Vikan

Eksemplar

Vikan - 17.07.1986, Side 14

Vikan - 17.07.1986, Side 14
HÚN OG HANN — hvernig er sambandi þeirra háttað? SPURNING TIL HENNAR 1. Hvemig heimili myndir þú helst viljaeiga? a) Stórt hús með þjónustufólki. b) Lítið hús úti í sveit, langt frá öðrum mannabyggðum. c) Nýtísku heimili með öllum nútimatækjum og tólum. SPURNING TIL HANS 2. Finnst þér þú sjálfur vera: a) Hress og opinskár. b) Feiminn og óframfærinn. c) Mitt á milli a og b. SPURNING TIL HENNAR 3. Það er sagt að karlmenn, óháð því hversu gamlir þeir eru, séu og verði alltaf prakkarar í sér. Hvað finnst þér um þessa fullyrðingu? a) Þetta er rétt. b) I sumum tilfellum er þetta rétt. c) Þetta er alrangt. SPURNING TIL HANS 4. Finnst þér þú vera: a) Framsækinn og metnaðargjarn. b) Hæfilega metnaðargjarn. c) Óframfærinn. SPURNING TIL HENNAR 5. Þegar þú átt að taka ákvörðun, ertu þá: a) Fljót að taka ákvörðun. b) Hugsar þig vel og vandlega um áður. c) Leitar til annarra um ráð. SPURNING TIL HANS 6. Eiginkona þín eða sambýliskona segir þér að hún hafi einu sinni verið þér ótrú. Hvað gerir þú? a) Fyrirgefur henni og gleymir öllu saman. b) Fyrirgefur henni en gleymir ekki. c) Ferðfráhenni. SPURNING TIL HENNAR 7. Hvernig er sambandi ykkar háttað? a) Stjórnar þú honum. b) Stjórnar hann þér. c) Algjört jafnræði er með ykkur. SPURNING TIL HANS 8. Þú ert á ferðalagi og þér býðst tækifæri til að halda framhjá kon- unni þinni. Hvað gerir þú? a) Notar tækifærið án þess að hugsa ' þig um tvisvar. b) Notar tækifærið ef þú ert viss um að konan þín komist aldrei að því. c) Ert konunni þinni trúr. SPURNING TIL HENNAR 9. Elskar þú hann af því hann er: a) Uppörvandi fyrir gáfur þínar. b) Y firvegaður og duglegur. c) Gáfaður. SPURNING TIL HANS 10. Hvað eru peningar í þínum augum? a) Þeir eru allt. b) Þeir eru ekki allt en mikið. c) 1 raun og veru ekki neitt ef maður hefurísigogá. SPURNING TIL HENNAR ll.Hvaðfinnst þér um ky nlíf? a) Það er jafnnauðsynlegt og matur og drykkur. b) Það er eitthvað sem konur verða að taka virkan þátt í. c) Mitt á milli a og b. SPURNING TIL HANS 12. Hvað finnst þér um konur? a) Þær eru veikara kynið. b) Þær eru á margan hátt sterkari en karlmaðurinn. c) Þær standa algjörlega jafnfætis körlum. SPURNING TIL HENNAR 13. Þú kemst að því að maðurinn, sem þú ert hrifin af, er algjör kvennabósi. Hvernig bregst þú við? a) Verður alveg æf. b) Finnst hann bara ennþá meira spennandi fyrir vikið. c) Mitt á milli a og b. SPURNING TIL HANS 14. Hversu sterk er ábyrgðartilfmn- ing þín? a) Þú reynir gjarnan að vera ábyrg- ur fyrir þér og þínum. b) Þú reynir að gera þitt besta. c) Þú tekur á þig ábyrgð einungis þegar þú verður að gera það. SPURNING TIL HENNAR 15. Hvernig fólki sækist þú eftir að vera í félagskap með? a) Glæsilegu fólki sem býr í nýtísku legu umhverfi. b) Venjulegu fólki sem býr í einföldu umhverfi. c) Mitt á milli a og b. SPURNING TIL HANS 16. Hin fullkomna kona er allt í senn, móðir, ástkona og félagi. Hvaða eiginieikum sækist þú mest eftir? a) Móðurinni. b) Félaganum. c) Ástkonunni. SPURNING TIL HENNAR 17. Hvað líkar þér best af þessu? a) Ys ogþys. b) Rólegheit. c) Mitt á milli a og b. SPURNING TIL HANS 18. Hvernig vildir þú helst vera? a) Hraustur og í góðu formi. b) Gáfaður. c) Framagjarn. STIGAGJÖF SVÖR KONUNNAR 1. a2 b6c4 3. a2b4 c6 5. a2 b4 c6 7. a2 b6 c4 9. a2 b6 c4 11. a2 b6c4 13. a6b2 c4 15. a2 b6 c4 17. a2 b6 c4 SVÖR KARLMANNSINS 2. a5 bl c3 4. a5b3cl 6. a5b3 cl 8. a5 b3 cl 10. a5b3cl 12. a5 bl c3 14. a5bl c3 16. al b3 c5 18. a5bl c3 LEGGIÐ SAMAN Leggið saman stigin, leggið síðan saman hans svör og hennar svör i lokin. Reynið ekki að fá sem flest eða fæst stig því þungamiðja prófs- ins liggur annars staðar eins og þið munuð komast að raun um. 30 til 40 stig Því miður er ekki hægt að segja að þið séuð fyrirmyndarpar. Hún er að einu leyti skrefi framar en hann: Hún er opinskárri, metnað- arfyllri og meira ráðandi í sam- skiptum ykkar. Samband ykkar ætti samt alveg að geta gengið ef þið gætið þess vandlega þegar ykkur lendir saman - sem gerist því miður æði oft - að særa ekki hvort annað þannig að það risti djúpt. 41 til 60 stig Ekki verður heldur sagt um ykkar samband að það sé til fyrirmynd- ar, þó má segja að það sé á miklu betri grundvelli. Hérerþað aftur hún sem er meira ráðandi í sam- skiptum ykkar, hún er metnaðar- gjörn og miklu opinskárri en hann. Ef þið leggið ykkur fram um að sýna hvort öðru tillitssemi gæti samband ykkar verið mjög gott og ætti að vara að eilífu. 61 til 79 stig Þið eruð næstum því fyrirmyndar- par, eigið margt sameiginlegt þótt sitthvað greini ykkur að þegar grannt er skoðað. Þið leitist við að styðja vel við bakið á hvort öðru. Því nær sem þið eruð 70 stig- um þess betra er sambandið. Þau pör sem fengu 70 stig geta hrósað happi því það eru hin fullkomnu pör! 80 til 99 stig Þetta samband ætti að geta gengið vel án þess að það sé til fyrirmynd- ar. í þessu tilfelli er það hann sem er meira ráðandi í samskiptum ykkar og hann verður að gæta þess að vera ekki of stjórnsamur. lOOtil 110 Hér er það aftur hann sem ræður öllu í samskiptum ykkar. Hann er meira að segja svo stjórnsamur að erfitt er að átta sig á hvað það er í raun og veru sem hann sér við hana. Hann er mjög metnaðar- gjarn, hefur allt aðrar skoðanir á kynlífi en hún og langar mest af öllu að geta kúgað hana. 14 VIKAN 29. TBL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.