Vikan - 23.01.1986, Qupperneq 4
^siðin frá Reykjavík til Þingvalla liggur um Mosfellsdal. Efst
í dalnum stendur bærinn Laxnes. Hér eru æskustöðvar Hall-
dórs Laxness og hér á hólnum austar og ofar, við gljúfrið i
ánni Köldukvísl, völdu þau Auður og Halldór húsi sínu stað og
gáfu því nafnið Gljúfrasteinn. Í fjörutíu ár hefur húsið við veg-
inn verið sem mílusteinn á leið þeirra sem erindi eiga til Þing-
valla. Fiestir vita að hér býr Halldór Laxness með fjölskyldu
sinni. Þeir eru líka eflaust margir sem hafa velt því fyrir sér
hvernig þar sé umhorfs innandyra; hvernig nóbelsskáldið
okkar býr.
Á Íslandi er það gömul og viðtekin hefð að þar sem byggt er
í þjóðbraut ráði gestrisnin ríkjum. Þessi hefð er enn í fullu gildi
hjá þeim Halldóri og Auði og okkar Vikumanna biðu hlýjar við-
tökur þegar við litum inn hjá þeim hjónum núna rétt fyrir jól.
\/eðrið var liklega eins leiðinlegt og það
getur orðið á Islandi einn sunnudagseftirmiðdag
rétt fyrir jól þegar ég renndi I hlað á Gljúfrasteini,
kalsarok og rigning. Satt þest að segja gat ég ekki
varist þeirri hugsun, meðan ég keyrði inn dalinn,
að það væri nú mesta furða að nokkur skyldi vilja
þúa í þessum kulda og rokrassi. En sem ég renni i
hlað opnast útidyrnar og Auður stendur í dyrun-
um. „Komdu blessuð, þetta er nú meira veðrið.
Var ekki mikil hálka á veginum?" ,,Jú, dálitil,"
svara ég og læt þess að sjálfsögðu ógetið að ég
hafi nú lúsast þetta í fyrsta og öðrum gír alla leið-
ina. „Heyrðu, þú vildir tala við okkur bæöi," segir
Auður. ,,Við skulum koma upp til Halldórs, þið
getið þá spjallað saman á meðan ég bý til kaffi.”
Gljúfrasteinn er tvílyft steinhús og kjallari undir. Á
efri hæðinni eru auk vinnuherbergis Halldórs fjögur
svefnherbergi og bað. Á neðri hæðinni eru for-
stofa, gestasnyrting, hol, eldhús og stofur.
Skrifpúlt
Vinnuherbergi Halldórs er ekki sérlega stórt. Allir
veggir herbergisins eru þaktir bókum, alls staðar
eru bækur og blöð I stöflum. Hér inni rikir þetta
sérstaka og róandi andrúmsloft sem svo gjarnan
fylgir bókum. I horninu við gluggann stendur hátt
skrifpúlt. ,,Jú, jú, ég stend við skriftir," segir Hall-
dór þegar talið berst að vinnu hans. ,,Mér finnst
vont að sitja í kút, það er lika óhollt, en hér hef ég
svona háan stól. Hvað eru nú svona stólar kallaðir?
Já, barstóll, alveg rétt, ég hef svona barstól sem
ég tylli mér á af og til.” Á veggnum fyrir ofan skrit-
púlt Halldórs hangir málverk Nínu Tryggvadóttur
i enda stofunnar gegnt
flyglinum er arinninn.
Leðurstóllinn fyrir framan
arininn er hinn frægi
,,egg-stóll” eftir danska
arkitektinn Arne Jacob
sen.
4 Vikan4. tbl.