Vikan - 17.07.1986, Blaðsíða 7
TEXTI: HÓLMFRÍÐUH BENEDIKTSDÓTTÍR LJÓSM.: RAGNAR TH.
Veljið meikið eftir eigin húðlit, á kinninni en
ekki á handarbakinu. Meikið, sem hér er not-
að, er NN Porcelain. Bleytið svampinn í vatni
og kreistið vel úr honum, hann á rétt að vera
rakur. Setjið meik á handarbakið og notið
svampinn. Með svampinum fæst jafnari og fall-
egri áferð en ef fingurnir eru notaðir. Strjúkið
niður á við og út til hliðar. Þá er komið að
púðrinu. Notið laust púður og dúmpið laust
yfir andlitið með púðurkvasta. Nú er í tísku
að hafa andlitið matt svo þetta má ekki gleym-
ast. Síðan er laust púður strokið af með
púðurburstanum. Púðurburstann á ekki að
setja beint í púðurdósina. Notið ljóst púður,
hér Transparent írá NN.
Augnskuggamir eru valdir eftir fötunum eða
smekk hvers og eins. Nú er í tísku að hafa
marga liti í einu. í dagsnyrtingu eiga þeir þó
ekki að vera áberandi og skil milli litanna eiga
ekki að sjást. Notið snyrtipinna til að jafna lit-
ina út. Hér er gulur litur fyrst borinn á
augnalokið frá augnakrók upp á mitt augnalok
og dreift mjúklega upp að augabrún. Liturinn
er frá SG, nr. 38. Brúnn litur, Chocolate frá
SG, er borinn á frá miðju augnaloki og út.
Hann er ekki látinn ná upp að augabrún. Þriðji
liturinn, appelsínugulur SG nr. 39, er borinn á
undir augabrúnina, frá miðri augabrún og út.
Einnig má setja örlítið á mitt augnalokið, á
milli gula og brúna litarins. Mildið skil milli
litanna með snyrtipinna. Þá er máluð fín lína
með pensli utan um augað. Hér er notaður
svartur augnskuggi frá NN en hægt er að nota
hvaða dökka lit sem er.
Svartur maskari frá SG er borinn á augnhárin
og síðan burstað yfir þau með maskaraburstan-
um til að jafna þau. Augabrúnir eru dekktar
með brúnum maskara. Þurrkið úr burstanum
áður því liturinn má alls ekki vera of mikill.
Þegar maskari er notaður á augabrúnir er auð-
veldara að eiga við þær. Strjúkið burstanum
upp á við og þá haldast augabrúnirnar „villtar".
Nú er í tísku að nota kinnalit með sem eðlileg-
ustum lit. Það hefur vafist fyrir mörgum hvar
kinnaliturinn á að vera. Það fer eftir andlits-
falli en ágætt er að miða við skálínuna milli
munnviks og efri brúnar eyrans, það er undir
kinnbeini. Hér er notaður Yci rose kinnalitur
frá SG. Notið kinnalitarpensilinn. Skil eiga
ekki að sjást og því er strokið létt yfir með
púðurkvastanum.
29. TBL VIKAN 1