Vikan

Tölublað

Vikan - 17.07.1986, Blaðsíða 23

Vikan - 17.07.1986, Blaðsíða 23
Gott væri að geta gleymt... Michael Landon erekki beint líkur pabban- um I Húsinu á sléttunni. Hér er hann unglingsvarúlfur í I Was a Teenage Werewolf. Steve McQueen (Steven) er hér I mjög slæmri kvikmynd er ber heitið The Blob. Einhvers staðar verða allir að byrja. Svo er einnig um stórstjörnur kvikmyndanna í dag. Flestar þeirra hafa einhvern tíma í byrjun fer- ils síns leikið í myndum sem þær vilja helst gleyma og mundu fegnar borga fyrir eignarrétt- inn á þessum myndum svo þær væru ekki til sýningar. En myndbandamarkaðurinn hefur opnað nýjar leiðir fyrir þessar myndir. Þær eru nú gefnar út og leigjast vel út á nafn stjörnunn- ar sem er flennistórt á kápu, þó aðeins hafi verið um smáhlutverk að ræða og meira að segja oft undir öðru nafni. Tökum sem dæmi þrjá titla, Curse of the Liv- ing Corpse, Revenge of the Creature og I Was a Teenage Werewolf. Gætuð þið ímyndað ykkur að kvikmyndastjörnur á borð við Clint East- wood, Roy Scheider og Michael Landon tækju að sér hlutverk í myndum með þessi nöfn? Samt er það nú svo, þeir léku í þessum mynd- um. Roy Scheider lék í Curse of the Living Corpse og gefur leikur hans þar ekki beinlínis til kynna að þar sé á ferðinni upprennandi stjarna. Þótt myndin sé núna auglýst með Roy Scheider hét hann þá Roy Sheider. Sjálfur Clint Eastwood leikur aðstoðarmann á tilraunastofu í Revenge of the Creature. Og pabbinn í Húsinu á sléttunni, Michael Landon, er unglingsvarúlf- ur í I Was a Teenage Werewolf. Donald Sutherland er hér faðmaður af blóðsugu I Dr. Terror's House of Horrors. Skulu hér nokkur fleiri dæmi tekin, af nógu er að taka. Einhver allra versta hryllingsmynd, er gerð hefur verið, er The Blob og mundi sú mynd löngu gleymd ef ekki væri í einu aðal- hlutverkanna ungur leikari, Steve McQueen eða Steven McQueen eins og hann nefnist þar. Fjallar myndin um hóp af unglingum sem bjarga bænum sínum frá því að eitthvað í tóm- atsósulíki hylji hann. Kannski er það Jack Nicholson sem á að baki flestar slæmu myndirnar. Hann var um tíma hjá Roger Corman sem hafði það fyrir sið að gera eina mynd á viku. Meðal hlutverka Nicholsons hjá Corman var hlutverk í The Raven þar sem hann lék son Peters Lorre. Myndin þótti ekki svo slæm en leikur Nichol- sons gefur ekki til kynna að þar sé á ferðinni einn af stórleikurum seinni ára. Donald Sutherland á einnig slæmar minning- ar frá fyrri árum. Ein myndin, sem hann lék í, nefnist Dr. Terror’s House of Horrors. Þetta er blóðsugumynd og er honum svo sannarlega vorkunn að hafa leikið í henni. Hann lék einn- ig í annarri mynd sem hann vildi helst gleyma sem fyrst, Die, Die, My Darling. Þar lék hann heilaskertan vinnumann á óðalssetri þar sem nokkur morð voru framin. Allir vita að Madonna er upprennandi leik- Til vinstri á myndinni er Jack Nicholson í The Raven ásamt Peter Lorre og Vincent Price. Ekki svo slæm mynd en leikur Nic- holsons hörmulegur. kona, sem og skærasta stjarnan í poppheimin- um í dag. Hún á samt að baki leik í kvikmynd sem hún hefði betur látið eiga sig. Myndin nefnist A Certain Sacrifice. Þar leikur hún stúlku sem eltist við hrottafenginn nauðgara. Myndin er öll eins og hún hafi verið tekin á 16 millímetra myndavél af manni á hjólaskaut- um. Meira að segja nektarsenur með Madonnu eru leiðinlegar. Sagt hefur verið um Sylvester Stallone að hann hafi byrjað feril sinn í bláum myndum. Engar sannanir eru til um það. Rebel er aftur á móti til. Þar leikur hann ungan mann sem er í hópi manna sem ætla sér að sprengja upp verksmiðju. Það er eins um þessa mynd og mynd Madonnu, hún er varla í fókus og eins og hún sé gerð á litla heimiliskvikmyndavél - og ekki sýnir Stallone meiri leikhæfileika hér en hann hefur gert í nýrri myndum sinum. í lokin skal svo geta einnar myndar sem ætti að vera skárri en þær sem áður eru nefnd- ar. Þar eru nefnilega þrjár, þá óþekktar, stjörn- ur sem allar koma við sögu. Þetta er The Wedding Party. Leikararnir eru Robert De Niro og Jill Clayburgh og leikstjóri er Brian De Palma. Öll stiga þarna frumspor í illa gerðri kvikmynd og leiðinlegri. 29. TBL VIKAN 23 UMSJÓN: HILMAR KARLSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.