Vikan - 23.01.1986, Blaðsíða 11
eru „aðalpersónur" leikritsins
Skottuleikur sem nýlega var frum-
sýnt hjá Reviuleikhúsinu. Skottu-
leikur er barnaleikrit i trúðleikastíl,
skrifað af Brynju Benediktsdóttur
sem jafnframt er leikstjóri. Leikritið
byggir á islenskum þjóðsögum,
draugasögum um skottur og móra, en
skotturnar eru gerðar að skripakarakt-
ierum sem minna dálítið á Bakka
bræður. Persónur í leikritinu eru fjór-
ar, Stóra-Skotta sem leikin er af Guð-
rúnu Alfreðsdóttur, Litla-Skotta sem
Guðrún Þórðardóttir leikur og Fina
Skotta sem Saga Jónsdóttir leikur,
en fjórða persónan er hann Móri og
með hlutverk hans fer forkunnarfín
tuskubrúða. í Skottuleik er glens-
að og trallað og tónlistin er ekki af
verri endanum því höfundur hennar
er Jón Ölafsson (já, Jón Ólafsson á
rás II) og söngtexta samdi Karl Ágúst
Úlfsson. Sem sagt, okkur er boðið
upp á fjörugar nútíma draugasögur
hjá Reviuleikhúsinu sem sýnin i Breið-
holtsskóla.
XTessi laglegi ungi prentari með brilljantíngreidda
hárið heitir Jakob Þór Einarsson. Hann er líklega
þekktari sent lúkari en prentari enda hefur hann tek-
ist á við mörg stór hlutverk, þar á meðal aðalhlut-
verkið í Hrafninum, kvikmynd Hrafns Gunnlaugs-
sonar.Jakob Þór útsknfaðist úr l.eiklistarskóla Islands
vorið 1985 og fékk árssamning hjá l.elkfélagi Reykja-
víkuraðfáum mánuðum liðnum. A ntyndinni sjáum
við hann í höndum Eyvindar Þorgilssonar hár-
greiðslumeistara sem smyr brilljantíninu óspart enda
jrarf Itann að koma útlitinu á Jakobi heim og saman
við það sem tíðkaðist fyrir fjörutíu árum, á þeim tíma
sem leikrttið Land rníns föðurá aðgerast. Asamt því
að leika í Land míns föður er Jakob Þór nú að .efa í
Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson í Ieikgerð og
leikstjórn Bríetar Héðinsdóttur. Svartfugl verður
f rumsýndur íbyrjun mars.
Stóra-Skotta, Fína-Skotta,
Litla-Skotta og Brynja Ben.