Vikan - 28.08.1986, Síða 7
HM í Veróna
Klippt og blásið i kapp
Heimsmeistarakeppnin í hárgreiðslu og hár-
skimði verður haldin í Veróna á Italíu dagana
14.-16. september nú í haust. íslendingar munu
nú taka þátt í þessari keppni og er það í fyrsta
skipti sem íslenskt hárgreiðslufólk tekur þátt í svo
stóru móti sem heimsmeistarakeppnin er. Lands-
liðið í hárgreiðslu hefúr verið undir handleiðslu
eins besta þjálfara Hollands, John Sehults. Þó
John sé ungur að árum hefúr hann geysilega mikla
keppnisreynslu og hefúi- unnið yfir 280 bikara í
keppni út um allan heim. Það hefúr því verið
mikill ávinningur fyrir íslenska landsliðið að fá
notið leiðsagnar hans.
Undh-búningurinn fyrir keppnina hjá íslenska
landsliðinu hefúr staðið yfir af fullum krafti nú í
sumar. í júnímánuði fór landsliðið á viku nám-
skeið í Hollandi þar sem John lagð: línumar fyrir
þjálfún þess. Þá kom John hingað til lands í ágúst
og lagði endanlega fram drögin að þjálfunarpró-
grammi landsliðsins fyrir keppnina.
Að þessu sinni munu 42 þjóðir taka þátt í keppn-
inni sem þýðir að keppendumir verða yfir þrjú
hundruð. Keppendur frá Islandi verða sjö, þrír í
hárgreiðslu og þrír í hárskurði, auk þess sem einn
keppandi mun taka þátt í klippingu á hártoppum.
Sex módel verða með í förinni ásamt tveimur
dómurum.
Landslið íslands í hárgreiðslu er skipað þeim
Dórótheu Magnúsdóttur, Guðfinnu Jóhannsdótt-
ur og Helgu Bjamadóttur. En þau Eiríkur Þor-
steinsson, Gísli V. Þórisson og Hugrún Stefáns-
dóttir skipa landsliðið í hárskurði. Dómai-ar fyrir
íslands hönd verða Amfríður Isaksdóttir og Torfi
Geirmundsson.
John Schults, þjálfari landsliðs-
ins, og Torfi Geirmundsson
ásamt einu módelanna.
Torfi Geirmundsson verður annar
lands hönd.
dómaranna fyrir Is-
Módelin ásamt landsliðinu i hárgreiðslu og John Schults þjálfara þess. Landsliðið skipa,
talið frá vinstri, Dóróthea Magnúsdóttir, Helga Bjarnadóttir og Guðfinna Jóhannsdóttir.