Vikan

Tölublað

Vikan - 17.07.1986, Blaðsíða 11

Vikan - 17.07.1986, Blaðsíða 11
NAFIM VIKUNIMAR: Ragnheiður Hermannsdóttir Um sömu dyr í rúma fjóra áratugi TEXTI: ELÍN BÁRA MAGNÚSDÚTTIR MYND: VALDÍS ÚSKARSDÚTTIR „Vélvæðingin hefur breytt miklu í starfsháttum bankans, hún hefur flýtt fyrir allri þeirri starfsemi sem hér fer fram auk þess sem hún hefur haft í för með sér breytta starfstilhögun víða innan bankans,“ sagði Ragnheiður Hermannsdóttir, forstöðumaður af- greiðsludeildar ábyrgðar- og inn- heimtudeildar Landsbanka íslands, er hún var innt eftir þeim breytingum sem orðið hafa á starfsháttum bankans. Ragnheiður hefur starfað í bankanum í 42 ár og er meðal elstu starfsmanna bankans. Við völdum Ragnheiði sem nafn Vikunnar í tilefni af nýafstöðnu aldarafmæli Landsbanka íslands. „Starfsemi bankans hefur líka vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum. Þegar ég hóf störf hér í aðalbankanum, árið 1944, var starfsemi aðalbankans einungis hér í húsinu við Austurstræti en nú hefur hann lagt undir sig þrjú hús sem duga þó ekki lengur til því bankinn hefur líka aðstöðu á hinum ýmsu stöðum hér í nágrenninu. Aukin starfsemi hefur kallað á fleira starfs- fólk. í gamla daga þekkti maður alla þá er unnu hér í aðalbankanum með nafni en það gerir maður ekki lengur því hér vinna nú um 200 manns.“ Við spurðum Ragnheiði að því hvort hún hefði tekið þátt í undirbúningi afmælishaldsins? „Já, okkur yfírmönnunum var skylt að sjá um afmælisdaginn sjálfan sem haldinn var hátíðlegur' á öllum af- greiðslustöðum bankans. Starfsfólkið skiptist á um að taka á móti gestum allan daginn. Við buðum upp á veiting- ar og börnunum var gefið smádót og blöðrur. Lúðrasveit kom tvisvar um daginn og spilaði nokkur lög. Við móttöku gestanna létum við fortíð og nútíð mætast og fengum tvo starfs- menn bankans, karl og konu, til að klæðast búningum frá 19. öld. Þau tóku á móti gestunum ásamt öðru starfsfólki bankans sem bar nýja ein- kennisbúninginn er hannaður var í tilefni af afmælinu.“ - Má starfsfólkið vænta einhverra breytinga í tilefni af afmælinu? „Já, það á til dæmis að opna félags- og fræðslumiðstöð við Álftavatn, þar sem sumarbúðir bankans eru, en þar verður meðal annars aðstaða til nám- skeiða- og ráðstefnuhalds. Annars má segja að allar þær bi’eytingar, sem fyr- irhugaðar eru, séu í tengslum við beinlínuvinnsluna (on-line) sem á að fara að taka í notkun hér í bankanum. Með þeirri tækni fer til dæmis allt sem gjaldkerinn stimplar inn á vél strax inn í kerfið. Þetta nýja kerfí hefur í för með sér miklar breytingar á starf- semi bankans og í því sambandi má til dæmis nefna að starfsfólkið þarf á end- urmenntun og ymiss konar fræðslu að halda.“ Nú ert þú meðal fyrstu kvenyfir- manna bankans, er sama hlutfall karla og kvenna í æðstu stöðunum? „Nei, það er langt frá því. Hér á árum áður voru karlar í miklum meirihluta meðal starfsmanna en nú hefur þetta snúist við og á móti hverjum tveimur körlum vinna þrjár konur. Þrátt fyrir þessa aukningu á hlutfalli kvenna er ekki um að ræða sama hlutfall kynj- anna í efstu flokkunum en vonandi er þetta að breytast. Það má svo bæta því við að engin kona situr í bankaráði Landsbankans.“ - Hvernig er að hafa unnið á sama vinnustaðnum í 42 ár? „Mér hefur alltaf líkað mjög vel að vinna hérna. Hér hefur alltaf verið mjög góður starfsandi, að minnsta kosti á þeim stöðum þar sem ég þekki til. Eg þyrjaði að vinna hérna sextán ára gömul og það hefur aldrei hvarflað að mér að skipta um starf, að minnsta kosti ekki alvarlega. Ég hef gengið inn um sömu dyrnar í þau 42 ár sem ég hef starfað hérna og mér finnst það ósköp notaleg tilfinning.“ 29. TBL VIKAN 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.