Vikan - 09.01.1986, Síða 50
Slúður
Ein þoirra kvikmynda, sem vöktu hvað mesta
athygli á kvikmyndahátíðinni i London í ár, var
mynd sem nefnist Letter To Brezhnev. Þelta er
kvikmynd gerð af litlum efnum og er eftir Frank
Clarke. Hún fjallar um tvær stúlkur i Liverpool i
Englandi. önnur þeirra, Elaine, gengur atvinnulaus
eins og margir jafnaldrar hennar, en hin, Teresa,
vinnur á kjúklingabúi. Lifið hefur ekki miklar lysti
semdir að bjóða þessum stúlkum og til að drýgja
tekjurnar leggja þær stund á vasaþjófnað á kvöld
in.
Stöllurnar komast i tæri við tvo rússneska sjó
menn. Teresa fer með Sorgei upp á hótelherbergi
og á með honum Ijúfa nótt. Elaine og Peter haldast
i hendur og horfast i augu. Þegar skipið lieldur úr
höfn daginn eftir gerir óstjórnlegur söknuður vart
við sig hjá Elaine. Að lokum skrifar hún bréf til þá
verandi æðsta manns Sovétrikjanna, Leonid
Bresnjef, og þiður hann ásjár. . .
Þessi mynd er almennt talin afskaplega hugljúfog hrifandi en um leið góð
lýsing á heldur ömurlegum kjörum ungra Englendinga. Kvikmyndagagnrýn
andi Newsweek lauk umfjöllun sinni um þessa mynd með hugleiðingum um
að sennilega gæti lifið i Moskvu varla verið miklu verra en lif þessara ungu
Liverpoolþúa.
I myndinni eru mörg góð lög með mönnum eins og Bronski Beat, Fine
Young Cannibals og stefi myndarinnar sem leikkonan Margi Clarke (Teresa)
syngur. Tónlistin hefur verið gefin út á plötu sem ber sama nafn og myndin.
gaf mér sjálfsálit
Linda McCartney þakkar Ijósmyndun þaö sjálfstraust
sem hún hefur öölast. Með myndavélinni tekst henni aö fá
skarpari mynd af lifinu. Svo finnst henni Ijósmyndun
skemmtileg og hefur af henni mikla ánægju.
Hún segist ekki vera aö reyna aö verða heimsfrægur
Ijósmyndari en álítur aö meö myndatöku sé hún að festa
augnablik lifsins á blað. Hún líkir Ijósmyndara við listmál-
ara. Hún tekur meira mark á hvað vinir hennar segja um
Ijósmyndir hennar heldur en gagnrýnendur.
Hún kvartar yfir þvi aö blaðamenn segi að tekið sé'eftir
myndum hennar aðeins vegna þess að hún sé gift Paul
McCartney. Henni finnst þaö óréttlátt vegna þess að Ijós-
myndun er hennar verk og eigi ekkert skylt við hann: hún
myndi taka myndir hvort sem hún væri gift honum eða
ekki.
Ljósmyndun
Bréf til
Bresnjefs
50 Vikan 2. tbl.