Vikan - 17.07.1986, Blaðsíða 51
P 0 S T U R
SVÆÐANUDD
Ágæti Póstur.
Ég hef aldrei skrifað þér áður en mig vant-
ar upplýsingar. Mig langar til að læra
svæðanudd (punktanudd) en veitekki hvert
ég á að snúa mér. Getur þú hjálpað mér og
gefið mér einhverjar upplýsingar. i von um
birtingu.
Ein sem bíður eftir svari.
77/ þess að fá upplýsingar um nám í
svæðanuddi verður þú að leita til Svæða-
meðferðarfélagsins sem hefur aðsetur að
Austurströnd 3. Seltjarnarnesi. Félagið hefur
ekki ennþá tekið ákvörðun um það hvort
haldin verða námskeið næsta vetur en ef
það verður gert verður það rækilega auglýst
í dagblöðunum I haust. Námið tekur tvo
mánuði. Æskilegt er að hafa einhverja undir-
stöðumenntun í líffærafræði eða að hafa
kynrit sér líffærafræði að einhverju leyti. Líf-
færafræðin er kennd þrisvar í viku á kvöldin
en allt sem lýtur að hinum verklega þætti
þessa náms er kennt um helgar. í fyrra kost-
aði eitt námskeið 16.000 krónur en búast
má við einhverri hækkun ef námskeiðin
verða haldin næsta vetur.
Pósturinn vonar að þessar upplýsingar
komi þér að einhverju gagni og ef þú hefur
ennþá áhuga á að læra svæðanudd skaltu
hafa samband við Svæðameðferðarfélagið
og láta vita af þér.
AÐDAENDA-
KLÚBBAR
Póstinum hafa borist heimilisföng nokk-
urra aðdáendaklúbba frá lesanda. Við
kunnum honum bestu þakkir fyrir.
Sylvester Stallone
c/o Creative Artists Agency
Inc. 1888, Century Park East
Suite 1400
Los Angeles, Californ/a
USA 900067
SADE
c/o CBS Records
Bleichstrasse 64-66a
6000 Frankfurt/Main 1
The Cure
c/o Fiction Records
28. Ivor Place
GB-London, NW 1
Michael J. Fox
c/o Paramount
5451 Marathon Street
Hollywood, California
USA 90028
Elton John
c/o Rocket Records
125. Kensington High Street
GB-London W8 5 SN
England
Pet Shop Boys
c/o EMI Electrola
Maarweg 149
5000 Köln '
Bronski Beat
c/o Metronome
Uberseering 21
2000 Hamburg 60
Sting
c/o Deutsche Grammophon
Glockenige Berwalle 3
2000 Hamburg 1
ENGAR
BLÆÐINGAR
Kæri Póstur.
Þannig er mál með vexti að ég byrjaði að
taka pilluna í fyrsta skipti fyrir tveimur mán-
uðum. Síðan þá hef ég ekki fengið blæðingar
í þau tvö skipti sem þær hafa átt að vera (7
daga fríin). Ég hef alltaf tekið pilluna inn,
aldrei gleymt henni, þannig að ég get ekki
verið ólétt. Hvað á ég að gera og hvernig
stendur eiginlega á þessu?
Dísa.
Þegar kona tekur inn pilluna verða blæð-
ingar miklu minni en venjulega og stundum
falla þær alveg niður. Þó það gerist einu sinni
er engin ástæða til að óttast en ef um tvö
eða fleiri skipti er að ræða skaltu endilega
fara og tala við lækni. Þú segist aldrei hafa
gleymt að taka inn pillu en þú skalt samt til
vonar og vara fara með þvagprufu og fá úr
þvi skorið hvort þú sért barnshafandi eða
ekki. Það að blæðingar falli niður hjá þér
getur einnig bent til þess að sú tegund sem
þú tekur inn áf pillunni hæfi þér ekki og þá
þarftu að skipta um tegund. Það er Hka til í
dæminu að þú þolir ekki að taka pilluna og
þá verður þú að fá þér aðra getnaðarvörn.
LJOS-
MÆÐRANÁM
Kæri Póstur.
Við erum hér tvær vinkonur utan af landi
og vantar upplýsingar um Ijósmæðranám.
Hér koma spurningarnar:
1. Er einungis hægt að stunda þetta nám í
Reykjavík?
2. Hvaða menntun þarf maður að hafa til
að komast í Ijósmæðranám?
3. Hver er lágmarksaldurinn?
4. Hvað er þetta langt nám?
5. Starfa Ijósmæður einungis við fæðingar-
hjálp að námi loknu?
Jæja Póstur, þú verður að svara þessu
bréfi fyrir okkur því við höfum mikinn áhuga
á þessu námi og hér er hvergi hægt að fá
upplýsingar.
Með von um birtingu.
Tvær utan af landi.
Ljósmæðranám er einungis hægt að
stunda í Ljósmæðraskóla íslands sem hefur
aðsetur í Reykjavík. Síðustu tvö árin hafa
eingöngu hjúkrunarfræðingar verið teknir
inn í skólann sem þýðir að þið þurfið að
hafa stúdentspróf til þess að komast í hjúkr-
unarfræði við Háskóla íslands þar sem
Hjúkrunarskóli íslands hefur nú verið lagður
niður. Þar sem hjúkrunarfræðimenntunar er
krafist skiptir aldur engu máli. Námið tekur
tvö ár. Að námi loknu starfa Ijósmæður við
ýmis störfsem tengjast barnshafandi konum
og fæðingum, tii dæmis má nefna fæðingar-
hjálp og hjúkrun, mæðraskoðun, hjúkrun
barnshafandi kvenna, hjúkrun og umönnun
sængurkvenna og ungbarna.
Pósturinn vonar að þið séuð einhvers vís-
ari um þetta nám og þá er bara að sækja
um en umsóknareyðublöð fást hjá Ljós-
mæðraskóla íslands.
29. TBL VIKAN 51