Vikan - 17.07.1986, Page 44
VIK A N
TEXTI: JÚHANN RICHA RD
MYNDIR: JÚN FROSTI
Hljómsveitin Vunderfoolz rís upp úr rústunum
af Dá, en Dá var búin með sinn tíma hér á jörð.
Vunderfoolz hefur æft stíft undanfarna 6 til 7
mánuði og haldið nokkra góða tónleika, meðal
annars með Einsturzende Neubauten í Roxzy
um miðjan maí. Tónlistin er kröftugt vunder-
rokk með danstakti. Meðlimir hljómsveitarinnar
eru tæknifrík og eru fylgjandi gervihnattavæð-
ingu og MIDI (Musical Instrument Date Int-
erface) terrorisma. Mike er aðalhugbúnaður
bandsins og sér um sexual-pólitíska textagerð
Vunderfoolz. Hanna Steina, kærastan hans,
hjálpar honum með sönginn en hún hefur áður
unnið að flestum hliðum tónlistarinnar, meðal
annars unnið við kvikmyndir og í sjónvarpi.
Aðrir innlimir Vunderfoolz eru þeir Eyjó Jó-
hannsson gítargaldramaður og Maggi Jónsson
sem dansar á synthesizer. Úlfar Úlfarsson (Úlf-
ur) var valinn á trommurnar vegna útlits en
reyndist þegar til kom frábær trommari. Hlynur
Höskuldsson er svo áreiðanlega sérstæðasti
bassaleikari á landinu. Hlynur hefur ætíð verið
músíkfrík og byrjaði snemma að læra á píanó.
Fyrir 6 7 árum missti hann framan af hægri
hendinni í slysi en með óbugandi viljastyrk tókst
honum að æfa höndina upp aftur. Hann spilar
nú vunderful tónlist með Vunderfoolz.
En hver eru svo framtíðarplönin?
Þau eru núna í stúdíói að taka upp efni fyrir
safnplötu sem kemur á markaðinn beggja vegna
Atlantshafsins í sumar. Svo er ætlunin að spila
eins mikið og hægt er í sumar.
Eru þau undir áhrifum?
Meðlimir Vunderfoolz eru ekki áhrifagjarnir
nema þá helst Mike sem er undir greinilegum
áhrifum frá Roy Rogers og Peter Lorre (sem er
lítið amerískt pervert). Innlimir Vunderfoolz eru
sammála um að tónlistarlífið í Reykjavík fari
batnandi fyrst þeir eru farnir að spila.
-
44 VIKAN 29. TBL