
allt í einu ljóst að hún
hafði geflð honum
gullvæga ástæðu til að
fara að skammast en var
skyndilega alveg sama.
, ,Ég á við það að þú ert ekki
bara eigingjarn elskhugi heldur
læturðu sem þú sért það ekki.
Það ei falskt og óheiðarlegt
þegar þú snýrð þér á hina
^hliðina til að fara að sofa þegar
þú veist að ég er logandi að
innan en þú lætur sem þú vitir
það ekki. Ég elskaði þig þegar
ég giftist þér og ég vildi ekki
segja neitt til þess að særa þig,
og satt að segja hélt ég að þú
þyrftir bara að fá smáæfíngu.
Ég hélt reyndar að við þyrftum
þess bæði. Ef þú værir bara eins
og þá, þá væri ég ekkert að
hafa orð á þessu, en þú hefur
versnað.”
Robert varð enn rauðari.
„Fyrst hélt ég að þú værir
of þreyttur, Robert. Ég hélt að
vinnan tæki svo mjög á þig en
síðan sá ég að þetta var bara
venjuleg leti og eigingirni. Og
það var líka svolítið annað
ógeðslegra; þú vildir ekki vera
neitt með mér. Ef þú gætir
bara ýtt á hnapp og látið mig
hverfa, þegar þú ert búinn að
fá það, þá myndir þú gera
það.”
Robert varð fjólublár. ,,Þú
ert eina konan sem hefur
nokkru sinni kvartað — og það
er bara vegna þess að þú gerir
óhóflegar kröfur!
/?
fJXt/ei
'eiðna dró djúpt
andann og sagði síðan það sem
hún hafði verið að æfa í hugan-
um mánuðum saman: ,,Ég get
fróað sjálfri mér svo ég fái full-
nægingu á fimm mínútum. Ég
mældi það með eldhúsklukk-
unni. Það tekur ekki lengri
tíma að örva mig ef ég er ekki
þjökuð af áhyggjum eða stressi;
ekki mikið lengur en þig. En
þú ert ekkert að hafa fyrir því
að komast að því hvað mér
finnst gott. Það er langt síðan
ég gaf þér það í skyn en nú skal
ég fúslega segja þér það hreint
TUTTUGASTIOG
FJÓRÐIHLUTI
Þaðsemáundanergengið. . .
Arið 1963 gengst þrettán ára stúlkubam undir ólöglega
fóstureyðingu á subbulegri lækningastofu í París . . .
Fimmtán árum síðar er fjórum glæsilegum heimskonum
stefnt á fund kvikmyndastjömunnar Lilíar. Þær Heiðna,
Kata, Maxín og Júdý vita ekki að þeim er stefnt saman og
vita ekki hver tilgangurinn er. ,Jæja, tæfumar ykkar.
Hver ykkar er móðir mín?” spyr Lilí.
Árið 1948 em Heiðna, Kata og Maxín á fínum heima-
vistarskóla í Sviss. Þær kynnast Júdý sem vinnur sem fram-
reiðslustúlka á kaffiteríu glæsihótels. Ungir menn koma
við sögu og ástin blómstrar í svissneska fjallabænum.
Að skóla loknum skilja leiðir. Ein stúlknanna er bams-
hafandi, en hver?
Júdý og Maxín fara til Parísar. Þar fer Júdý að vinna hjá
Dior tiskuhúsinu en síðan hjá Guy, ungum og upp-
rennandi fatahönnuði. Hortense, frænka Maxín, er auðug
ekkja í París og alltaf reiðubúin til hjálpar þegar eitthvað
bjátar á. Júdý og Guy vegnar vel í París en þegar móðir
Júdýjar verður alvarlega veik fer Júdý heim til Banda-
ríkjanna og lofar móður sinni að fara ekki aftur til Parísar.
Hún sest að í New York og fer að vinna hjá kynningafyrir-
tæki.
Sögunni víkur til Elísabetar litlu sem er í fóstri hjá
Felix og Angelinu í Sviss. Felix er tmgverskur flótta-
maður. Hann fer með fjölskylduna að heimsækja foreldra
sína og bróður í Ungverjalandi. Það er árið 1956. Ekkert
þeirra á afturkvæmt nema Elísabet litla, Lilí, eins og Fehx
kallaði hana.
Maxín heldur til London að læra innanhússhönnun og
hýbýlafræði. Hún er þar í tvö ár og kemur síðan aftur til
Parísar og opnar fomgripaverslun og innanhússhönnunar-
skrifstofu. Hún fær það verkefni að skipuleggja endur-
byggingu á gömlum herragarði sem er í eigu félítils
greifa og kampavínsframleiðanda. Þau gifta sig og
eignast þrjá syni.
út og sýna þér það líka svo þú
getir ekki haldið áfram að þykj-
ast ekkert vita.
,,Þú vilt geldan mann, hel-
vítis tíkin þín!”
„Nei, það er ekki satt. Ég er
ekki bara þessi blíða og eftirláta
Betty Grable-týpa eða hvaða
draumadís sem þú kannt að
ímynda þér að þú sért með
þegar það er bara ég. Þú vilt
frekar ríða einhverri ímyndaðri
Betty Grable en mér eins og ég
er vegna þess að hún bregst við
þér alveg eins og þú vilt og
veldur þér engum vandræðum.
Gamla, góða Betty hverfur
þegar þú þarft hennar ekki
lengur með og ýtir á hnappinn,
er það ekki? Ég ætla ekki að
fara að keppa við einhverja
goðsögn, við einhverja ósýni-
lega, eftirláta kynbombu. Ég
vil raunveruleika og heiðar-
leika. Ég vil alvörusamband við
alvörukarlmann.”
, .Kjaftforuga hóran þín. ’ ’
„Það ert þú sem ert forugur
og óþroskaður í hugsun. Ætli
konur af kynslóð mömmu
hefðu ekki farið fínlegar í
þetta. Þær hefðu sagt að þú
værir hugsunarlaus eða skildir
ekki þarfir kvenna eða eitthvað
svoleiðis. En ég ætla einu sinni
að tala alveg hreint út, Robert,
vegna þess að ég vil ekki að það
leiki nokkur vafi á því sem ég
meina. Ég vil ekki að þú hag-
ræðir þessu samtali eftir þínu
höfði. Ég er að segja að ég vii
ekki láta nota mig aðeins til
kynmaka. Ég vil láta elska mig.
Ég vil trúnaðarsamband og
ástúð og gagnkvæma um-
hyggju, ekki neinn skyndi-
drátt, þakka þér fyrir!
Hún hélt að Robert myndi
berja sig en það gerði hann
ekki. Hann starði bara á hana
og strunsaði út til þess að sofa í
öðru herbergi. I þrjá daga gekk
hann um með sjálfsánægjusvip
og talaði ekki við konu sína.
Þegar hann kom aftur upp í til
hennar hagaði hann sér ná-
kvæmlega eins og samtal þeirra
hefði aldrei átt sér stað.
Heiðna grét. Hún hafði von-
að að þegar sljákkaði í honum
færi hann ef til vill að hugsa
eitthvað um það sem hún
sagði. En það gerði hann ekki.
Og hún reyndi aldrei aftur.
46 Vikan 34. tbl.