Vikan - 17.07.1986, Blaðsíða 54
S 0 • N
MADONNA
Hún er 26 ára gömul og heitir fullu nafiii
Madonna Louise Veronica Ciccone. Hún er
vinsælasta söngkonan síðan Cyndi Lauper og
Tina Tumer komu fram á sviðið. En hún er
metnaðargjörn og vill ekki bara verða þekkt
sem söngkona heldur vill hún einnig verða leik-
kona. Frægðin er henni meira virði en pening-
amir sem fylgja í kjölfarið. í kvikmyndinni
Desperately Seeking Susan leikur Madonna
lausláta rokkstjömu og hún er bjartsýn á vin-
sældir myndarinnar. Lagið hennar, Like a
Virgin, hefur verið bannað í mörgum löndum
en Madonna tekur því rólega og segir að það
sé bara góð auglýsing. Erfiðast við frægðina
segir Madonna að sé að hún fái mikið af bréfum
frá fólki sem annaðhvort biðji um að fá send
undirfötin hennar eða bölvi henni og segi henni
að fara til helvítis. Með nafni sínu og framkomu
er hún að reyna að brjóta niður goðsögnina
um að konur séu annaðhvort englar eða mellur.
DIANA ROSS
Hún segist hafa verið svo lánsöm að lög
hennar hafi höfðað jafnt til unglinga og for-
eldra þeirra. Hún tekur stjömuhlutverkið
alvarlega vegna þess að henni finnst það
ábyrgðarhluti að þurfa að vera öðrum til fyrir-
myndar. Hún beið eftir fleiri kvikmyndahlut-
verkum eftir að hafa verið útnefnd til
G B
óskarsverðlauna fyrir myndina The Lady Sings
the Blues. Ekkert gerðist svo að hún stofnaði
eigið kvikmyndafyrirtæki og er að vinna að
mynd sem kallast The Josephine Baker Story.
Hún er nú orðin fertug og segir að það eina
sem ekki hafi breyst í lífi sínu sé vinnugleðin.
Hún er einstæð móðir með þijár dætur en góð-
ur vinur hennar er Michael Jackson.
MICK JAGGER
Hann er nú kominn yfir fertugt og ætlar að
helga krafta sína tónlistinni, kvikmyndum og
dætrum sínum. Hann hefur nýlega sent frá sér
nýja hljómplötu sem ber heitið She’s the Boss.
Hann segir til skýringar að konur ráði oftast
ferðinni. Hann segist hafa þroskast og hafa
meira vald yfir lífi sínu. Hvers konar faðir er
hann? „Börn verða að hafa aðhald, sérstaklega
rik börn, til að byggja upp skapgerðina. Ég vil
ekki að dætur mínar lifi af arfinum, geri ekk-
ert og veslist upp af leiðindum. Lífið er alltof
skemmtilegt til þess,“ svarar Jagger.
FRANK SINATRA
Það er erfiðara að komast inn í upptökusal-
inn þegar hann er að syngja inn á plötu en að
komast inn í Pentagon. Einkennisklæddir verð-
ir eru alls staðar til að koma í veg fyrir að
R 0 T
óviðkomandi komi nærri. Milljónir dollara eru
í veði ef ekki tekst vel til. Allt er gert til að
láta allt ganga rólega fyrir sig. Sinatra er allt-
af mjög afslappaður þegar hann er í upptöku
og syngur á fastandi maga. Hann gerir að gamni
sínu. Hann endurtekur lögin þangað til hann
er ánægður með útkomuna. Eftir þriggja tíma
törn fer hann út að borða. Það tekur nokkur
kvöld að ljúka plötunni.
NEIL DIAMOND
Hann hætti snemma í skóla og byrjaði að
skrifa söngtexta þegar hann var 16 ára gamall.
Hann ákvað þá að gera það að atvinnu sinni
að skrifa texta fyrir aðra. En það gekk ekki.
Sjálfur ætlaði hann aldrei að syngja. Hann
hætti við að breyta nafni sínu vegna ömmu
sinnar en hann var hræddur um að hún gæti
ekki fylgst með sér ef að hann gerði það. Hann
hætti að syngja í fjögur ár árið 1972. Þá var
hann búinn að vera á stanslausum hljómleika-
ferðum í sex til sjö ár. „Mér þykir mjög vænt
um það þegar lögin mín ná til fólks því að þau
eru nokkurs konar framlenging af sjálfum
mér,“ segir hann. „Einmanakenndin er rauði
þráðurinn í lögunum mínum. Og frægt fólk er
alltaf einmana af því að það er ekki meðtekið
af fjöldanum heldur sett sér á pall.“
HARRY BELAFONTE
Það tók hann 32 ár til að verða uppgötvað-
ur. í fyrstu var hann dægurlagasöngvari en
sneri sér svo að þjóðlögum. Hann naut engrar
tónlistarmenntunar og kann ekki að lesa nót-
ur. „Ef þið sæjuð fjölskyldu rnína saman komna
mynduð þið sjá Sameinuðu þjóðirnar saman
komnar. Móðuramma mín var ljóshærð og blá-
eygð frá Englandi og svo á ég kolsvarta forfeður
líka. í Vestur-Indíum er algengt að fólk af ólík-
um litarhætti giftist. Ég byrjaði að berjast fyrir
tilveru minni þegar ég var 10 ára gamall og
dreymdi aldrei um heimsfrægð. En meðal vina
minna voru Matthau, Marlon Brando, Eleanor
Roosevelt, Martin Luther King, Malcolm X og
Jack Kennedy."
54 VIKAN 29. TBL