Vikan - 22.08.1985, Qupperneq 56
\ ^ Pósturinn —.. / > \ i
r*'—
A I R M A I L ' - 1 jt. A,. '
PAR AVION ísland 50Ö " u^LAN8 ISIA
Algjörlega glötuð ; <'raoou>oms tnooLOoms
Kœri Póstur.
Nú veröur þú ad hjálpa
mér. Ég er í vanda stödd.
Þannig er mál með vexti að
ég á enga vini sem ég get
treyst eða vinkonur. Það er
alveg sama Iwað ég geri,
aldrei eignast ég vinkonu.
Það skeður aldrei neitt og
það er mjög fábrotið sem
liœgt er að gera. Eg hefverið
í íþróttum og ég er þar alltaf
ein á báti, er ein á böllum og
ein úti á kvöldin. Eg reyndi
að fremja sjálfsmorð í fyrra
en það mistókst. Það er ekki
ár síðan ég byrjaði að
drekka og er að hœtta þessu
sulli. Eg er þá alltaf með
svoleiðis skítamóral að eng-
inn þolir mig. En þegar ég er
edrú þá er ég svo feimin að
það má ekkert segja við mig,
þá fer ég alveg í klessu. En
ég get verið í góðu skapi og
þá flippa ég algjörlega út.
Svona er ég. Eg hugsa alltaf
alvarlega um lífið. Svo er ég
18 ára hrein mey. Finnst þér
það asnalegt að ég sé hrein
mey eins og það er mikið
kynsvall íkringum mig?
Nú koma spurningar:
1. Hvar get ég lœrt
færeysku ?
2. Hvar get ég fengið allar
Bítlaplölurnar?
3. Kemur franska pillan
hingað?
4. Efég fengi mér pilluna,
hvenœr myndi hún þá virka?
Hvenœr má þá hafa sam-
farir?
5. Hvernig heldur þú að
það sé best að ná sér í vin-
konu eða vin?
Jœja, nú œtla ég ekki
að vera frek og taka allt
plássið af ykkur.
Ein óhamingjusöm
á íslandi.
Þú þjáist af alvarlegri feimni
og minnimáttarkennd svo jaðrar
við taugaveiklun og það er á góðri
leið með aö eitra allt þitt líf. Þú
einangrar þig frá öðru fólki án
þess að vilja það í raun og veru og
líður því illa. Ef það sæist ekki á
heimilisfanginu að þú býrð í litlum
bæ úti á landi myndi Pósturinn
ráðleggja þér að fara til sálfræö-
ings til þess að fá aðstoð viö að
yfirvinna þessar leiðu kenndir en
sjálfsagt er enginn sálfræðingur í
bænum þínum, eða hvað? Ef svo
er þá ættir þú að fá viðtal hjá
honum.
Minnimáttarkennd og félagsleg
einangrun, eins og hún lýsir sér í
þínu tilfelli, er vandamál sem
margir eiga viö að glíma. Og þaö
er einnig vandamál sem hægt er
aðvinna bugá.
Þú eignast ekki vini vegna þess
að þú ert hrædd við fólk. Sestu
niður og hugsaðu málið. Hvers
vegna ættir þú að vera hrædd við
fólk? Það er bara fólk eins og þú,
með kosti og galla og margt líka
feimiö. Ert þú sjálf líka eins
ómöguleg og þú vilt vera láta?
Vitanlega ekki. Þú veist sjálf að
þú býrð yfir ótal kostum og hefur
margt að miðla öðrum. Þú ert hins
vegar búin að flækja þig í víta-
hring minnimáttarkenndar og
ótta sem erfitt getur verið að
komast út úr.
Þú ert ekkert smábarn lengur
og ef til vill væri gott hjá þér að
fara að heiman og skipta alveg um
umhverfi. Hvernig væri að fara að
heiman? Fara í skóla, til dæmis
heimavistarskóla, eða vinnu
annars staðar á landinu? Settu þér
um leið það takmark að reyna að
komast út úr þessari vitleysu.
Vertu afslöppuö og eðlileg við fólk,
vertu þú sjálf. Hættu að hugsa
stöðugt um hvað þú sért ömurleg
og hvað öðrum hljóti að finnast þú
ömurleg og svo framvegis. Þú ert
ekkert ömurleg. Þú hefur bara
ýmsa galla eins og allt fólk og
svona svartagallshugsanir þjóna
engum tilgangi nema gera sjálfri
þérmikinn skaða.
Veltu fyrir þér hvað þú myndir
viija gera í lífinu, hvað þú vildir læra
og svo framvegis. Þú getur farið
hægt í sakimar í samskiptum við
fólk til að byrja með en aukið þau
svo smátt og smátt og, fyrir alla
muni, einangraðu þig ekki. Ræktaðu
áhugamál þín. Fólk eins og þú hefur
oft haft ómetanlegt gagn að því aö
taka þátt í leikstarfsemi, kór, íþrótt-
um og ýmiss konar félagsskap en þú
verður að gera þaö með opnum
huga. Það er erfitt aö þurfa að taka
fyrstu skrefin, blanda sér í hópinn,
og það er kannski miklu þægilegra
að sitja meö sorgarsvip úti í homi og
vorkenna sér. En þú getur bókaö að
þá em sáralitlar Mkur á því að ein-
hverjir aðrir komi stökkvandi og
krefjist þess að fá þig í hópinn. Taktu
frumkvæðið sjáif, hægt og rólega en
ákveðið.
Auðvitað er ekkert asnalegt að
vera 18 ára hrein mey, skárra
væri það. Það er engin keppni í
gangi um hver missir meydóminn
fyrst. Það gerist ekki fyrr en þú
hefur hitt einhvern sem þig langar
til aö sofa hjá og það getur gerst
hvenær sem er á ævinni. Það er
sjálfsagt fullgróft af þér að tala
um kynsvall í kringum þig en
sennilega er til fullt af fólki sem er
afkastameira í þessum efnum en
annað, en þannig eru bara ekki
allir. Fyrir suma skipta gæðin
meira máli en magnið.
1. Færeyska er víst hvergi
kennd hér svo Pósturinn viti en
einhvern tíma var hún þó kennd í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
(Hvers vegna drífur þú þig bara
ekki til Færeyja og færð þér vinnu
þar og lærir færeysku? Hún er það
lík íslensku að námið veitist ís-
lendingum auðvelt.)
2. Bítlaplöturnar hafa fengist í
hljómplötuverslunum í Reykja-
vík, flestar hverjar, en svo hefur
einnig veriö hægt að kaupa sett í
kassa með þeim öllum á einu
bretti.
3. Með frönsku pillunni áttu
sennilega við þessa sem konan
tekur inn daginn eftir samfarir. Ef
hún reynist vel í rannsóknum
kemur hún væntanlega til landsins
þegar hún verður almennt sett á
markað í heiminum.
4. Þessi venjulega pilla er talin
alveg örugg 14 dögum eftir að
byrjað er að taka hana inn í fyrsta
skipti en áhrifa pillunnar gætir
samt alveg frá fyrsta degi inn-
töku.
Svarið við síðustu spurningunni
felst að svo miklu leyti sem hægt
er að svara henni í meginmálinu
hér á undan. Vertu bjartsýn.
Hafðu hugfast að ef þú vilt laga
ástandið í raun og veru þá geturðu
það.
56 Vikan 34. tbl.