Vikan - 17.07.1986, Blaðsíða 25
Frá útisamkomu Hjálpræðishersins árið 1985.
Frá barnastarfi Hjálpræðishersins.
trúarsamtök hér og hefur það haldist æ síðan.
Fyrstu samkomurnar hér voru haldnar í húsi
Góðtemplarareglunnar.
Hjálpræðisherinn eignaðist hér fljótlega tvo
velunnara, þá Björn Jónsson, ritstjóra ísafold-
ar, og Þórhall Bjamarson, ritstjóra Kirkjublaðs-
ins. Þegar Herópið, aðalmálgagn Hjálpræðis-
hersins, kom hér fyrst út síðla árs 1895 skrifuðu
þeir báðir hlýlega um blaðið og starfsemina
almennt. Björn ritaði svo: „Herópið, hið nýja
mánaðarblað Hjálpræðishersins hér, er snoturt
útlits, með myndum, „Ef Kristur kæmi í
drykkjuskálann“ og af ritstjóranum adjudant
Erichsen og að efni mikið liklegt til að efla
trúrækni og siðgæði. Það er í sama broti og
ísafold. Það er 28. Herópið er Hjálpræðisherinn
gefur út; eru þau á 18 tungumálum alls, og
upplag meira en hálf milljón." Og Þórhallur
sagði: „Hafi Hjálpræðisherinn með öllum sínum
vanköntum sæll komið til þessa lands, allra-
mest fyrir það, að hann er lifandi minning þess,
að Guðs ríki er þó fyrst og fremst sjálfsafneit-
andi líf á kærleiksvegi Krists, ofar orðasvæl-
unni og öllum vatnaskilum tvístraðra
trúflokka."
HÓTEL REYKJAVÍK
OG HERKASTALINN
Stuttu eftir að Hjálpræðisherinn kemur hing-
að fær hann Hótel Reykjavík undir starfsemi
sína. Það stóð þar sem höfuðstöðvar Hjálpræð-
ishersins á íslandi eru nú. Það er síðan rifið og
á sama grunni reist stórt og reisulegt hús sem
almenningur gefur nafnið „Herkastalinn", nafn
29. TBL VIKAN 25