Vikan - 23.01.1986, Blaðsíða 39
arangri enda þekktum við litt til saumavéla og
vorum til að mynda I miklum vafa um það hvernig
við ættum að fara að þvi að láta leðurblökueyrun á
Batman-búningnum standa upp í loftið. Á leiðinni
heim til Íslands með Gullfossi höfðum við einu
sinni fengið hér um bil aðsvif þegar pottormur á
okkar aldri birtist skyndilega I reyksalnum iklæddur
frumstæðum Batman-búningi úr plastíki og nú
fórum við að skipuleggja leyniför upp á Laufásveg,
þar sem drengurinn átti heima, til þess að stela
Batman-búningnum hans. Allar þessar áætlanir
féllu þó um sjálfar sig þegar það rann upp fyrir
okkur hversu smávaxin við vorum. Það leit llklega
ekki nógu vel út þegar við kæmum askvaðandi i
búningum Leðurblöku og Þrastar, þess albúin að
handtaka stórhættulega glæpamenn að brjótast
inn í sjoppu, og bófarnirfæru bara að hlæja um leið
og þeir ýttu okkur frá og toguðu i skikkjurnar okk-
ar. Þegar við uppgötvuðum þessa átakanlegu lif-
fræðilegu staðreynd lögðum við Batman og Robin
endanlega á hilluna og fórum í heimsókn á Para-
dísareplaveg til Andrésar.
Það sem alltaf heillaði mig mest við Andrés-
blöðin voru þau hljóð og upphrópanir sem kyk-
vendi Walt Disneys gáfu frá sér þegar þau voru
ekki beinlinis að tala dönsku. Þetta þekkja allir
dyggir lesendur Andrésblaðanna. Þegar Feitimúli
— sem mér er lífsins ómögulegt að kalla Guffa
enda þótt meiri horrengla finnist varla í samanlögð-
um teiknimyndabókmenntunum — þegar hann og
aðrir kappar verða fyrir einhverju óvæntu þá er
segin saga að það myndast hugsana- og/eða tal-
blaðra á þessa leið:
arlega á mig. Þegar ég fór síðarmeir til Danmerkur
stundaði ég, svo lltið bar á, rannsóknir á þessu at-
■ riði og reyndi meira að segja að bregða Dönum vis-
vitandi til þess aö athuga hvort þeir segðu
„GISPI"
Það var sama hvað ég reyndi, aldrei heyrði ég
nokkurn mann segja ,,GISP!" Að lokum komst ég
að þeirri niðurstöðu að þetta hlyti að vera einhver
mállýska úti á Jótlandi þar sem Andabær er og
varð þá nokkuð rórra.
Dýrahljóðin í Andrésblöðunum voru mér líka
stöðugt rannsóknarefni. Raunar eru dýrin i
Andrésblöðunum sérkapítuli út af fyrir sig. Húsdýr
halda húsdýr; það gerist meira að segja iðulega í
Andrésblöðunum að Mikki mús fer á andaskyttirí i
stað þess að bregða sér bara út á Paradísareplaveg
og negla Andrés önd. Er ekki eitthvað perverst við
þetta? — og ég á ekki við þær niðurstööur sænsk-
ættaðra sérfræðinga að Andrés önd — eða ætti ég
að segja Kalle Anka? — sé beinlínis hættulegur fyr-
ir börnin sakir kynþáttafordóma og brota á jafnrétt-
islögum.
En það voru dýrahljóðin. Ég vissi fyrir að Ijón
öskruðu, það hafði ég lesiö í Tarzan-bókunum. I
Andrésblöðunum kom það svo í Ijós aö þegar
Ijónin öskruðu þá sögu þau bara ,,BR0L" eöa
þegar mikið lá við ,,BR0000000L!" Þetta fannst
mér heldur tilkomulítiö miðað við fjálglegar lýsingar
Tarzan-bókanna en huggaði mig við að þetta
væru, þegar öllu væri á botninn hvolft, bara dönsk
Ijón. Jarmið í kindunum olli mér enn meiri vanda.
Ég hafði verið í sveit á sumrin meira eða minna frá
því ég fór að geta staðiö i lappirnar og vissi vel að
kindurnar sögðu ,,me" hver við aðra. Ég haföi
meira aö segja náð töluverðri leikni i kindamáli og
átti oft innihaldsrikar samræöur við kindurnar úti á
túni. Það er að segja: ég vona að þær hafi verið
innihaldsríkar. Ég skildi náttúrlega ekki eitt einasta
,,me" en kindurnar svöruöu mér altént svo
eitthvað hlaut ég að vera að segja.
Kindurnar í Andrésblööunum sögðu hins vegar
,,be" og það fannst mér furðum sæta. Þegar við
fórum til Grikklands ákvað ég að sannreyna þetta,
lá löngum stundum úti i haga og hlustaöi á hinar
dindillöngu grisku kindur rabba saman. Og viti
menn. Eftir langar og nákvæmar rannsóknir komst
ég að því að þetta var einmitt raunin: þær jörmuöu
,,be” en ekki ,,me”. Enda kom það á daginn, þeg-
ar ég reyndi að halda uppi samræðunum, þá virtu
þær mig ekki viölits. Ég jarmaöi útlensku.
Þetta þótti mér afar dularfullt og fékk alltaf loðin
svör um það hjá mömmu og pabba hvað þetta
þýddi. Sjálfum fannst mér einna líklegast að þetta
væri einhvers konar geispi en gat það átt sér stað
að i Andabæ væru menn þvílíkar hetjur að þeir *
geispuðu á hættustund? Ég ákvað að prófa þetta á
sjálfum mér, gekk um i fjölskylduboðunum og
sagði: ,,GISPI" i öðru hverju orði en hætti þvi fljót-
lega þegar ættingjar mínir voru farnir að horfa und-
Vikan 4. tbl. 39