Vikan


Vikan - 21.11.1985, Side 15

Vikan - 21.11.1985, Side 15
— Jú, ef nógu margar þora það. Ég segi hverjum sem heyra vill hvar ég er. — Sambýlismaður minn veit vel hvar ég er, en ef það er hringt og spurt um mig segir hann að ég hljóti að hafa skroppið frá eða sé í þvottahúsinu. — Það eru margar konur sem halda að þetta sé einhver stofnun. Þetta er heimili og þarna er engin forstöðukona. Ég hefði ekki trúað því hvað það er tek- ið vel á móti manni og hvað þetta er mikið heimili. — Konurnar, sem þarna dvelja, setja sínar eigin húsreglur að vissu marki og vinna heimilisstörfin i sameiningu eins og á venjulegum heimilum. Einu sinni i viku er haldinn húsfundur þar sem rað- að er niður verkum og andrúmsloftið hreinsað ef með þarf. — Mestur stuðningurinn er þó að geta talað við konur sem eins er ástatt fyrir og manni sjálfum. Hvernig er með sálfrœðiaðstoð, er einhverja slíka að hafa? — Ekki innan veggja kvennaathvarfs- ins. Þetta er heimili og þar starfa engir sérfræðingar. Hins vegar bendum við konum, sem þurfa, á hvar hægt er að leita aðstoðar, hvort sem er sálfræðings eða geðlæknis. Þær verða sjálfar að ákveða hvort þær leita hennar. Hvað með praktíska aðstoð? — Lögreglan er hjálpleg þegar konur þurfa að fara heim að sækja eitthvað af persónulegum munum, ekur þeim og hjálpar eftir þvi sem þarf. i peninga- og húsnæðismálum grípur Félagsmála- stofnun stundum inn i. En kerfið er oft seinvirkt. — Lögreglan var líka mjög skilnings- rik þegar upp kom umsátursástand við . það má líka auglýsa að börn eigi líka í einhvern stað að venda. Þeim finnst þau oft vera ofurseld foreldrum sínum." húsið. Það var samþykkt að þeir yrðu i húsinu á meðan hættuástand varði. En þessi undantekning var auðvitað bara gerð vegna þess að ástandið var alvar- legt og dvalarkonurnar fóru fram á þetta sjálfar. — Siðan var þetta kært og ef þetta verður itrekað er hægt að setja mann- inn inn. — Konurnar eru venjulega hræddar við að kæra. — Minn spurði hvort ég hefði kært hann seinast og ég sagði honum að skýrslurnar væru til niðri á slysavarð- stofu og ég myndi ekki hika við að kæra ef á þyrfti að halda. — Biðstaðan, sem getur komið upp hjá konum, fer oft mjög illa með þær. Kvennaathvarfið er griðland á meðan þær eru að hugsa ráð sitt. Sumar ákveða að skilja, aðrar fara heim aftur. Stundum koma þær aftur og aftur. Það er fullkomlega eðlilegt að þær reyni til þrautar að halda áfram í vonina. Stund- um fer makinn i meöferð og þá er von að þær athugi hvernig hún reynist. „Þær eru dauðhræddar við kallinn, við að vera lamdar ef þærkjafta frá." — Við höfum orðið varar við að sum- ar konurnar eru hræddar við að koma aftur. Þeim finnst skömm að þvi eftir að hafa farið heim og jafnvel að þær séu að valda okkur vonbrigðum. Það er fjarri lagi, en ég hef grun um að úti í bæ séu konur sem fá sig ekki til að koma í annað sinn af þvi þær halda að þær séu búnar að fyrirgera rétti sínum til þess. Það er mjög sorglegt til að hugsa. Það er ekkert sjálfsagðara en að þær komi aftur. — Vissan um að ég gæti komið aftur i kvennaathvarfið, ef ástandið yrði óbærilegt, gerði mér kleift að snúa aftur heim á meðan ég var að hugsa mitt ráð. Ég leitaði mikið að húsnæði en það er hægara sagt en gert að fá ibúð, sér- staklega fyrir einstæða móður. Nema á 26.000 krónur, og það borgar einstæð móðir ekki i leigu. Það endaði með því að ég hafði safnað mér fyrir útborgun og gat keypt mér litla íbúð. Það hefði ég aldrei haft kjark til að gera ef ég hefði ekki vitað að ég gat alltaf komist að í kvennaathvarfinu ef á þyrfti að halda og ástandið heima yrði óbærilegt. — Við vísum konum aldrei frá. Það hefur orðið ansi þröngt stundum, en allir skilja það og laga sig að þvi. Hvernig er fyrir börn að koma í kvennaathvarfið, skipta þau um skóla og raskast hagir þeirra mikið? — Meirihluti þeirra kvenna, sem hafa komiö i athvarfið, er með börn. Þar hafa verið 6—11 börn að meðaltali sið- asta árið. Mér finnst einkenna þessi börn hvað þau eru öryggislaus. Sum vakna upp á nóttunni með martraðir, mæðurnar eru oft i slæmu ástandi „Tilfellin sem ekki verða rakin til drykkju eru vanda- sömust allra." þegar þær koma og hafa nóg með sig. Það er mjög mikilvægt að börnin hafi einhvern sem sinnir þeim eingöngu, að þau geti átt góða tíma fyrir sig einhvern hluta dagsins. Oft er það mikil hvild fyr- ir alla ef hægt er að koma því við að fara út frá heimilinu með eldri börnin. — Við tölum um það við konurnar að láta þau ekki hlusta á lýsingar á ofbeldi þegar þær eru að ræða málin sin á milli. — Þau sem koma utan af landi þurfa auðvitað að skipta um skóla og það er yfirleitt mjög erfitt fyrir þau að koma i nýtt umhverfi og þurfa að aðlaga sig öllu, en það er reynt aö sinna þeim sér- staklega. — Þetta er eina kvennaathvarfið á landinu, Akureyri reyndist of litill bær til að athvarfið þar gengi, en þær eru með neyðarsima og visa konum til okkar. — Yfirleitt er reynt að raska lífi barna, sem búa á höfuðborgarsvæðinu, sem minnst, þau halda áfram að sækja sina skóla og umgangast sina vini eftir þvi sem hægt er. — Mér finnst yngri börnin oft verða ansi spennt en þau eldri fara meira inn i sig. Mörg eiga mjög erfitt þó það sé viss léttir fyrir þau að komast úr krisu heima fyrir. En þarna mætast mismun andi uppeldisaðferðir og þetta er nátt- úrlega talsverð breyting fyrir þau. — Það er eins og drengir, sem eru komnir yfir 10 ára aldur, líti á sjálfa sig í einhverri ábyrgðarstöðu gagnvart yngri systkinum og móður. Þeir eiga oft tals- vert erfitt. — Sonur minn sagði við mig um dag- inn að hann ætlaði sér ekki að ná sér i konu fyrr en hann vissi hvernig hann væri með vini. Hann vildi vita hvort hann yrði eins og pabbi hans sem fór alltaf að lemja mig þegar hann fékk sér i glas. ,,Þegar börnin vakna upp með martraðir. . ." Hvað er jákvæðast og/eða nei- kvæðast við kvennaathvarfið? Það jákvæðasta er að þetta er heimili, ekki stofnun. — Svo er það stuðningurinn sem maður fær frá hinum konunum og þær geta veitt hver annarri. — Fyrirbyggjandi í einhverjum tilfell- um þvi ef maður hefur stað til að fara i þá þora þeir ekki eins að sleppa sér. — Ég get nefnt eitt neikvætt. Það vantar eldhúsrúllur! — Það er verið að spara. Eru konurnar, sem eru að flýja of- beldi á eigin heimili, i meirihluta hjá ykkur? - Já. Hvað með hinar, sem verða fyrir líkamsárásum og nauðgunum, koma þær? — Já, þær koma líka. Lögreglan vís- ar þeim stundum á okkur. Og það hefur líka verið hringt annars staðar frá. I samtökunum er starfandi hópur sem er tilbúinn að aðstoða þegar nauðgunar- mál koma upp, fara með konunum í gegnum allt það tilstand sem er í kring- um að kæra, skýrslur og þess háttar. Þær mega koma með en auövitað ekki blanda sér neitt i málin. Hefur reynt á þennan hóp? — Já, já, þær hafa veriö stuðningur fyrir þær sem hafa þurft á að halda. Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir konur að geta rætt málin við einhvern. — Símanúmer kvennaathvarfsins þyrfti eiginlega að vera fremst i sima- skránni, með öðrum neyðarsímum. Þetta er neyðarþjónusta! — Svo höfum við getað visað kon- um, bæði þessum sem verða fyrir árás og ekki síöur hinum, á kvennaráðgjöf- ina á Hótel Vik. . . sem sumir halda að sé kvennaathvarfið! ,,Sonur minn sagði við mig að hann ætlaði sér ekki að ná í konu fyrr en hann vissi hvernig hann væri með . . n vini. Já, hvernig gengur að halda heimilisfanginu leyndu? — Stundum vel, það eru margir sem halda að þetta séu allt önnur hús. En svo getur komið upp ástand eins og þegar umsátrið varð. Að lokum, ganga fjármálin upp? — Nei, (löng þögn) það gera þau ekki. Þau eru erfið. En þetta rúllar samt áfram. 47. tbl. Vikan 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.