Vikan - 17.07.1986, Síða 26
Frá útisamkomu Hjálpræðishersins árið 1945.
sem Hjálpræðisherinn hefur aldrei andmælt þar
sem hann lítur svo á að samkomusalir hans séu
í raun vígi þaðan sem gerðar eru árásir gegn
valdi myrkurs og syndar. Það var ekkert
áhlaupaverk að byggja þetta mikla hús og oft
þungur róður meðan á því stóð. 1929 er einni
hæð bætt ofan á húsið og þá er það jafnvel
auglýst á nauðungaruppboði í Lögbirtingablað-
inu. Einhverjir styrkir komu reyndar frá
Danmörku og lán frá Englandi sem síðar voru
gerð endurfrí. Herkastalinn hefur verið með
stærri húsum i Reýkjavík á þeim tíma og setur
enn mikinn svip á gamla bæinn. Þar hefur
ætíð verið rekið gistiheimili, sem var reyndar
í upphafi eitt af hinum betri í bænum. Þá var
þar einnig bókasafn og lesstofa. Á gistiheimil-
inu eru um 40 herbergi sem eru í fullri notkun
allt árið. Á sumrin gista þar ferðamenn en á
veturna býr þar mikið af fólki sem hefur leitað
til Félagsmálastofnunar vegna húsnæðisskorts
og er verði mjög í hóf stillt. Áður fyrr gistu
heimilið mikið færeyskir sjómenn sem hér voru
á togurum. Hjálpræðisherinn á einnig hús á
Seltjarnamesi þar sem rekið er heimili fyrir
taugasjúka. Hjálpræðisherinn nýtur ekki
styrkja frá ríki eða bæ. Helstu tekjur eru af
rekstri gistiheimilisins í Reykjavík, flóamörk-
uðum og öðru slíku. Þá hefur flokkurinn á
Akureyri nýlega hafið kartöflurækt í tekjuöfl-
unarskyni.
Hjálpræðisherinn starfar nú eingöngu í
Reykjavík, á Isafirði og Akureyri en starfaði á
mun fleiri stöðum áður, svo sem á Siglufirði
þar sem hann á hús en hefur hins vegar engan
til að starfa í því. Einnig var starfrækt sjúkra-
hús í Hafnarfirði en það hefur verið tekið undir
elliheimilisrekstur.
HEIMILASAMBAND HERKVENNA
I Reykjavík eru samkomur allt árið á sal
Hjálpræðishersins á fimmtudögum og sunnu-
dögum klukkan hálfníu. Á sumrin eru einnig
haldnar samkomur á Lækjartorgi klukkan fjög-
ur á sunnudögum þegar veður leyfir. Á árum
áður, þegar fleiri bjuggu í miðbænum, gátu
þessar samkomur orðið ákaflega fjölsóttar, með
allt að fjögur til fimm þúsund manns.
Á mánudögum starfar svokallað heimilasam-
band, „home-leak“, eldri kvenna, nokkurs
konar kvenfélagshópur. Konurnar hittast
heima hjá hver annarri og eiga ánægjulega
stund, lesa upp úr bókum, syngja og fara í ferða-
lög saman.
Annan hvern miðvikudag hittist svonefndur
hjálparflokkur sem í eru yngri konur sem hafa
haft eitthvert samband við herinn áður og vilja
halda því við. Þær hjálpa til þegar þarf að baka
og eins ef haldnar eru hátíðir fyrir eldra fólk.
Einstöku sinnum eru svo haldnar sérstakar
samkomur fyrir hermenn. Á veturna er starf-
semi fyrir börn og unglinga á miðvikudögum
og fimmtudögum.
Starfsemi Hjálpræðishersins á íslandi hefur
verið mjög fjölþætt frá upphafi og var víð-
tækari á árum áður en hún er nú. Hjúkrunar-
og líknarstörf voru stór hluti af starfseminni
og oft sýndu hermenn mikla hetjulund á því
sviði. Eru mýmörg dæmi þess að hermenn hafi
26 VIKAN 29. TBL