Vikan - 17.07.1986, Page 59
það er hvetjandi þegar svo fjölmargir fulltrú-
ar aðildarfélaganna koma saman og miðla
ólíkri reynslu, starfi og menningu. Það hvet-
ur okkur til að leita nýrra leiða í efnisvali
og við efnistök."
Sumar erlendu sýningarnar voru verulega
forvitnilegar og nýstárlegar, sérstaklega
Járnöld Finnanna og sýningar þeirra þjóða
sem nú voru með í fyrsta sinn. Að frátöldum
íslensku hópunum, sem vöktu verðskuldaða
athygli, þóttu Finnarnir, Samarnir, Svíarnir
og Færeyingarnir hvað sterkastir. Þetta
voru metnaðarfullir og þrautþjálfaðir hópar.
Höfuðmarkmið áhugaleikhópa er sjálfsagt
í flestum tilfellum það sama; að fá útrás fyr-
ir sköpunarþörf og tjáningu um leið og
miðlað er ákveðinni frásögn. En takmarkið
er sett misjafnlega hátt, hjá sumum hópum
skiptir leikgleðin mestu máli en hjá öðrum
eru listrænar kröfur litlu minni en hjá at-
vinnuleikhúsum. Gott dæmi um þetta voru
sýningar Teatergruppen Kastrup frá Dan-
mörku og Hangon Harrastajateatteri frá
Finnlandi. Báðar voru sýndar undir berum
himni, sú fyrrnefnda, á Lækjartorgi, var full
af galsa og gleði en minni áhersla lögð á
smáatriði og fágun. Sú síðarnefnda, sem var
í Oskjuhlíðinni, var unnin af meiri alvöru,
fáguð, kröftug og metnaðarfull - en líka full
af leikgleði. Hér er engan veginn verið að
leggja mat á þessa hópa almennt heldur ein-
ungis bent á hversu skemmtilega ólíkir þeir
voru. Myndirnar hér á síðunum segja þó
meira en mörg orð, látum þær tala.
29. TBL VIKAN 59