Vikan

Tölublað

Vikan - 17.07.1986, Blaðsíða 12

Vikan - 17.07.1986, Blaðsíða 12
Þá er best að fara að opna budduna og borga afnotagjald Ríkisútvarpsins. Hún er komin á skjáinn, þessi árlega auglýsing sem minnir okkur á að afnot af hinum nauðsynlegu íjölmiðlum, hljóð- varpi og sjónvarpi, eru ekki alveg ókeypis. Margir bölsótast yfir gíróseðl- unum sem detta inn um lúguna tvisvar á ári og finnst upphæðin allt of há. En sjónvarpsauglýsingin sannfærir okkur um annað; þriðjung af pylsu með öllu, hálfan mjólkurlítra eða einn banana er hægt að fá fyrir þær sautján krónur sem afnotin kosta á dag. Ekki var það mikið! Valdís ljósmyndari laumaðist inn í stúdíóið og myndaði „vísitöluíjölskyld- una“ er upptökur stóðu yfir nú fyrir skömmu. Sú íjölskylda var reyndar óvenju heppin, fékk marga pylsuþriðj- unga, banana og mjólk til að skola niður. Lék grunur á að þau gerðu mistök vilj- andi svo það þyrfti að taka upp aftur og aftur!! Viðtækjaeign fjölskyldunnar sem aðeins kostar 17 krónur að nota—fyrir þau öll... Kvenrödd segir íþróttafréttir Það vakti óneitanlega athygli að heyra kven- rödd í íþróttafréttatíma útvarps. Það hafði aldrei gerst áður. Allir íþróttafréttamenn út- varps og sjónvarps hafa hingað til verið karlkyns og fáar konur hafa fengist við íþrótta- fréttamennsku á blöðum. Þetta er athyglisvert þegar litið er til þess hvort tveggja að mikill fjöldi kvenna stundar íþróttir og konum hefur fjölgað mjög á öllum fjölmiðlum í seinni tíð. Kvenröddin í útvarpinu er rödd Hjördísar Árnadóttur sem nýverið hóf störf sem sumar- maður í íþróttafréttum útvarps, rás 1 og 2. Hún lauk prófi frá íþróttakennaraskólanum nú í vor og er mikill áhugamaður um íþróttir. I síðasta tölublaði tímarits Kvenréttindafé- lags íslands, 19. júní, var endursögð klausa úr norska blaðinu Kvinner í Media. Þar kom fram að norskar íþróttafréttakonur kvarta undan því að fólki þyki íþróttafréttamennska ekki við hæfi kvenna og því borið við að strákar í íþrótt- um samþykki þær ekki og vilji ekki láta konur taka við sig viðtöl. Hjördís er spurð að því hvort hún hafi orðið vör við einhver slík við- horf. - Nei, ég hef alls ekkert orðið vör við það. Mér hefur bara verið vel tekjð í starfinu, en reyndar er ég alveg nýbyrjuð. En ég á ekki von á því að íþróttamenn vilji siður tala við mig vegna þess að ég er kona. Ég hafði mikil sam- skipti við stráka á íþróttaskólanum og yrði í meira lagi hissa ef svo yrði. Nú hefur verið kvartað yfir því að íþrótta- konum sé ekki gert jafnhátt undir höfði og körlum í umíjöllun fjölmiðla. Af hverju heldur þú að það stafi? - Já, það er sennilega meðal annars vegna þess að konur hafa ekki sýnt sömu getu og karlmenn og svo hitt að flestir íþróttafrétta- menn hafa verið karlmenn og því haft meiri áhuga á karlaiþróttum. Hefur þú þá ekki áhuga á kvennaíþróttum og kemur til með að rétta hlut þeirra? - Jú, ég hef mikinn áhuga á öllum íþróttum og fjalla um kvennaíþróttir eftir því sem tilefni gefst til. Hefur þú sjálf stundað íþróttir? - Já, mjög mikið, aðallega frjálsar íþróttir en einnig körfu- og fótbolta. Stefndir þú að því að verða íþróttafréttamað- ur? - Nei, ég var bara að leita mér að vinnu eft- ir skólann í vor og datt inn í þetta af tilviljun. En þetta er reyndar bara sumarstarf. Hvernig er starfið? Er mikill þeytingur til og frá? - Jú, maður fer á leiki og þangað sem eitt- hvað er um að vera, en það er mest um helgar. Annars er þetta mest skrifstofuvinna og fer mest fram í gegnum síma. 12 VI KAN 29. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.