Vikan - 17.07.1986, Blaðsíða 39
ur. „Það eru hér margar lautir sem
við leikum okkur í og hér eru litlar
tjarnir og lækir. Svo var einu sinni
beljuskítur þarna,“ segir hann og
bendir út á túnið. „En eru engir fugl-
ar hérna?“ „Jú, eiginlega alltaf, og
það koma líka hrafnar sem taka egg-
in úr hreiðrunum. Það búa líka mýs
hérna undir húsinu.“ „Nú, hvað gera
þær?“ „Þær bara lifa eins og við.“
„Nú átt þú afmæli bráðum, hvernig
ætlar þú að halda upp á það?“ „Ég
veit það ekki, ég ætla bara að halda
upp á það þegar þar að kemur, ég
er ekkert að hugsa um það núna.“
Nú er viðmælandi okkar greinilega
orðinn þreyttur á öllum þessum
spurningum, hann er siginn niður í
sætinu og farinn að muldra í peysuna
sína. „Benni, ekki tala svona ofan í
peysuna þína.“ „Jæja, hvað á ég að
segja?“ „Hvað ætlar þú að gera þeg-
ar þú verður stærri?“ „Ertu að meina
hvar ég ætla að vinna? Ég ætla ann-
aðhvort að verða lögga eða búa til
dýnur. „Heldur þú að það sé gaman
að vera lögga?“ „Ég veit það ekki,
ég er ekki búinn að prófa það. En
löggan stoppar bílana, sem keyra of
hratt, og svo tekur hún bófana.“ „Er
mikið af bófum á íslandi?“ „Nei,
bara svolítið mikið.“
Benni á heima í Hafnarfirði og við
spyrjum hann næst hvort hann eigi
marga vini þar: „Já, fimm. Þeir heita
Arngrímur, Nökkvi, Maggi, Palli og
ég man ekki hvað hinn heitir.“
„Hvað er skemmtilegast að gera með
þeim?“ „Ég veit það ekki, ég er ekki
búinn að gera allt í öllum heiminum.
Það er gaman að hjóla, einu sinni
datt ég á hausinn af hjólinu. Það
kom gat og steinn inn í hausinn. Ég
þurfti að fara á slysavarðstofuna og
læknirinn saumaði helminginn af
hausnum á mér. Jæja, ég má ekki
vera að því að tala við þig meira, ég
ætla að fara út á bát með pabba
mínum. Við ætlum að setja út net
og ég á hringina sem halda þeim
uppi. Ég fann þá í fjörunni í Krísu-
vík.“ „Hvað ætlið þið að veiða?“
„Bara eitthvað, við vitum ekki hvað
kemur í netin, það er eiginlega alltaf
silungur." Aður en við sleppum
Benna spyrjum við hann hvort það
sé gott að vera í sveitinni. „Já, ekki
alltaf, en ég er búinn að gleyma
hvenær það er ekki gott. Jú, þegar
við Olla systir mín erum að rífast.“
Og þar með var Benedikt rokinn í
burtu.
VEISTU SVARIÐ?
1. Hvað heitir fyrsta mjólkin sem kemur úr kúnni
eftir að hún hefur eignast kálf?
2. Hvar dvelur skógarþrösturinn á veturna?
3. Hver var Jóhannes Sveinsson Kjarval?
4. Hvað getur fíll orðið gamall?
5. Hvaða íþrótt er bannað að iðka á íslandi?
6. í hvaða sýslu er Gullfoss?
7. Hvað tákna litirnir í íslenska fánanum?
8. Hvað heitir höfuðborg Bandaríkjanna?
9. Hvaða trjátegund er aðallega notuð sem jólatré?
10. Hvað heitir eini jökullinn á Vestfjörðum?
11. Hvað er það sem alltaf er með kamb en kembir sér
þó aldrei?
12. Hvaða hundar bíta aldrei?
13. Hvaða munur er á fló og fíl?
14. Hvaða mús getur kötturinn ekki veitt?
15. Á hvaða fiski er styst milli augnanna?
16. Hvaða dýr geta hoppað hærra en hús?
SVÖR
•QBddoq bjsS sni[ tac[ x£p [[Q '91
•uinuiifsg Bjsuuijý -gx
•snmn[jo;jBX 'fi
"JBUUIJBpU I5[Bq B QIJ0S T5[5[8
JUJ8§ UUT[[TJ U8 SUTS[TJ T5[Bq B QTJ8S JUJ8§ UTp^Q ’gj
•jupunq JignBjj 'gj
"UUTUBJJ ‘XX
•[[U5[pCB§UBJQ '0X
•8JJTU8JQ -g
•uoj§uiqsB^\ ’8
•JBQJBC ranJQT T BUBp[8 So BUUB
-[qoC Bqi8[UT8jq ‘buub[[bCj BUiB[q Buqpj qb bSts jtsq 'i
*n[sÁss8Ujy j -9
•BqT8[BJ8TIJJ -g
•bjb 0l nq q*<\ n
•TJB[BUIJSTQ ‘g
•umCÁ8spuB[j8jg y
•jnppojg 'x
29. TBL VIKAN 39
u