Vikan - 21.11.1985, Page 27
óstöövandi ferðaþrá og þau leggja
kapp á að koma sér þannig fyrir
að þau geti átt náðuga daga þegar
þeim hentar. Þau setja sér oft
langtíma markmið og sýna bæði
hugkvæmni og kænsku við að ná
settumarki.
Lífsstarf
Þetta fólk hefur alla möguleika
til aö komast vel áfram í lífinu og
því vegnar yfirleitt vel í starfi.
Það er vandvirkt og útsjónarsamt
hvað vinnubrögð snertir, þarf á
fjölbreyttum verkefnum að halda
og eins og gefur að skilja spillir
ekki að starfinu fylgi ferðalög.
Viðskipti af einhverju tagi eru lík-
legasti starfsvettvangur barna
dagsins.
Ástalíf
Fólk dagsins tekur mikinn þátt í
félagsstörfum, er félagslynt og
kynnist þar af leiðandi fjölda
fólks. Ekki er það þó stórtækt á
sviöi ástamálanna og heldur
seinheppið í þeim sökum. Því er
ýmislegt betur lagið en að um-
gangast hitt kynið með glæsibrag,
þó kemur trúlega að því að það
festi ráð sitt og sé það heppiö í
makavali er ánægjulegt fjöl-
skyldulíf fram undan.
Heilsufar
Helstu brotalamir á heilsunni
tengjast hálsinum, hann er líkleg-
ur til að verða til meiri eða minni
vandræða. Líkamsþjálfun er
heppileg fyrir fólk dagsins.
23.
NÓVEMBER
Skapgerð
Þeir sem fæddir eru þennan dag
eru glaðlegir og þægilegir í um-
gengni, viömótsþýðir og bjartsýn-
ir. Undir niðri leynist þó viðkvæmt
geð og auðsærð sál sem verður
fyrir ýmsum áföllum vegna þess
að ekki er allt sem sýnist. Þetta
fólk er dálítiö fljótfært og ekki
laust við ístöðuleysi. Traust vin-
> áttusambönd geta orðið því sú
kjölfesta sem það þarf svo mjög á
að halda. Þetta er vel greint fólk,
áreiðanlegt og hjartahlýtt með af-
brigðum.
Lífsstarf
Fólk dagsins á vel heima þar
sem mikið er um að vera og því er
einkar lagið að greiða úr vanda
annarra, svo sem við afgreiðslu
eða fyrirgreiöslu af einhverju
tagi. Það er líklegt til að hafna í
fjölmiðlun, ferðaþjónustu eða upp-
lýsingastarfsemi, kennsla kemur
sömuleiöis sterklega til greina.
Því er vel treystandi fyrir fjár-
munum, að vísu tekur það iðulega
óþarflega mikla áhættu varðandi
eigin fjárhag en sú árátta er bund-
in einkalífinu.
Ástalíf
Heldur er ólíklegt að þetta fólk
sigli ævinlega sléttan sjó hvað
ástamálin varöar. Þetta eru mikl-
ar tilfinningaverur og sveiflurnar
á því sviði skilja oft á tíðum eftir
sig ör. Búast má við fleiri en einu
hjónabandi en lærist fólki dagsins
að ekki verður bæði sleppt og hald-
ið hægist um og friðsælt heimilislíf
bíður.
Heilsufar
Þetta er þróttmikið fólk en samt
munu fáar umgangspestir fara
fram hjá því.
24.
NÓVEMBER
Skapgerð
Sérstæðar gáfur eru algengar
hjá börnum þessa dags. Meðal
þeirra er að finna hreina snillinga,
einkum á tónlistarsviðinu en einn-
ig í öðrum listgreinum. Þaö hefur
líka kjark og kraft til aö láta sér
verða eitthvaö úr þeim hæfileik-
um sem það hefur hlotiö í vöggu-
gjöf og er ófeimið við að koma sér
á framfæri. Þetta er glaölynt fólk,
vel látið og talsvert gefið fyrir lífs-
ins lystisemdir.
Lífsstarf
Þetta fólk er líklegt til að hasla
sér völl á áhugasviðinu og mun
trúlega eiga velgengni aö fagna.
Ekki er þó þar með sagt að aldrei
gusti um það en meðfædd bjart-
sýni og lífsgleði fleytir því yfir
erfiðleikana. Peningar koma við
sögu og eru börn dagsins heldur
heppin i f jármálum.
Ástamál
Afmælisbarnið er skemmtilegur
félagi, vinsælt og nýtur hylli hins
kynsins. Það bindur sig trúlega
snemma og þótt á ýmsu geti geng-
iö verður það hamingjusamt. Þaö
helst ekki við í sambúö uppfylli
hún ekki kröfur þess og verði það
ekki heppið í fyrstu tilraun hikar
það ekki við að reyna aftur.
Heilsufar
Nokkur kaflaskipti verða
trúlega hvað heilsuna varðar.
Sum tímabil ævinnar verður hún í
góðu lagi, í annan tíma herja alls
kyns kvillar á afmælisbarnið.
25.
NÓVEMBER
Skapgerð
Fólk dagsins hefur listræna
hæfileika og er afar smekkvíst.
Heimili þess bera þessum eigin-
leikum yfirleitt órækt vitni. Þetta
er alúðlegt fólk, góðviljað og þolin-
mótt. Það er gefið fyrir ferðalög,
kann vel aö meta hvers konar til-
breytingu en er jafnframt einstak-
lega þægilegt á heimili. Þetta fóik
leggur sig í líma við að styrkja
fjölskylduböndin og oft hafa ætt-
ingjarnir mikil áhrif á lífshlaup
þess.
Lífsstarf
Börn dagsins eru vel til þess
fallin að vera sjálfs sín húsbænd-
ur. Þau kunna að nota tímann og
verður mikið úr verki við erfiöar
aöstæður. Þau hafa ríka samúð
meö þeim sem eiga bágt og hjúkr-
unar- og líknarstörf farast þeim
vel úr hendi. Slíkt starf í þróunar-
löndunum væri kjörið verkefni.
Kaupmennska eöa innkaupastjórn
hentar líka mörgum sem fæddir
eruþennan dag.
Ástalíf
Fólk af þessari gerð er ekki fast-
heldiö hvaö ástamálin varðar og
er líklegt til aö koma nokkuð víða
við. Fleiri en eitt hjónaband er al-
gengt meðal þess og það er vel
fært um að reynast fleiri en einum
góður maki. Það lætur sér annt
um heimili sitt og fjölskyldu og
börnum sínum eru afmælisbörn
dagsins góðir foreldrar.
Heilsufar
Þetta fólk hefur heilbrigða sál í
hraustum líkama og hristir af sér
flesta sjúkdóma.
26.
NÓVEMBER
Skapgerð
Fólk þessa dags er í prýðisgóöu
andlegu jafnvægi og mjög áreitn-
islaust í framkomu. Það gætir
jafnan hófs til orðs og æöis, er
góðviljað, áreiðanlegt og hlýlegt í
viömóti. Þetta eru tryggir vinir
vina sinna og sannkallaðar
gersemar í fjölskyldu. Þetta fólk
er ekkert gefið fyrir að taka þátt í
æsilegum viðburðum en kann
manna best að njóta hversdags-
leikans og hins smáa í tilverunni.
Lífsstarf
Börn dagsins eru eftirsótt til
vinnu og þægilegir vinnufélagar.
Þeim láta vel störf við heilsu-
gæslu, uppeldisstörf og veitinga-
rekstur. Ur þessum hópi koma
líka ágætir prestar og lögfræðing-
ar.
Ástalíf
Mikils er um vert fyrir þetta
fólk að fara varlega í skiptum viö
hitt kynið og láta ekki plata sig.
Þaö er sjálft svo hrekklaust og
einlægt að það getur hæglega orð-
ið fyrir barðinu á þeim sem
óprúttnir eru. Beri börn dagsins
gæfu til að finna góðan maka verð-
ur heimilislífiö með því betra sem
þekkist.
Heilsufar
Full ástæða er til að gæta heils-
unnar og fara vel með sig fái þetta
fólk pestir. Þaö er mjög kvefsæk-
ið, að minnsta kosti einhvern hluta
ævinnar, en með aðgát má forðast
eftirköst lasleika.
27.
NÓVEMBER
Skapgerð
Það gustar af fólki dagsins. Það
er duglegt, stjórnsamt og með
óbilandi sjálfstraust. Þetta er at-
hafnafólk í stöðugri framsókn,
námfúst, stefnufast og haldið
smitandi áhuga á viöfangsefni
sínu hverju sinni. Það sinnir fé-
lagsmálum af áhuga og kemst
gjarnan til pólitískra áhrifa.
Lífsstarf
Börn dagsins fást við margt og
misjafnt en ná svo til alltaf góðum
árangri. Þau verða mörg hver vel
fjáð og það gefur þeim ýmsa
möguleika því ekki eru þau líkleg
til aö safna undir dýnuna. Rekstur
á eigin fyrirtæki liggur vel við en
hvers konar stjórnunarstörf og
fræðsla henta þessu fólki líka afar
vel.
Ástalíf
Þetta glaðlynda og fjörmikla
fólk kynnist ýmsu og veröur tæp-
ast við eina fjölina fellt framan af
ævinni. Hafni það í hjónabandi,
sem allar líkur eru reyndar á,
verður sambúðin snurðulítil og bú-
ast má við að gestkvæmt verði á
heimilinu.
Heilsufar
Höfuöverkur þjáir þetta fólk oft
og því hættir til að fitna gæti það
ekki hófs í mataræði.
47. tbl. Vikan 27