Vikan


Vikan - 21.11.1985, Side 56

Vikan - 21.11.1985, Side 56
a Pósturinn Um Prince Hœ, kœri Póstur. Ég er hérna ein forvitin (eins og flestir) og langar aö vita hvenœr söngvarinn Prince er fœddur og hver er uppáhaldshljómsveitin hans og hver áhugamál hans eru. Hvad heitir hljómsveitin sem Prince spilar med ? Er það sú sama og er í Purple Rain? Er ekki til vídeóspóla med Prince sem heitir Prince Live? Hvað kostar hún og hvar er hœgt að fá hana? Það vœri ágætt að koma með pistil um Prince og myndir. Fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. Prince-aðdáandi. P.S. Hvað eru komnar út margar plötur með Prince? Prince mun vera fæddur 7. júní 1958. Kvikmyndin Purple Rain mun fara mjög nálægt raunveru- leikanum en raunveruleg hljóm- sveit Prince heitir The Revol- ution. Áhugamál Prince eru helst kvenfólk og bílar fyrir utan tón- listina sem er áhugamál númer eitt. Pósturinn veit ekki hver uppáhaldshljómsveitin hans er. Pósturinn veit ekki heldur hvar þú getur fengiö þessa vídeóspólu. Þaö er helst að spyrja á vídeóleig- unum, sem stundum hafa svona tónlistarspólur, eöa hringja í hljómplötuverslanir. En plöturnar heita: Dirty Mind, Controversy, 1999 og Purple Rain. Ef aödáendur Prince á Is- landi (og Pósturinn veit aö þeir eru margir) vilja koma á fram- færi betri upplýsingum um kapp- ann skal Pósturinn góöfúslega birta þær. Pennavina- klúbbar Fið erum tvœr úti á landi sem erum í miklum vand- rœðum. Getur þú aðstoðað okkur? Þannig er mál með vexti að við erum alveg pennaóðar. Okkur datt í hug hvortþú gœtir komið okkur í samband við erlenda penna- vinaklúbba eða erlend blöð sem birta óskir um penna- vini. Við viljum skrifa á ensku. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna og aðstoð- ina. Tvœr pennaóðar. Þiö getið til dæmis prófað: International Correspondence Bureau, Worldwide Penfriends, A.M. Braun, Postfac 527, D-8260 Muhldorf 2, W-Germany, eða Pen Pal Editor, c/o Honululu Advertist, 605KaichariB.V.D., Honululu, Hawaii 96813, U.S.A. Sendið tvö alþjóöasvarmerki meö. Lélegt sjónvarp Kœri Póstur! Eg tek undir með öllum unglingum er hafa skrifað um lélega dagskrá í sjón- varpi. I sjónvarpinu er sama og ekki neitt afþáttum fyrir unglinga eða þá að þeir eru svo lé'legir að það er ekki hœgt að glápa áþá. Magga. Pósturinn getur víst ekki annað en komið þessari skoðun á prent fyrir þig. En er þetta nú alveg rétt? Hvað með Á framabraut (Fame), Skonrokk og aðra tónlist- arþætti? Sumu fullorðnu fólki finnst allt of mikið sýnt af slíku. Nú, svo eru unglingar líka eins og hvert annað fólk og horfa á annað dagskrárefni, svo sem skemmti- þætti, framhaldsþætti, kvikmynd- ir og fræðsluefni, er ekki svo? Póstinn langar aö benda á að fólki er velkomið að skrifa og segja álit sitt á öllum sköpuðum hlutum. Það eru ekki bara vanda- málin sem erindi eiga í Póstinn. Lögreglu- skolinn Hœ, hœ! Mér datt í hug að skrifa ykkur í vandrœðum mínum. Hér koma nokkrar spurning- ar? 1. I hvaða skóla fer maður í lögreglunám? 2. Þarf maður að vera mjög klárípikki? 3. Hvað er maður lengi að lœraþað? 4. I hvaða skóla fer maður til að lœra bifvélavirkjun ? 5. Hvað erþað langtnám? Jœja, ég vona að þið svar- ið bréfinu. Með fyrirframþökk. Guðrún. Lögregluskólinn er rekinn á vegum lögreglunnar en hann er aðeins fyrir þá sem þegar hafa starfað eitthvað sem lögreglu- menn einhvers staðar á landinu. Til þess að fá inngöngu í lögregl- una þurfa menn (karlmenn og konur) að vera á aldrinum 20—30 ára og vera andlega og líkamlega heilbrigðir. Karlmenn þurfa að; vera minnst 178 cm á hæð en kon- ur minnst 172 cm. Umsækjendur þurfa að hafa lokið grunnskóla- prófi og minnst tveggja ára námi í framhaldsskóla (framhaldsdeild, menntaskóla, fjölbrautaskóla eða iönskóla). Áður en þeir eru ráðnir til starfa þurfa þeir að gangast undir próf í íslensku og undir þrek- próf. Lögreglunámið hefst á haust- misseri sem stendur frá október fram í desember. Síðan kemur eitt ár í starfsnámi (verklegu) í bún- ingi og síðan aftur bóknám frá október og fram í maí. Bóknámið er einkum íslenska, skýrslugerð, lögreglusamþykktir, lög og reglugerðir og verknámið felst í að læra og þjálfast í öllum þáttum lögreglustarfsins. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu lög- reglustjóra í Reykjavík. Góð vélritunarkunnátta er nauð- synleg en það má alltaf bæta úr henni, ekki satt? Og æfingin skapar meistarann. Bifvélavirkjun er iðnám og fer fram í iðnskólum og sumum fjöl- brautaskólum. Námið tekur i allt fjögur ár og er bæði bóklegt og verklegt. Dráttar- vélarpróf Kœri Póstur. Mig langar að spyrja þig þriggja spurninga. 1. Hvað þarf maður að vera gamall til að taka dráttar- vélarpróf (traktorspróf)? 2. Hvar fœ ég upplýsingar umþað? 3. Hefurþú nokkra hugmynd um hvað það kostar? Með von um birtingu. BRH. Umferðarráð í Reykjavík held- ur námskeið snemma á vorin fyrir þá sem vilja læra að stjórna dráttarvélum. Til þess að sækja námskeið, sem gefur réttindi til að stjórna dráttarvélum, þarf við- komandi að verða 16 ára á árinu. En það eru einnig haldin nám- skeið fyrir 14—15 ára unglinga. Þar er þeim kennd meðferð tækj- anna en þeir fá ekki réttindi til að stjórna þeim. Allar upplýsingar, þar með um kostnað, fást hjá Umferðarráði, sími (91 )-27666. Fer ég aldrei neitt með þér? Della. Ertu búin aö gleyma að þú komst með til endurskoðandans fyrir helgina? 56 Vika'n 47. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.