Vikan - 09.01.1986, Page 44
■ ww
ornuspa
Hrúturinn 21. mars-20. april.
Gættu þess að láta
ekki skapiö hlaupa
með þig í gönur þótt
þér finnist á þér brot-
ið eða að þér vegið.
Þú tapar engu með
því að stilla þig og
hafir þú hreinan
skjöld er réttlætið þín
megin.
Nautið 21. april -21. mai.
Mundu að ekki eru
allir jafnsjálfsöruggir
og flestir þurfa á
stuðningi að halda.
Því skaltu ekki hika
við að sýna hug þinn,
langi þig á annað
borð til þess. Það get-
ur ekki orðið til ann-
ars en góðs.
Tviburarnir 22. mai-21. júni.
Hvíldu þig eftir föng-
um um helgina því að
ekki veitir þér af
þrekinu í næstu viku.
Þér gefst líka gott
tækifæri fram að
helginni til að koma
því af sem fyrir ligg-
ur og nýtur þín þá
betur en ella.
Krabbinn 22. júni-23. júli.
Leggðu áherslu á já-
kvætt hugarfar og
gleymdu ekki aö
þakka þaö sem vel er
gert. Það eru flestir
viðkvæmir fyrir því
sem um þá er sagt og
þú skalt gæta venju
fremur vel að munn-
inum á þér.
iLjónið 24. júli-23. ágúst.
Krafturinn í þér ætl-
ar allt lifandi að
drepa í kringum þig
þessa dagana. Þér er
óhætt að halda þinu
striki en láttu í friði
þá sem vilja vera í
friði og gerðu ekki of
miklar kröfur til
samstarfsfólksins.
Meyjan 24. agus! 23 sept.
Hvers konar andleg
iðja hentar þér vel nú
um sinn. Þú getur vel
látið eftir þér að lesa
allar nýju bækurnar
sem þú ætlaðir að
lesa um jólin en ekki
sakar að fást við eitt-
hvað skapandi af og
til..
Vogin 24. sept.-23. okt.
Það er hugur í þér og
þú hefur margt gott á
prjónunum. Láttu
samt ekki koma þér
á óvart þótt minna
verði úr framkvæmd-
um en til stendur.
Sporðdrekinn 24. okt.-23. nóv.
Lífsgleði setur mest-
an svip á næstu viku
hjá þér og þú gerir
þértrúlega glaðan
dag í góðra vina hópi.
Vertu samt á verði
gagnvart ókunnugum-
Bogmaðurinn 24. nóv. 21. des.
Eitthvaö veldur því
aö þú munt lengi
minnast þessarar
viku. Ekki er víst að
þú áttir þig á því
strax því að þetta
tengist ekki endilega
gleðilegum atburðum ■
Steingeitin 22. des.-21. jan.
Ymislegt þreytir
steingeitur á næst-
unni og þær ættu ekki
að umgangast börn
meira en þær komast
rheð góðu móti af
með. Þær hafa enga
þolinmæði þessa dag-
ana.
Vatnsberinn 21. jan.-19. febr.
Það er alveg óþarfi
að láta skammdegis-
þunglyndi ná tökum á
sér héðan af. Nú fer
daginn sem óðast að
lengja og hafðu hug-
ann heldur við alit
það sem framundan
er-
Fiskarnir 20. febr.—20. mars.
Þú virðist hafa gert
heldur glæfralegar
áætlanir og ætlar svo
að hopa þegar á
hólminn er komið.
Þetta snertir fleiri en
þig og mundu að að-
gát skal höfð í nær-
veru sálar.
GUÐNI
BERGSSON
er einn af okkar efnilegustu knattspyrnumönnum. Hann
hefur leikið með Val frá því áður en hann man eftir sér og
undanfarin sumur hefur hann leikið stöðu miðvarðar með
meistaraflokki félagsins. Þessi misserin leggur Guðni stund
á lögfræðinám við Háskóla íslands en ef fer sem horfir er
þess varla langt að bíða að eitthvert erlent knattspyrnulið
lokki hann utan í atvinnumennsku.
Markagræðgi:
Ég vona að Grímur Sæmundsson í Val þjáist ekki af henni.
Símaat:
Hringt í matvörubúð: ,,Hefur þú lambalæri." — Já. ,,En kál-
haus?" — Já. ,,En svínabóg?" — Já, já. ,,Mikið hlýtur þú
aðvera hallærislegur."
Besta fermingargjöfin:
Skíðin sem ég seldi og hnattlampinn sem enn hefur ekki
kviknað á þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Umferðarlögin:
Ef ég hefði alltaf farið eftir þeim væri ég vart á lífi. Ég hefði
sofnað fram á stýrið.
Armbeygjur:
Viðar stundaðar en í íþróttahúsum.
Tónabær:
Jógúrt.
Kárhöfðaður:
Alltaf gaman að læra ný orð.
Mannréttindabrot:
Hvar er bjórinn?
Veðurstofa íslands:
Andmaxalík.
Mexíkó '86:
Ævintýrið um Bjarna Fel. og gervihnettina.
Lyfjanefnd ÍSÍ:
+ Kraftlyftingamenn = sönnást.
Beljuhreiður:
Verkefni fyrir þáttinn íslenskt mál.
Draumur:
Hann er ekki birtingarhæfur.
44 Vikan 2. tbl.
X