Vikan - 23.01.1986, Blaðsíða 19
Jonke — Jorn Nielsen, Hell's Angels félagl og eftlrlýstur fyrlr morð.
A flóttanum hefur hann rltað œvlmlnnlngar ainar.
Mit Liv er auökennd sem novelle — skáldsaga.
Þaö fer þó ekkert á milli mála aö þaö sem þar
stendur skrifaö er raunveruleiki. En sagan er vissu-
lega skrifuö út frá sjónarhóli Jonkes og hann gerir
enga tilraun til aö hafa I heiöri fræöilega hlutlægni.
i bókinni lýsir hann bernsku sinni og unglingsárum,
kynnum sinum af og félagsskap I fjölmörgum
minni háttar mótorhjólaklúbbum og siöar Hell’s
Angels. Hann lýsir aödragandanum að moröinu á
Makrellen — Makrllnum — og sjálfu moröinu í
smáatriöum.
Jonke skrifaði sjálfur í fylgsni sinu en
blaðamaðurinn Erik Thygesen hefur haft um-
sjón meö verkinu. Bókin er ótrúlega lipurlega og
vel skrifuö og allt að þvl hugnæm á köflum, en þaö
hljómar að óreyndu eins og kaldhæönislegur
brandari. Þaö er Ijóst aö þessum harösvlraöa
mótorhjólatöffara lætur vel að segja frá og lýsa til-
finningum sinum og hinum mannlega þætti
grimmúölegrar tilveru sinnar. Enda hefur Jonke,
Thygesen og útgáfunni veriö álasaö fyrir það að
bókin sé ekkert annað en tilraun til aö hvltþvo
Jpnke og Hell's Angels og fegra málstaðinn. Lög-
reglan í Kaupmannahöfn segir bókina aöeins fjalla
um ógeöslegan glæp, morð úr launsátri. Talsmenn
lögreglu og dómskerfis hafa viljað sem minnst úr
útkomu bókarinnar gera. Ummæli þeirra I blööum
hafa verið á þá leið aö þeir „timi varla að kaupa
bókina" eöa ,,nenni varla aö lesa hana". Bókin
segir lögreglunni i sjálfu sér ekkert sem hún ekki
veit nú þegar. Fyrir lögregluna er aöalatriöiö aö
hafa hendur í hári Jpnkes.
Tveir af félögum Jpnkes hafa þegar verið hand-
teknir og dæmdir fyrir aöild sina aö moröinu á
Makrílnum. Þeir hlutu 12 og 7 ára fangelsisdóma.
Ef Jonke næst á hann yfir höfði sér ævilangt fang-
elsi.
M oröiö á Makrilnum var hámark átakanna
sem átt höfðu sér staö milli mótorhjólaflokkanna
um langt skeiö. I Kaupmannahöfn er fjöldi slikra
mótorhjólagengja sem eiga I stööugum erjum eða
striöi eins og þeir kalla þaö. Flokkapólitíkin og
„hugmyndafræöi" þessara hópa er illskiljanleg ut-
anaökomandi mönnum. Jonke lýsir skipulagningu
og innra starfi Hell's Angels ekki aö neinu ráði. Aö
mörgu leyti minnir félagsskapurinn, eins og honum
er lýst í bókinni, helst á karlaklúbb þar sem félags-
skapurinn og samkenndin er aöalatriöiö, en I staö
þess aö selja Ijósaperur, fjaörir og heröatré er þeyst
um á Harley Davidson og bariö á mótherjunum, og
vitanlega lýkur þar samllkingunni. En 1 aöra röndina
minna lýsingarnar á átökum ribbaldahópanna á
Iþróttalýsingar, nema tekist er á meö hnúum og
hnefum og vopnum og reglurnar eru engar. Sá
sterkasti og harösvlraöasti sigrar — eins og I stríöi.
Jonke kallar það þegar hann fór úr einu genginu
yfir i annaö aö hann væri að fara úr „3. deild og
upp i 2.". Fyrstu hóparnir, sem hann var I, höföu
aösetui i hverfinu þar sem hann bjó og smám
saman fikraöi hann sig upp „virðingarstigann".
Hell's Angels er háaöall mótorhjólagengjanna. I
þann félagsskap kemst enginn fyrirhafnarlaust.
Þegar Jpnke og félagar æsktu aöildar að Hell's
Angels var mjög svo formlega að þvl staöið og
aöild ekki veitt fyrr en aö undangenginni nákvæmri
athugun og eftir nokkurn reynslutima.
Sterk bræörakennd einkennir mjög samband
félaganna I Hell's Angels og það kemur fram i um-
ræddri þók aö skemmtanir, skröll og alls konar
samkomur og mót eru snar þáttur I „starfsem-
inni". Aö vlsu enda skröllin oft með hávaöaslags-
málum og Ibúöir eru lagðar í rúst, og á mótunum
slær oft i brýnu þegar annaðhvort einhverjir úr öðr-
um óvinaflokkum eöa lögreglan láta sjá sig. Á
stundum flögrar þaö aö manni aö maöur sé aö lesa
hugljúfa ævisögu skátaforingja. Á einum staðsegir
frá dauða eins af dönsku Hell's Angels félögunum I
bilslysi i Bretlandi. Þar er honum gerö vegleg útför
á vegum Englanna I Bretlandi Jpnke sendir honum
kveðju að skilnaði: „Sjáumst á Hells' Angelshimn-
um!"
En Jpnke er eftirlýstur morðingi og hefur marg-
sinnis setiö inni fyrir smærri og stærri ofbeldisverk
gegn félögum úr óvinagengjunum. Miskunnarleys-
ið og grimmdin gagnvart óvininum er hroðaleg.
Engin tilraun er gerö til aö útskýra út á hvaö
„stríöiö" gengur annað en baráttu um yfirráð
yfir svæðum og hverfum. Lögmálið er: auga fyrir
auga, tönn fyrir tönn. En reglan á jafnframt aö vera
sú aö foröast að skaða aöra en óvinina — þá sem
stríöiö er háö gegn. A einum staö I bókinni er þó
hroðaleg lýsing á því er félagarnir sjálfir I Hell's
Angels böröu einn félaga sinna, sem farinn var að
fara illilega I taugamar á þeim, til óbóta og skildu
hann eftir I blóöi slnu. Félaginn lést og nokkrir
hlutu siðar dóm fyrir athæfiö.
Aödragandinn aö moröinu á Makrllnum er
uppgjör milli Hell's Angels og Bullshit gengjanna.
Þaö sem á aö hafa fyllt mælinn og oröiö til þess aö
gefa Jonke átyllu til aö drepa Makrllinn er skotárás
á forseta Hell's Angels I Danmörku, konu hans og
bróður, sem þau sluppu þó ómeidd frá. Makrlllinn
haföi „notaö öll tækifæri sem örlögin höföu
gefiö honum" eins og stendur I fyrsta kafla bókar-
innar. Þar er drápinu lýst i smáatriöum. Strax á
eftir þeim kafla er formáli þar sem Jonke lýsir llfi
slnu þar sem nann fer huldu höföi. Hann dvelur I
sumarbústaöahverfi, dulbúinn eins og „venjulegur
maöur". Hann getur þó ekki látiö sjá mig mikiö ber
vegna tattóveringanna. Hann spjallar viö nágrann-
ana og gantast viö börnin. Enginn veit hver hann
er, ef svo væri þá væri áreiöanlega annaö uppi á
teningnum. Hann fær konu slna (kellinguna eöa
my old lady eins og konurnar kallast I þessu karla-
samfélagi) i heimsókn, svo og „bræöurna". Hann
reikar um strönd og skóga og nýtur frelsis sem
hann veit aö hann veröur sviptur þá og þegar.
Lýsingar þessar veröa einkennilega áhrifamiklar
þegar haft er I huga aö þær skrifar yfirlýstur morö-
ingi og Hell's Angels meölimur.
Þegar Mit Liv kom út I Kaupmannahöfn var
haldinn blaöamannafundur meö pompi og prakt.
Jpnke mætti þó vitanlega ekki á staöinn en þar var
útklippt Ijósmynd af honum I fullri stærö og hann
ávarpaöi fundinn af segulbandi. Hell's Angels fé-
lagarnir fjölmenntu og fyrir utan stóö gljáfægöur
mótorhjólaflotinn. Bókin er tileinkuð Hell's Angels
félagsskapnum og á titilslöunni eru eftirfarandi
frasar I sönnum Hell's Angels anda: An siögæöis er
ekkert tvöfalt siögæöi. Þaö er erfitt aö vera
auömjúkur þegar maöur er bestur.
Vikan 4. tbl. 19